Vikan


Vikan - 16.01.1969, Blaðsíða 34

Vikan - 16.01.1969, Blaðsíða 34
Ronson HÁRÞURRKA HEIMILANNfl TILVALIN TÆKIFÆRISGJC )F EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú átt erfitt með að koma því af, sem þú hefur sett þór fyrir. Þrátt fvrir annríki þitt skaltu gefa þér tíma til hvíldar. Nýfenginn hlutur gerir þér lífið mun auðveldara. Heillalitur blár. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú undirbýrð mikið mót gamalla félaga. Morgnarn- ir verða þér notadrjúgir. Áróðursferð veldur því, að þú tekur mjög eindregna ákvörðun. Brúneygt fólk er góðir ráðgjafar. Kiabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Ofyrirsjáanlegir atburðir verða til að breyta áform- um þínum á síðustu stundu. Lengri ferðalög eru undir góðum áhrifum. Margir fæddir fyrri hluta júlí lifa eitthvað stórkostlegt. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú verður einstaklega lánsamur í vikunni; þér heppnast störf þín vel og einkalífið verður óvenju líflegt. í erindagjörðum annarra kemstu að nokkru, er veldur þér áhyggjum. Vogarmerkið (24. september — 23. október) Varastu óhóf hvað snertir mat og drykk. Þú ert ckki cins hress og undanfarið og þarft að lifa skyn- samlega. Helgin verður skemmtileg; óvenju margt mar.na hefur samband við þig. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Alls kyns freistingar hlaðast að þér; ef þú byrjar að láta undan er eins hætt við að þú missir tökin algerlega. Þú hefur átt við örðugt verkefni að glíma og ert ekki mjög bjartsýnn. Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Vikan verður notaleg, en næsta helgi fádæma skcmmtileg. Þú færð frcistandi tilboð, sem þú tek- ur svo að segja samstundis. Það mun færa þér mikla heill. Mánudagsmorgunn varasamur. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Ætlaðu þér rúman tíma vegna ófyrirsjáanlegra tafa. Nærveru þinnar er vænzt á ákveðnum stað; það mun kosta þig mikið fé. Þú ert óánægður með vcrzlun, sem hefur verið gerð fyrir þína hönd. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú hefur í mörgu að snúast og veltur á því, að þú bregðist rétt við en hlaupir ekki á þig. Þú van- ír.etur samstarfsmenn þína; það færir þér ekki vin- sældir. Þú færð óverðskuldaða gjöf. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú eignast nýtt áhugamál í vikunni en ferð geyst af stað og eyðir of miklum tíma í það. Þú hefur ■ vanrækt félaga þína og eru þeir hættir að reikna með þér. Þú færð góða gjöf. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Ætlastu ekki til of mikils af náunganum; þú kemst að því, að hver er sjálfum sér næstur. Þú ferð í dauflegt samkvæmi, en kynnist þar eftirtektar- verðri persónu. Þú verður mikið að heiman. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú ert óþolinmóður og gæti það orðið til að tefja enn fyrir. Gættu ýtrustu kurteisi og hagaðu orðum þínum hnitmiðað. Þú ert ekki sjálfum þér nægur í frístundunum. 34 VIKAN 3 tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.