Vikan


Vikan - 16.01.1969, Page 37

Vikan - 16.01.1969, Page 37
Þcir flugu kringum tunglið: Borman, Lovell og Anders (talið frá vinstri). í TUNGLINll FYBIR NÆSTU JOL? Óðum nálgast sú stóra stund, að mannlcg vera stigi í fyrsta sinni fæti á yfirborð annars himintungls en okkar jarðar. Óhætt er að gera ráð fyrir að fyrsti maðurinn sem drepur tám á ríki Lúnu drottn- ingar verði annað tveggja Bandaríkjamaður eða Sovétmaður. Eins og nú horfir virðast Bandaríkjamenn vera á undan í kapphlaupinu- Leiðangur þiúggja garpa úr þeirra hópi í „landhelgi“ tunglsins og kringum það þykir eitt mesta vísindaafrek, er sagan kann frá að greina. Standa nú sterklega vonir til þess að bandarískir geimfarar lendi á tunglinu einhvern tíma á þessu ári, fyrstir manna —• en vel að merkja liggur ekki ljóst fyrir hvað Rússar hafa í pokahorninu hvað þessu viðvíkur. Raunar hefur heyrzt, að þeir hafi misst áhug- ann á mánatetrinu, þar eð Kanarnir hafi þar of mikið forskot, en leggi þess í stað megináherzlu á að verða á undan til Marz — stjörnu herguðsins. ☆ I>essa mynd tóku þeir fclagar af yfirborði tunglsins. Svo er að heyra að það sc þakið þurrum sandi, dælduðum af loftstcinum. livað yfirbragð og litarliátt snertir er máninn heldur ólystilegur, „hrímfölur og grár“, eins og Jón Ólafs- son hafði fyrir löngu uppgötvað af jörðu niðri, enda lct Sigurður Nordal sér fátt um leiðangurinn finnast. 3. tbf. VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.