Vikan - 16.01.1969, Síða 20
o
o
o
SKOTIN í MAYERLING
O
í tugatali. Hann vildi hafa dimmt inni hjá sér og
sökkti sér í sjálfsmorðsþanka. Keisarinn faðir
hans hafði leynilögreglumenn á verði útifyrir
íbúðinni. Þeir hripuðu niður hjá sér nöfn ást-
meyjanna, sem bar að garði, svo og komu- og
brottfarartíma.
O
í meðförum Omars Sharifs verður Rúðólfur prins
að flauelseygu kvennagulli.
o
Sjálfur var krónprinsinn ekki sérlega laglegur,
en gerði eigi að síður mikla lukku hjá kven-
fólkinu í Vín.
í einkaíbúð prinsins í Hofburg, keisarahöllinni
í Vín. Þar lokaði prinsinn sig af og hafði einkum °
sér til gamans að handfjatla hlaðnar skamm- Mayerling-höll, þar sem harmleikurinn skeði.
byssur og ástmeyjar, en hvorttveggja átti hann Hún er skammt suðvestan Vínar.
O
o
©
Svipar þeim saman? Catherine Deneuve, sem
leikur Maríu Vetsera, og aumingja María sjálf,
eins og hún leit út í lifanda lífi. Hún var aöeins
seytján ára, er hún kynntist prinsinum, en engu
að síður þá þegar margreynd heimskona.
O
Ein kenningin um gang harmleiksins er á þá
leið, að Rúðólfur hafi skotið Maríu af misgán-
ingi í áflogum, sem þau tvö og fleiri viðstaddir
hafi tekið þátt í, og að í þeim sömu áflogum hafi
prinsinn líka verið drepinn. Hverjir þessir aðrir
nærstöddu voru er ekki vitað, enda gerðu yfir-
völdin sitt bezta til að halda sem flestu leyndu
í sambandi við atburðinn. Hér sést hinn raun-
verulegi Rúðólfur á líkbörunum. Höfuðbindið
er talið benda til þess, að banasár prinsins hafi
ef til vil! ekki verið skotsár.
o
Hér er Ömar að skjóta sig í myndinni. Þar gerist
það að aflokinni rausnarlegri drykkjuveizlu.
Samkvæmt kaþólskri trú skulu sjálfsmorðingjar
grafnir utangarðs, en til að bjarga Rúðólfi um
leg í vígðri mold var látið heita svo að hann
hefði framið sjálfsmorðið í brjálæðiskasti, sem
hann og kannski hefur gert. Til þessháttar sjálfs-
morðingja nær ekki yfirskrifað bann kirkjunnar.
©
Áletrunin á gröf Maríu Vetsera. Þau Rúðólfur
kváðu hafa óskað þess að fá að hvíla í einni
gröf bæði, en keisarafjölskyldan var nú ekki á
því. Og engir viðarteinungar munu hafa sam-
einað moldir þeirra eins og Tristans og ísoldar.