Vikan - 06.02.1969, Qupperneq 8
Gólfdúkur — plast, vinyl og línóleum.
Postulíns-veggflísar — stærðir 7V2X15, 11x11 og 15x15 cm.
Amerískar gólfflísar — Good Year, Marbelló og Kentile.
Þýzkar gólfflisar - DLW.
Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baðgólfdúkur.
Málningarvörur — fró Hörpu hf., Málning hf. og Slippfél. Rvíkur.
Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi.
Fúgavarnarefni — Sólinum, Pinotex.
Silicone — úti — inni.
Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung.
Vinyl veggfóður — br. 55 cm.
Veggfóður — br. 50 cm.
V._________________________________________________________________________________________^
ALGJÖRLEGA
yPHy SJÁLFVIRK
Staðgreiðsluverff
kr: 19.700.oo
Afborgunarverð
kr: 20.350.oo
10 ÞVOTTAKERFI:
1. SuSuþvottur, mJöR óhrelnn (me8
forþvotti).
2. Sufluþvottur, venjuleeur (án for-
þvotts).
3. Mlslltur þvottur (sufluþollnn)
(bómull, léreft).
4. Gerfiefnl — Nylon. Dlolen. o. þ. h.
(án þeyUvlndu).
5. Mislitur þvottur (þollr ekkl suflu)
(án þeyUvldnu).
6. Mlslltur þvottur (ekkl lltfastur).
1. Viflkvæmur þvottur (Acetate, Per-
(án þejtlvindu).
8. Ullarefnl (ksldþvottur).
9. Skolun.
10. Þeytlvlnda.
VESTURGÖTU II
S/M/ 19294
DRAUMUR UM
BLÖÐ OG DAUÐA
Kæra Vika!
Eg ætla að biðja þig að
ráða fyrir mig draum, sem
mig dreymdi fyrir stuttu.
Mig dreymir mjög sjaldan,
svo að ég muni, og ég man
aldrei nema hrafl úr
draumunum. En þessi
stendur mér svo augljós-
lega fyrir hugskotssjónum,
að ég hef ekki frið fyrir
honum.
Mig dreymir, að ég sé
háttuð og lögzt upp í rúm.
Þegar ég er þúin að liggja
dálitla stund, rís ég upp og
fálma eins og af rælni upp
í höfuðið á mér. Finn ég
þá, að fyrir ofan ennis-
beinið er eitthvað gljúpt,
sem lætur undan, þegar ég
ýti á það. Eg finn mikið
til, þegar ég kem við þetta
einkennilega sár og hníg
niður. Eg hugsa með mér:
— Eg veit vel, að ég er
að deyja. En ég vil það
ekki. Mig langar svo til að
lifa.
Þá rís ég upp og hrópa
á systur mína, en ég er til
heimilis hjá henni. Eg
hrópa af öllum lífs og sál-
ar kröftum, en enginn
heyrir til mín. Samt veit
ég, að hún, mógur minn,
bróðir og annar strákur,
sem ég cr mjög hrifin af
og hef verið með, eru
frammi. Þessi strákur
þekkir þau hins vegar
ekki neitt og hefur aldrei
komið á heimili systur
minnar. Loks kemst ég út
ú.r rúminu og slaga fram,
en þá finnst mér munnur-
inn á mér fyllast blóði. En
rétt áður en ég fer inn í
herbergið, þar sem mér
finnst þau vera, fer ég
með hendina upp í mig og
nudda blóðinu út um and-
litið og hugsa um leið:
— Það er bezt að ég
geri hann hræddan.
Eg átti þarna við strák-
inn, sem ég er hrifin af.
Síðan fer ég inn, en þá
er systir mín ekki þar. Eg
hrasa á miðju gólfi og dett
ofan á mág minn. Hann
reisir mig upp og segir:
— Nú, það er bara svona!
Það er bara svona!
Hann sagði þetta mjög
hæðnislega.
Að svo búnu vakna ég,
Draumlynd.
Þetta er sannkölluð
hrollvekja. Yfirleitt er
blóð talið tákna mótlæti
og erfiðleika, og líklega er
um eitthvað slíkt að ræða
í þessum draumi, þótt
hann boði alls ekki eins
slæm tíðindi og ætla
mætti í fljótu bragði. Við
mundum telja, að sárið,
sem þú þreifar á í upphafi
draumsins, tákni ómerk
loforð. Þegar mann dreym-
ir hins vegar, að maður sé
að deyja, getur það tákn-
að velgengni í ástarmál-
um, svo að útlitið er alls
ekki svo slæmt. Líklega
táknar því draumurinn í
heild, að þú verðir fyrir
einhverjum óþægindum og
mótlæti á sviði ástamál-
anna, sem þú tekur þér
mjög nærri og miklar
fyrir þér. En það rætist
fljótt úr þessu og kemur í
ljós, að erfiðleikamir eru
aðeins stundarfyrirbæri.
BROSANDI
MYND
Kæri draumrá'ðandi!
Nú langar mig til að
biðja þig að ráða fyrir mig
draum, sem mig dreymdi
núna fyrir stuttu síðan. —
Hann er þannig:
Mig dreymdi, að ég var
að skoða mynd, sem mér
var send. Hún var af karl-
manni. Mér fannst mynd-
in ekki nógu lík honum og
var ekki ánægð með hana.
Þá fer myndin allt í einu
að brosa, og þá finnst mér
hún vera alveg eins og
maðurinn er. Þá kannaðist
ég vel við hann.
Virðingarfyllst,
Ein sem dreymir mikið.
Þessi draumur er hag-
stæður og boðar áreiðan-
lega gott. Að dreyma
mannamyndir er yfirleitt
fyrir farsælum ástum, en
landslagsmyndir boða hins
vegar ferðalög.
8 VIKAN 6- tbl-