Vikan - 16.01.1969, Side 34
Ronson
HÁRÞURRKA HEIMILANNfl
TILVALIN TÆKIFÆRISGJC )F
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú átt erfitt með að koma því af, sem þú hefur sett
þór fyrir. Þrátt fvrir annríki þitt skaltu gefa þér
tíma til hvíldar. Nýfenginn hlutur gerir þér lífið
mun auðveldara. Heillalitur blár.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú undirbýrð mikið mót gamalla félaga. Morgnarn-
ir verða þér notadrjúgir. Áróðursferð veldur því,
að þú tekur mjög eindregna ákvörðun. Brúneygt
fólk er góðir ráðgjafar.
Kiabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Ofyrirsjáanlegir atburðir verða til að breyta áform-
um þínum á síðustu stundu. Lengri ferðalög eru
undir góðum áhrifum. Margir fæddir fyrri hluta
júlí lifa eitthvað stórkostlegt.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú verður einstaklega lánsamur í vikunni; þér
heppnast störf þín vel og einkalífið verður óvenju
líflegt. í erindagjörðum annarra kemstu að nokkru,
er veldur þér áhyggjum.
Vogarmerkið (24. september — 23. október)
Varastu óhóf hvað snertir mat og drykk. Þú ert
ckki cins hress og undanfarið og þarft að lifa skyn-
samlega. Helgin verður skemmtileg; óvenju margt
mar.na hefur samband við þig.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Alls kyns freistingar hlaðast að þér; ef þú byrjar
að láta undan er eins hætt við að þú missir tökin
algerlega. Þú hefur átt við örðugt verkefni að
glíma og ert ekki mjög bjartsýnn.
Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember):
Vikan verður notaleg, en næsta helgi fádæma
skcmmtileg. Þú færð frcistandi tilboð, sem þú tek-
ur svo að segja samstundis. Það mun færa þér
mikla heill. Mánudagsmorgunn varasamur.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Ætlaðu þér rúman tíma vegna ófyrirsjáanlegra tafa.
Nærveru þinnar er vænzt á ákveðnum stað; það
mun kosta þig mikið fé. Þú ert óánægður með
vcrzlun, sem hefur verið gerð fyrir þína hönd.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Þú hefur í mörgu að snúast og veltur á því, að þú
bregðist rétt við en hlaupir ekki á þig. Þú van-
ír.etur samstarfsmenn þína; það færir þér ekki vin-
sældir. Þú færð óverðskuldaða gjöf.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú eignast nýtt áhugamál í vikunni en ferð geyst
af stað og eyðir of miklum tíma í það. Þú hefur ■
vanrækt félaga þína og eru þeir hættir að reikna
með þér. Þú færð góða gjöf.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Ætlastu ekki til of mikils af náunganum; þú kemst
að því, að hver er sjálfum sér næstur. Þú ferð í
dauflegt samkvæmi, en kynnist þar eftirtektar-
verðri persónu. Þú verður mikið að heiman.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú ert óþolinmóður og gæti það orðið til að tefja
enn fyrir. Gættu ýtrustu kurteisi og hagaðu orðum
þínum hnitmiðað. Þú ert ekki sjálfum þér nægur í
frístundunum.
34 VIKAN 3 tbl