Vikan - 06.02.1969, Síða 32
AFTOKUR « CÖTIM 011
Víða um heim er nú um það talað, að lögreglan sé fullgróf í samskiptum sínum við annað fólk, og í Brasilíu að minnsta
kosti getur það átt við, ef til vill. Þar i landi er dauðarefsing ekki i gildi, en engu að síður hefur lögreglan í Rio de Janeiro
á sinum vegum sérstakan flokk vígamanna, sem stoltir nefna sig „Esquadrao da Morte“, liðssveit dauðans. Þessir garpar
iáta það yfirleitt ekki bregðast, ef þeir hitta afbrotamenn fyrir, að drepa þá á staðnum og stundinni, og verða fyrir því
jafnt morðingjar og slagsmálahundar og tiltölulegir meinleysingjar eins og bíla- og innbrotsþjófar. Varla líður sá dagur
að einn eða íleiri afbrotamenn falli ekki i valinn fyrir Dauðasveitinni. Sumum kann ef til vill að finnast hér gengið full-
hreint til verks, en að sögn er lögreglan í Rio de Janeiro svo vihsad af almenningi þar í borg, að með eindæmum þykir.
„Þetta er rétta leiðin til að losa almennilegt fólk við þetta pakk“, segja borgarbúar.
32 VIKAN 6- tbl-