Vikan - 16.01.1969, Side 50
r N
Ég vil láta klippa mig eins og Yul Brynner!
V----------------------------------------------------—--------------)
— Riggs, mér er sagt að þér hafið verið viðstaddur þegar herra
Forsyte barðist við eldinn.
— Tá, herra. Herra Forsyte var stórkostlegur. Hann var eins
og ungur maður, það endaði með því að við urðum að bera hann
út. Og hann sem alltaf var svo nákvæmur með heilsuna. Hann
rak mig áfram. Ég hefi aldrei verið eins undrandi á ævi minni.
Ef hann hefði ekki komið síðasta málverkinu út í gluggann, þá
hefði hann líklega ekki farizt, það var það sem datt ofan á hann.
— Hvernig byrjaði eldurinn?
— Það veit enginn, nema ef herra Forsyte hefir vitað það, en
hann sagði ekki neitt. Ó, herra, nú finnur hann aldrei að við mig
framar
Þegar Michael kom heim hitti hann Winifred, Val og Holly, sem
höfðu komið vegna jarðarfararinnar. Annette var uppi í barna-
herberginu með Kit. Michael fór upp til Fleur, í herbergið sem
hún hafði, þegar hún var lítil. Herbergið var svo lítið að hún
hafði sofið þar ein, Michael svaf annars staðar þessar síðustu
nætur.
Hún lá ofan á rúminu, yndisleg, en virtist alveg stjörf. Hún leit
á Michael, en augnaráðið bar ekki vott um meiri áhuga en þótt
hún hefði horft upp í loftið.
Hann gekk að rúminu og greip hönd hennar.
— Ástin mín!
Fleur horfði aftur á hann, en augnaráðið var tómlegt, eins og
áður.
— Ég skal fara heim með Kit, hvenær sem þú vilt.
— Hvenær sem þú vilt sjálfur, Michael.
— Ég veit hvernig þér líður, sagði Michael, en vissi með sjálfum
sér að hann hafði ekki hugmynd um það. — Riggs var að segja
mér frá föður þínum og baráttu hans við eldinn.
— Talaðu ekki um það!
Það var eitthvað í svip hennar sem hann skildi ekki, jafnvel þótt
hann gerði sér fyllilega ljóst að hún syrgði föður sinn svo mikið.
Ailt í einu sagði hún:
— Vertu þolinmóður Michael. Ég geri ráð fyrir að tíminn lækni
mig. Hafðu ekki áhyggjur af mér, ég er ekki þess virði.
Stopp! Stopp! Þú ert að setja olíuna í víngeyminn!
Michael þrýsti vörum sínum að enni hennar, hann víssí að orð
voru þýðingarlaus.
Hann gekk út og rölti niður að ánni, stóð þar um liríð og virti
fyrír sér strauminn, sem glitraði í haustbirtunni. Kýrnar, sem
Soames hafði átt voru á beit hinum megin við ána. Nú yrðu þær
seldar á uppboði, eins og reyndar allt hitt. Annette ætlaði að flytja
til móður sinnar í Frakklandi, og Fleur vildi ekki eiga neitt af
munum föður síns. Hann horfði á húsið, sem ennþá bar merki
elds og vatns. Það var angurværð í hjarta hans, eins og andi hins
framliðna væri við hlið hans og sæi sjálfur hve forgengilegur
þessa heims auður í raun og veru er. Allt er breytingum undir-
orpið, hugsaði Michael, en flestir vildu líklega heldur eiga heilt
fljót heldur en lítinn læk.
Hann sneri heim að húsinu aftur og gekk meðfram blómabeð-
unum, sem voru umhveríis matjurtagarðinn. Hann sá að einhver
sat í garðhúsinu í horninu. Það var Holly Dartie, hún var elsku-
leg kona. Michael datt skyndilega í hug að reyna að fá greitt úr
flækjunni viðvíkjandi Fleur, sem hafði kvalið hann svo undan-
farið. í fyrstu fann hann til sektar yfir því að ætla að fara á
bak við Fleur, en hugsaði svo að allt væri betra en þetta ástand.
Hann gekk til hennar. Hún sat með bók í kjöltunni, en var ekki
að lesa.
— Hvernig líður Fleur? spurði hún.
Michael hristi höfuðið og settist.
— Mig langar til að leggja fyrir þig spm-ningar, sagði hann. •—
Þú skalt ekki svara þeim, ef þér finnst það erfitt, en mér finnst
ég verði að spyrja. Geturðu, eða viltu segja mér hvernig málum
er háttað milli Fleur og bróður þíns? Ég veit að það var eitthvað
áður. Er eitthvað á milli þeirra núna? Ég er að spyrja hennar vegna,
ekki mín vegna. Það er sama hvað þú segir mér, ég skal ekki nota
það til að særa hana.
Hún horfði beint framan í hann, og Michael sá það á andliti henn-
ad að hvað sem hún segði, þá væri það satt og rétt.
— Hvað sem hefur verið á milli þeirra, sagði hún að lokum, —
og það hefur líklega verið eitthvað, síðan hann kom heim ,þá er því
lokið nú. Ég veit það fyrir víst. Því var lokið daginn fyrir brunann.
— Ég skil, sagði Michael hljóðlátlega. — En hvernig getur þú
verið viss um að því sé lokið að fullu og öllu?
— Vegna þess að ég þekki bróður minn svo vel. Hann hefur
lofað konunni sinni að hitta Fleur aldrei aftur. Það hlýtur eitt-
hvað að hafa komið fyrir, ég veit að það er rétt. En lofi bróðir minn
einhverju, þá er öruggt að hann stendur við orð sín, það er ekkert,
örugglega ekkert, sem getur komið í veg fyrir það. Hvað sem það
hefur verið, er því lokið, og Fleur veit það.
Michael sagði aftur: — Ég skil. Og svo sagði hann, eins og við
sjálfan sig: — Iivað sem það hefur verið.
Hún lagði hönd sína ofan á hans.
— Þetta er allt í lagi, ég næ mér fljótt aftur. Þú þarft heldui’
ekki að vera hrædd um að ég gangi bak orða minna. Ég veit að
ég hefi alltaí leikið á aðra fiðlu.
Hann þrýsti hönd hennar, og þegar hún leit upp, sá hann að
það voru tár í augum hennar.
— Þakka þér hjartanlega fyrir, sagði hann. Ég held ég skilji
þetta núna. Það er svo óþægilegt að vita elcki hvað maður er að
berjast við. — Þakka þér hjartanlega.
Hann dró hönaina hægt til sín. Hann brosti þegar hann leit niður
til hennar, þar sem hún sat kyrr með tárin í augunum.
— Það er stundum dálítið erfitt að kyngja því að lífið er raunar
ekkert annað en leiksýning, en maður getur vanizt því ........
— Hamingjan fylgi þér, sagði Holly. Og Michael svaraði:
— Hamingjan sé með okkur öllum!
Um kvöldið, þegar búið var að slökkva öll ljós, læddist hann
aflur út í garðinn. Honmn fannst ennþá andi gamla Forsytes væri
þarna, til að vernda þá sem hann elskaði. Fuglinn hafði verið
særður á báðum vængjum, og nú var ekki um annað að gera en
að lækna sárin.
— Hvað sem það var sem milli þeirra tveggja fór, — hann vissi
að það hafði verið allt, þá vissi hann að það var búið, og að hún
var niðurbrotin. Hann varð að standa við hlið hennar og láta ekki
á neinu bera. Ef hann gat ekki gert það núna, þá hefði hann
aldrei átt að kvænast henni, hann vissi þá að hún elskaði hann ekki,
eða að minnsta kosti ekki mikið. Hann tottaði pípuna fast, og
gekk gegnum garðinn niður að ánni. Kyrrð kvöldsins átti vel við skap
hans þessa stundina.
Ómur af tónlist barst niður með ánni. Það hlaut að vera frá
einhverju samkvæmi, en honum fannst ómurinn berast með
straumnum, töfrandi, fjarlægur og blíður. Michael varp öndinnL
Þetta hljómaði eins og svanasöngur ........
SÖGULOK.
50 VIICAN 3-tbL