Vikan - 06.02.1969, Page 36
NÚ ER AUÐVELT
IÐ ENDURNÝJA
ELDHÚSIÐ
HINGAÐ TIL
hafa slfkar endurbætur kostað mikið rask, sem margar hús-
mæður vilja hlífa sér við. Nú er allt breytt. Við tökum gömlu
innréttinguna niður og setjum upp nýja og nýtízkulega, inn-
flutta innréttingu — allt á tveim dögum. Við breytum ekki
heimilinu í trésmíðaverkstæði á meðan og þér undrizt, hvað
eldhúsið gerbreytirst, hvað íbúðin breytist og hvað störfin
verða ánægjulegri. Allar okkar innréttingar eru úr harðplasti
í miklu litaúrvali og þér getið fengið eldavél, uppþvottavél
og ísskáp frá sama framleiðanda. Verðið er mjög hagstætt.
HÚS OG SKIR Ármúli 5 - Símar: 84415-84416
V____________________________________________________)
Einu sinni var
Framhald af bls. 13.
— Hversvegna spyrð þú á
þennan hátt. Var það mér að
kenna að samband okkar fór út
um þúfur?
— Nei, nei, við skulum ekki
vera að vekja upp gamla drauga.
En guð minn góður, hve lengi ég
var að átta mig á því að ég var
búinn að missa þig. Eg gat ekki
skilið að þú skildir yfirgefa mig.
Hann hafði elskað hana, eins
og hún hafði elskað hann, og
honum fannst að hann gæti gert
allt fyrir hana, en þó vissi hann
að hann gat ekki haldið henni
lengur en hún vildi sjálf.
Dagurinn, sem hann hafði ótt-
azt frá fyrstu stund, kom honum
á óvart. Hún kom upp á herberg-
ið hans á stúdentagarðinum, þar
sem hann sat innan um bækurn-
ar, sem hún sagði að hann tæki
umfram hana. Hún sagðist ætla
að giftast Georg Chinet, vel stæð-
um kaupsýslumanni, sem auð-
vitað gat boðið henni meira en
Maurice, sem ekkert átti, nema
ást sína.
Hann gat ekkert gert, og sorg-
in var svo sár, að hann hélt að
hann gæti aldrei afborið hana.
— Fyrirgefðu, sagði hún nú,
tíu árum síðar, — en ég gat ekki
að því gert. Hún leit á hann, og
svipurinn í undurfögrum augun-
um var óræður. — Ert þú ham-
ingjusamur með konu þína?
spurði hún.
— Já, sagði hann. — En, þú ert
þú hamingjusöm?
— Já, auðvitað er ég það, sagði
hún, og röddin lýsti óþolinmæði.
— Er konan þín ung og falleg?
— Hún er ung og í mínum
augum er hún mjög fögur, og það
dugar mér?
— Elskarðu hana? spurði hún,
og það var ekki laust við að rödd
hennar titraði.
— Ég er kvæntur henni, sagði
hann stuttaralega.
— Fyrirgefðu hvað ég er
heimsk, að spyrja svona og
spyrja, sagði hún, og sneri sér
snöggvast frá honum, og sólin lék
um mjúka lokkana, sem sáust
undan hattinum, dúnmjúkir og
gullnir, og eitt augnablik svim-
aði hann, hann mundi hvernig:
hnakki hennar hvíldi mjúklega í
lófum hans, fyrir mörgum árum.
Tíu ár, hugsaði hann, gat það
verðir svo langur tími? Þá hafði
hún hitt George Chinet, og kom-
izt að því hvað hann gat boðið
henni upp á af þessa heims gæð-
um. Hún, sem alltaf hafði þurft.
að spara og aldrei haft ráð á
nokkrum hlut. Hún treysti sér
ekki til að bíða eftir Maurice,
enda vissi guð einn hve langt.
það yrði, þangað til hann fengi
sómasamlega atvinnu. Og George
var líka eldri og þroskaðri, og
ekki eins þrjózkur og Maurice,
hann lét allt eftir henni. Var það
svo undarlegt að hún fengi áhuga
á George og yrði með tímanum
hrifin af honum, en auðvitað
voru þær tilfinningar allt aðrar
en þær sem hún hafði borið til
Maurice....
— Ég hefi oft hugsað um þig,
sagði hún og sneri sér beint að
honum. — Ég hefi verið að hugsa
um hvernig gengi hjá þér, hvar
þú værir búsettur....
— Og nú veiztu það, sagði
hann brosandi. — Já, mér geng-
ur sæmilega, þótt ég hafi ekki
von um að verða mjög auðugur
af þessa heims gæðum. Það fer
svo mikið eftir því hverju mað,-
ur hefir áhuga á. Ég hefi aldrei
haft áhuga á því að græða pen-
inga, ég er ánægður með það sem
ég hef.... Og George gengur
auðvitað vel?
— Já, sagði hún.
Hún rétti út hendina til að taka
sígarettu úr veskinu, sem lá á
borðinu. Hendin var svo ótrúlega
grönn og fíngerð, virtist varla
valda stóra rúbínhringnum. Hann
leit út fyrir að vera mjög verð-
mætur og hann hugsaði: Þú ert
auðvitað ánægð nú, Marianne.
Sér til mikillar undrunar gat
hann nú hugsað svona án beiskju.
Og nýrri hugsun skaut upp í
kollinum á honum: Hvað hafði
hann eiginlega ásakað hana um
í öll þessi ár?
Hann hafði kviðið fyrir þessu
augnabliki, þótt sú tilfinning
dofnaði auðvitað nokkuð með ár-
unum. Það hafði verið verst, já,
jafnvel óbærilegt í fyrstu. Hún
hafði hreinlega tekið með sér trú
hans á ástinni og konum, ein-
faldlega rænt hann gleðinni.
Jafnvel þegar hann hafði að lok-
um lokið prófinu, gat hann ekki
fundið til gleði, því hvað átti
hann að gera við siíkt, þegar
hann hafði misst Mariönnu ...?
En svo varð það vinnan sem
færði honum gleðina á ný. Hann
vann mikið til að gleyma, og
einn góðan veðurdag hafði hon-
um líka tekizt það. Hann vakn-
aði smám saman til lífsins, gleð-
innar, og hann gat farið að hlæja
og umgangast konur. Hann
gleymdi Marianne, eða að
minnsta kosti plágaði hugsunin
um hana hann ekki eins mikið.
En stundum hafði það flogið fyr-
ir í huga hans, hvernig honum
myndi verða við, ef hann hitti
hana óvænt... hvað myndi þá
ske?
Og hvað var það sem nú hafði
skeð? Hann gat ekki gert það
upp við sig, tilfinningar hans
voru eitthvað blandaðar, svolítil
angurværð, sárindi (hvers-
vegna?), og tómlæti. Hann vissi
ekki hvað af þessu var ríkjandi.
Það var að minnsta kosti ekki sú
tilfinning, sem hann hafði gert
.sér í hugarlund og stundum
dreymt um, og þó gat þetta svið
ekki verið kjörnara til átaka, —
hálftómur bar á eyðilegri flug-
.stöð, og þau eiginlega einu mann-
eskjurnar.
— Verður þú lengi í Nizza?
spurði hann.
— Ég veit það ekki. Það er
svo eriftt að ákveða það, þú veizt
að ég á yfirleitt erfitt með að
taka ákvarðanir. Ég tek því sem
að hendi ber, ákveð aldrei neitt
fram í tímann. Hún leit á gull-
úrið. — Vélin mín hlýtur að fara
bráðum, sagði hún.
Rétt í því var kallað upp núm-
er vélarinnar.
— Ég verð að fara, sagði hún
og stóð upp. Ljúft bros breiddist
yfir andlit hennar. Þetta var
greinilega dekruð kona, sem
brosti við fyrrverandi elskhuga
sínum, það var einskonar afsök-
un í augnaráðinu, eins og smyrsl
á sárið.
Svo tók hún töskuna sína.
Maurice stóð líka upp, tók um
olnboga hennar, leit niður til
hennar, og hugsaði með sér hvort
hún ætlaðist til að hann kyssti
hana á kinnina. En honum sýnd-
ist að hún væri kominn með hug-
ann allan til Nizza, langt í burt
frá þessum óvænta fundi þeirra.
— Líði þér vel, sagði hann.
— Sömuleiðis, sagði hún og
leit á hann andartak, áður en hún
gekk til dyranna.
f hverfihurðinni hafði hún
næstum rekizt á dökkhærða, sól-
brúna og grannvaxna stúlku.
Stúlkan hljóp til Maurice. —
Er ég of sein? Ertu búinn að
bíða lengi?
— Nei, sagði hann, — en ég
var næstum búinn að gleyma til-
veru þinni. Hún hló, því hún
vissi að það var ekki ögn af
sannindum í því sem hann sagði.
— Sjáðu mig, sagði hún og
sneri sér í hring. — Hárgreiðslu-
meistarinn er ábyggilega ekki
með réttu ráði, hann vildi endi-
lega klippa mig svona. Hann
sagði að þessi klipping væri sú
eina sem hæfði andliti mínu.
Hvað finnst þér?
— Mér finnst þetta ágætt,
sagði hann og strauk hendinni
blíðlega um hár hennar.
Hann kallaði til þjónsins og
bað um drykk handa þeim báð-
um, og þegar glösin voru komin
á borðið skálaði hann við hana.
— Eftir tvo klukkutíma erum
við komin heim, sagði hún.
Framhald á bls. 41.
36 VIKAN 6 tbl-