Vikan - 16.01.1969, Side 3
— Látið ekki svona! Það er
óþarfi að æra mig út af af-
brýðisemi ykkar á milli!
— Gætuð þér lánað mér
einn bolla af LSD?
— Segið mér, er þetta sjúkl-
ingurinn . . ?
0
IÞESSARIVIKII
BOOM — NÍJASTA MYND LIZ OG BURTON
Bls. 4
Bls. 6
BIs. 7
Bls. 8
BIs. 11
Bls. 12
BIs. 14
Bls. 16
Bls. 18
Bls. 22
Bls. 24
Bls. 26
Bls. 30
BIs. 32
VÍSUR VIKUNNAR:
Gjörvallt hauðrið er hulið fönn
frá hæstu gnýpum og tindum
að dalanna ljúfu lindum,
baslið í dagsins bjástri og önn
birtist í ýmsum myndum.
Hátt er vetrarins harpa stillt
með hrjúfum og dimmum tónum
og öldunnar sog frá sjónum,
í borginni fara bítlar villt
og bílar festast í snjónum.
Ef lífsgleði vor úr lagi fer
lengi' er hún oft að ná sér.
Gæfunnar hreyfill gamall er
og getur víst drepið á sér.
FORSÍÐAN:
Geimferðir eru efst á baugi eftir hina vel heppnuðu
tunglferð Bandarikjamanna síðastliðin jól. Höfundar
tízkunnar færa sér í nyt atburði líðandi stundar. Á
forsíðunni okkar er að þessu sinni ærið frumlegur
klæðnaður. Hann er eins konar sambland af stein-
aldargæru og geimbúningi. Útkoman er ekki
verst, eða hvað finnst ykkur?
sem
VIKAN — UTGEFANDI: HILMIR HF.
Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Grön-
dal. Blaðamaður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning:
Snorri Friðriksson. Dreifing: Óskar Karlsson. Aug-
lýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiSsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar 35320—35323. Pósthólf 523. Verð í lausasölu kr. 50.00.
Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900
kr. fyrir 26 tölublöð misserislega, eða 170 kr. fyrir 4 tölublöð
mánaðarlega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar
eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst, eða mánaðarlega.
Óspektirnar, sem urðu í mið-
bænum á Þorláksmessu, hafa
dregið dilk á eftir sér eins og
við mátti búast, og þegar
þetta er ritað er málið enn í
rannsókn. í næsta blaði birt-
ir VIKAN á fjórum síðum
myndir af átökunum, og mun
mörgum þykja fróðlegt að
skoða þær.
í þættinum Eftir eyranu
minnist Andrés Indriðason
fimm ára afmælis Hljóma og
rifjar upp hið helzta, sem
gerðist hjá hljómsveitinni á
liðnu ári. Meðal annars eru
birtar óvenjulegar myndir af
Rúnari Júlíussyni í essinu
sínu á dansleik í Glaumbæ.
Þá birtist niðurlag ferða-
sögunnar til Marokkó.
Af þýddum greinum má
fyrst nefna greinina Kenny
og- ég. Þar segir frá hjóna-
bandi hins vinsæla leikara
Kenneth More, en hann
leikur eins og kunnugt er Jo
í Sögu Forsyteættarinnar í
sjónvarpinu.
í greininni Monte Carlo.
1969: Rétt eins og Bingo segir
frá fjárhagsvandræðum
dvergríkisins, sem hingað til
hefur lifað á hinu fræga
spilavíti sínu. Nú er svo kom-
ið, að spilavítið getur ekki
lengur staðið straum af kostn-
aði ríkisins. Eftir miklar
vangaveltur hefur verið tek-
in sú ákvörðun, að breyta
Monte Carlo í almennan
ferðamannastað í líkingu við
Mallorka og slíka staði. Þeim
dögum fer sem sagt fækkandi
sem marmelaði er framreitt
í kristalsskál á silfurbakka
með morgunkaffinu í þessari
paradís lasta og lauslætis. í
framtíðinni verður það í
plasti.