Vikan - 16.01.1969, Síða 11
f \
Farkostur gamla
mannsins
v-------------1--------------/
Bercot heitir stolt Citroenverk-
smiðjanna og glæsilegasti far-
kosturinn, sem þar hefur verið
framleiddur. Og náttúrlega er
það de Gaulle hershöfðingi, sem
hefur hann til umráða.
Þessi Citroen Super DS er 6.53
m á lengd, eða 13 cm lengri en
bíll Bandaríkjaforseta. Að fram-
an er hann dæmigerður Citroen
en að aftan minnir hann töluvert
á Lincoln og fleiri vestanhafs-
bíla. Mælaborðið er einkar glæsi-
legt með hringmælum og sjálf-
lýsandi rofum, en í afturhurðun-
um er sími, vindlakveikjari og
stillingar fyrir miðstöð og raf-
knúna rúðuhalara. í baki fram-
sætisins er innbyggður bar með
kæli, en milli bílstjóra og aftur-
sætis er engin rúða, eins og víða
þykir fínt og sjálfsagt. De Gaulle
neitaði slíkri aðskilnaðárstefnu
milli forsetans og bílstjórans.
/" '
Bjarga undrahrís-
grjón mannkyninu?
Landbúnaðarsérfræðingar halda
að ný tegund af hrísgrjónum
geti forðað mannkyninu frá
hungurdauða. Þessi nýja hrís-
grjónategund, sem hefir fengið
einkennisstafina IR-5 og IR-8,
hefir verið ræktuð og reynd í
tilraunastofnun á Banos í Fil-
ippseyjaklasanum. Þetta getur
haft gífurlega mikil áhrif á af-
komu í þeim löndum þar sem
íbúarnir lifa mest á hrísgrjón-
um, og það er aðallega í Asíu.
Venjuleg hrísgrjónauppskera
er einu sinni á ári, og gefur að-
eins 1.2 tonn á hektara. Nýja teg-
undin gefur 5—7 tonn á hektara,
og uppskeru tvisvar á ári: IR-5
þroskast innan 150 sólarhringa,
og IR-8 innan 120 sólarhringa.
Ef vel gengur er uppskera þess-
arra tegunda 14 sinnum meiri en
þeirra, sem áður voru þekktar.
Þetta kostar auðvitað meiri
vinnu, meira vatn og tilbúinn
áburð....
/---------------------
Úruggasti bíll
í heimi
V_____________________
Nú hefur Nixon fengið
nýjan bíl um leið og
hann tók við sínu nýja
embætti.
Þessi nýji bíll er sérstaklega
útbúinn og er af Lincoln Con-
tinental gerð, vegur 6 tonn og
kostar kringum 26 milljónir kr.
Öryggisþjónusta forsetans hefir
ekki viljað láta neitt fréttast um
það í hverju öryggisúbúnaður
þessarar stóru Ford bifreiðar er
fólginn. Það er fyrirtækið Leh-
man- Peterson Incl. í Chicago
sem hefir séð um allar breyting-
ar á bílnum, og það eitt er víst
að hann er skotheldur.
Öruggari bíll hefir aldrei ver-
ið framleiddur fyrir forseta í
Bandaríkjunum, segja sérfræð-
ingarnir. Þeir sem hafa séð bíl-
inn, segja að hann líti frekar út
sem brynvagn en venjulegur
fólksbfll. í bílnum eru þrjú sjón-
varpsmóttökutæki, tveir radio-
símar, og hátalarakerfi, sem ger-
ir forsetanum kleyft að tala við
mikinn mannfjölda, án þess að
hreyfa sig úr bílnum.
Bíllinn sem John Kennedy ók
í, þegar hann var skotinn til
bana í Dallas, í nóvember 1963,
var líka Lincolnbíll. Kennedy
pantaði hann árið 1961, en sá
bfll var ekki brynvarinn og hafði
ekki skotheldar rúður. Þegar
Lyndon Johnson varð forseti, lét
hann gera bílinn upp. Ford hefir
lengi haft einkarétt á því að sjá
forsetum Bandaríkjanna fyrir
bílum, en eftir lögunum má fyr-
irtækið ekki láta slíka bíla end-
urgjaldslaust. Þessvegna eru þeir
leigðir, og leigan er einn dollar
á ári....
s.tbi. VIKAN 11