Vikan - 06.02.1969, Side 15
Hin nýja, stóra og- innihaldsmikla hljómplata Bítlanna hefur hlotið
hinar ágætustu viðtökur, þrátt fyrir þá gagnrýni, sem fram hefur
komið, að mörg laganna á plötunum tveimur séu aðeins til uppfyll-
ingar. Innan um eru þó mörg ágætis lög, og hafa sum þeirra náð
miklum vinsældum, eins og t. d. „Obladí-oblada“. Margar hljóm-
sveitir hafa gefið þetta lag út á tveggja laga plötu, m.a. skozka
hljómsveitin Marmalade, og komst útgáfa hljómsveitarinnar ofar-
lega á blað á brezka vinsældalistanum. Þrátt fyrir hið háa verð
bítlaplötunnar (hún kostar hér rúmlega níu hundruð krónur), hef-
ur hún selzt hérlendis í stórum stíl, og var salan hvað örust fyrir
jólin. Plötunni fylgja stórar litmyndir af Bítlunum, og fjöldi lítilla
mynda á stórri örk, og þar á ofan fylgja með allir söngtextar á
plötunni. *
Hljómsveitin Jethro Tull hefur látið nokkuð að sér kveða í Bret-
landi að undanförnu. Fjórir kostulegir náungar skipa þessa hljóm-
sveit, og er söngvarinn, Ian Anderson, með kynlegri kvistum,
sem komið hafa fram á sjónarsviðið um langt skeið.
Jethro Tull leika einkum blús músik og hafa sent frá sér plöt-
ur í þeim anda, og komst ein slík á vinsældalistann fyrir skömmu.
Þeir félagarnir eru mjög snjallir hljóðfæraleikarar, en aðalspraut-
an er Anderson, sem til skiptis syngur og spilar á þverflautu —
og gerir jafnvel hvort tveggja í einu! Anderson klæðist gömlum
og snjáðum, skósíðum frakka, hárið nær langt niður á herðar og
þyrlast í allar áttir, þegar hann hoppar á sviðinu. Hann lítur
sannarlega út fyrir að vera um fimmtugt en er í verunni á unga
aldri, sem og hinir félagar hans í hljómsveitinni. A myndinni sem
fylgir hafa þeir sett á sig gervi og líta því út sem öldurmenni.
e.tbi. yikAN 15