Vikan


Vikan - 16.01.1969, Blaðsíða 36

Vikan - 16.01.1969, Blaðsíða 36
1 Þjálfunin stóð í tvo mámtði. Þá tíndi apinn jarða.rber, fíkjur og appelsínur, og gat greint á milli þroskaðra og óþroskaðra ávaxta. TAMDIR flPflR ffiTTIf flB GETA HJÁLPAD TIL í ELDHUSINU Þaö hefir sýnt sig í dýragörð- um að apinn hefir ýmsa fram- tíðarmöguleika og sýnir að hann er töluvert skyldur manninum. Apar hafa hæfileika sem eiga eftir að opna þeim ýmsar dyr á vinnumarkaði. Apinn getur orðið vinnufélagi mannsins. Eftir tíu ár getum við reikn- að með öpum sem eru færir um að leysa af hendi alla færibanda- vinnu og landbúnaðarstörf, svo eitthvað sé nefnt, apar geta til dæmis verið fljótari en menn við að týna ber og ávexti, og því skildi þá ekki vera hægt að láta þá vinna eldhússtörf? Don L. Smith, forstöðumaður dýrarannsóknastöðvar í Ana- heim í Kaliforníu spáir engu um þetta í gamni, honum er full al- vara. Sem dæmi tekur hann Makaka (apategund frá Suð-Austur- Asíu), sem var látinn vinna við að tína jarðarber á búgarði í Kaliforníu, og shimpansapa, sem tíndi fíkjur. Þeir höfðu báðir gengið í skóla til Smiths. — Það var ekkert erfitt, segir Smith, — að kenna þeim að greina á milli þroskaðra og ó- þroskaðra ávaxta, þeir þekktu það á litnum, og gættu þess að skemma ekki ávextina og það kom ekki fyrir að þeir legðu þá sér til munns. Svo segir hann: Það er mjög erfitt að fá fólk til að tína ber og ávexti, en öpunum er al- veg sama þótt þeir þurfi að erf- iða mikið, enda kom bað á dag- inn að apinn tínir fjórum sinn- um meira en vanur maður, og auðvitað er vinnuaflið ódýrara. Apinn þarf ekki annað en mat og umhirðu, svo kostnaðurinn er ekki til fyrirstöðu- — Shimpansar geta lært að vinna margskonar heimilisstörf, segir annar vísindamaður, Art- hur C. Clarke. — Apanum dett- ur ekkert í hug af sjálfsdáðun, svo það verður að halda honum að vinnunni, en það þarf nú oft þegar mannfólkið á í hlut. Don L. Smith segir mesta möguleika til að notfæra sér vinnu apanna sé við færibanda- vinnu í verksmiðjum. Dýrin eru þá höfð í stórum búrum og færi- bandið látið ganga í gegnum búrin, og svo er rafmagnsheili látin stjórna frændum okkar úr frumskógunum. — Hugsið ykkur bara, segir Framhald á bls 47. 2 Á næstu tíu áruTii náum viö svo Ir.ngt að apínn veröur fyrirtaks starfsmaður við færi- ba.ndavinnu, ekki síður ná- kvæmur en inennirnir. 3 Kostnaðurinn við að hafa apa í vinnu cr aðeíns fæði og umhirða. Þessi api, scm er Makakategund, tínir fjórum sinnum mei.a af ávöxtum en maður . .. \ 4

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.