Vikan


Vikan - 16.01.1969, Blaðsíða 25

Vikan - 16.01.1969, Blaðsíða 25
Traffic, Anitu Harris, Cliff Richard, Lulu, The Bee Gees, Monkees, Rolling Stones o. fl. Hin ágæta hljómsveit Manfred Mann hlaut mikið lof fyrir tónlistina við kvikmyndina „Up the junction". Þeir kumpánar í hljóm- sveitinni sömdu alla músik fyrir þessa mynd, sem þykir með hinum athyglisverðari, sem sýndar hafa verið í Bretlandi um langt skeið. Tommy Steele, fyrrverandi rokkkóngur, sem flestir álitu að mundi geispa golunni sem söngvari, þegar rokkið hætti að vera vinsælt hér áður fyrr, hefur nú haslað sér völl sem kvikmyndaleikari og söngvari og hefur farið með aðalhlutverkið í tveim stórmyndum, „Half a sixpence" og „The Happiest Million- aire“. Um þessar mundir er Tommi að leika stigamann og töffara í kvikmynd, sem á að heita „Where is Jack?“ Svona getur nú rætzt úr sumum! Marianne Faithfull hefur sem kunnugt er leikið í kvikmyndinni „Girl on a motor- cycle", og er skemmst frá því að segja, að sú mynd er einhver hin athyglisverðasta, sem fram hefur komið í lengri tíma. Myndin er snilldarlega vel gerð og tekin, og aðalleik- ararnir, Marianne Faithfull og Alain Delon skila sínum hlutverkum með miklum ágæt- um, einkum þó Marianne. Enginn vafi er á því, að við eigum eftir að sjá Marianne Faith- full í fleiri kvikmyndum. Mick Jagger, söngvari Rollinganna og heit- sveinn Marianne, er í kvikmyndahugleiðing- um þessa dagana. Hann hefur meira að segja látið til leiðast að skera hár sitt vegna tök- unnar, en hann hefur með höndum stórt hlutverk í kvikmynd, sem heitir „Perfor- mance“. Teiknimynd Bitlanna, Yellow Sub- marine, datt upp fyrir um leið og hún kom í kvikmyndahúsin í London. Hún var frum- sýnd sl. sumar með pomp og pragt en síðan ekki söguna meir- Myndin þótti semsé fyrir ofan skilning venjulegs fólks en lágkúra í augum menningarvita. Þetta sannar, að hinn gullni meðalvegur er vandrataður. Elivs Presley hefur ekki setið auðum höndum hin síðari ár, þótt hljómplötur hans hafi verið gefnar út nokkuð skrykkjótt. Nýj- ustu kvikmyndir hans þrjár heita „Clam- bake“, Speedway" og „Stay away, Joe“. Það eru engin ellimerki á Elvis að sjá. í mynd- inni „Clambake' er hann í fullu fjöri og fæst við báta og fagrar konur, en í Speedway“ er Nancy Sinatra prímadonnan. Við sögðum frá kvikmyndinni með Her- man‘s Hermits fyrir skömmu. Sú mynd þyk- ir í lélegra lagi, og er eins með þá og Dave Clark Five, að þeir njóta sín vel á hljóm- plötum en ekki í kvikmyndum- & LEAPY LEE A GRÆNMI GREIN Lagið „Little Arrows" hefur verið mjög vin- sælt hér um alllangt skeið. Þetta lag hefur einnig náð miklum vinsældum víða erlendis og hafa margir sungið það á plötu eftir að frumútgáfa lagsins með Leapy Lee tók að heyrast. Leapy Lee var allsendis óþekktur, þegar platan með laginu „Little Arrows“ kom á markaðinn i Englandi. Það liðu líka margir mánuðir frá því platan kom í búðir og þar til hún tók að seljast. En þegar hún fyrst fór að seljast og heyrast í útvarpi, virt- ist ekkert lát ætla að verða á sölunni og einn góðan veðurdag var þessi plata komin upp í efsta sæti vinsældalistans. Leapy Lee er 24 ára gamall, ættaður frá Eastbourne á suðurströnd Englands. Hann hefur um mörg undanfarin ár reynt að koma sér áfram í skemmtanabransanum, hann var í leiklistarskóla og langaði til að gerast leik- ari, en fékk aldrei tækifæri til þess. Þá vakn- aði áhugi hans á músik og hann stofnaði eig- in hljómsveit. Sagt er, að Ray Davies í Kinks hafi samið fyrir hann tvö lög, „Sunny After- noon“ og „Dandy", en þegar til átti að taka voru aðrar hljómsveitir búnar að næla í þau og Leapy Lee þess vegna of seinn að koma með sína útgáfu. Nú ætti Leapy Lee að vera á grænni grein og nú bíða menn eftir annarri tveggja laga plötu frá honum. ☆ HÚN HEFUR FENGIÐ SKILNAÐ Jolm Lennon og kona hans fyrrverandi, Cynthia, voru talsvert í fréttunum á síffasta ári. Allir vita sjálfsagt hvers vegna. Meffan John og Cynthia voru git't birtust sjaldan myndir af frúnni, en nú birtist varla svo mynd af John, að Yoko Ono hin japanska sé ekki í næsta nágrenni. Þessi mynd af Cynt- hiu var tekin fyrir skömmu, er hún hafði fengiff skilnað frá manni sínum- ☆ 3. tbi. VIKAN 25

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.