Vikan - 16.01.1969, Blaðsíða 4
HAGSÝN
HÚSMÓÐIR
NOTAR
r
\
Gólfdúkur — plast, vinyl og línóleum.
Postulíns-veggflísar — stærðir 7V2X15, 11x11 og 15x15 cm.
Amerískar gólfflísar — Good Year, Marbelló og Kentile.
Þýzkar gólfflísar - DLW.
Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baSgólfdúkur.
Málningarvörur — fró Hörpu hf., Málning hf. og Slippfél. Rvíkur.
Teppi — ensk, þýzk, belgisk nylonteppi.
Fúgavarnarefni — Sólinum, Pinotex.
Silicone — úti — inni.
Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung.
Vinyl veggfóSur — br. 55 cm.
VeggfóSur — br. 50 cm.
V ______________________________________________________________________✓
RAÐ TIL AÐ HÆTTA AÐ
REYKJA . . .
Kæri Póstur!
í 50. tbl. Vikunnar 1968
birtist bréf sem einhver
tóbaksþræll að nafni To-
Baccus skrifaði. Bar það
heitið „Níðst á reykinga-
mönnum". Hann segirmeð-
al annars, að hann hafi
reiðzt, en ekki af því að
honum þyki sopinn góð-
ur. Nei, honum kvaðst
vera alveg sama, þótt þeir
hækkuðu brennivínið upp
úr öllu valdi, því að hann
gæti verið án þess. En nú
vill svo einkennilega til, að
það fyrirfinnast manneskj-
ur á þessu landi, sem eru
áfengisþrælar eða þykir
að minnsta kosti sopinn
góður. Margt af þessu
fólki hefur sennilega líka
reiðzt, ekki af því að tó-
bakið hækkaði, heldur af
því að áfengi hækkaði.
Ég vil taka það fram, að
ég neyti hvorki áfengis né
tóbaks, og mér er því
sama, þótt flaskan fari upp
í 1000 krónur eða meira
og pakkinn upp í 100 krón-
ur eða meira.
Staðreyndin er þó sú, að
pakkinn kostar eitthvað
um 45 krónur núna, eða
sama og fjórar mjólkur-
hyrnur. Nú, maður sem
reykir pakka á dag, brenn-
ir því 15.975 krónum á ári,
þegar hlaupár er ekki.
Bréfritarinn segir á ein-
um stað: ,,Er hægt að níð-
ast endalaust á þessum
vesalings mönnum, sem
eru orðnir þrælar tóbaks-
nautnarinnar“?
Níðast endalaust? Hvað
á maðurinn við? Hefur
mjólkin ekki endalaust
verið að hækka? Er hægt
að níðast endalaust á öll-
um þessum heimilum, sem
verða að kaupa nauðsynja-
vörur, svo sem mjólk og
annað?
Pósturinn gaf herra To-
Baccus mjög gott ráð: að
hætta að reykja. Flestir
þrælar vilja losna úr þræl-
dómi sínum, eða er ekki
svo?
Að síðustu er hér smá-
saga, sem gerðist á þeim
tíma, sem pakkinn kostaði
25 krónur:
ITjón nokkur ákváðu
bæði að hætta að reykja.
Konan hætti, en maðurinn
ekki, sveik sem sagt gefið
loforð. Dag nokkurn sátu
þau ásamt fleira fólki fyr-
ir framan arininn. Maður-
inn tók upp sígarettu-
pakka, bauð úr honum, en
fékk sér síðan sjálfur. Þá
var kveikt í og byrjað að
púa að vanda. Kona
mannsins gerði sér þá lít-
ið fyrir og tók 25 króna
seðil upp úr veski sínu,
vafði honum saman og
kveikti í honum. Maður-
inn varð æfur af reiði og
spurði konuna, hvað þetta
ætti eiginlega að þýða.
Svarið var: Ég er bara að
gera nákvæmlega það sama
og þú og mun gera það
þangað til þú hættir að
reykja!
Maðurinn hætti.
Gæti nú ekki einhver
hafa hérmeð fengið gott
ráð til að láta einhvern
hætta að reykja?
Ég þakka fyrir birtinguna.
Einn, scm ekki er þræll.
Þetta er sannkallað þjóð-
ráð, og kemur sér vafa-
laust vel á þessum síðustu
og verstu kjreppu- og
hörmungartímum.
BARNSFAÐIRINN
EÐA HINN?
Kæri Póstur!
Ég er í svolitlum vand-
ræðum, og mig langar til
að skrifa þér nokkrar lín-
ur og spyrja þig ráða. Ég
er 16 ára og ófrísk eftir
strák, sem ég er nú trú-
lofuð. Við erum búin að
vera saman í tvö ár.
En nú er ég ekki leng-
ur hrifin af honum, heldur
öðrum strák, sem ég var
einu sinni með. Hvað finnst
þér, að ég eigi að gera,
elsku Póstur? Ég held, að
kærastinn minn viti, að ég
sé hrifin af þessum strák,
en honum er ekki neitt of
vel við það.
Hann vildi aldrei koma
neitt út að labba eða á
böll, ef mig langaði. Mér
4 VIKAN 3 tbl-