Vikan - 06.02.1969, Side 47
um fiski, (ýsu eða flatiiski)
eru hreinsuð og skorin í
stykki. Sjóðið soðkraft af
haus, beinum og þunnildum.
Fiskstykkin núin með salti.
1% 1 fisksoð, 2 tsk. salt, 3
meðallaukar, skornir í bita,
1 lárviðarlauf er látið sjóða
saman í 7—8 mín.
Fiskbitunum bætt í, látið
sjóða á lágum straum í ca.
10 mín.
Bragðbætt með dálitlu
karry og salti. Þá er 1 litlum
pakka af rækjum bætt í og
1 dl af þeyttum rjóma.
Súpan borin fram rjúkandi
heit og ristað brauð eða smá
franskbrauð með.
FLJÓTGERÐ FISKSÚPA
1 rifinn laukur er látinn
krauma í ca. 2 matsk. af mat-
arolíu eða smjörl.
3 matsk. af hveiti er stráð
yfir og 1 líter af vatni bætt í
smátt og smátt, hrært vel í
á milli, saltað eftir smekk. Þá
er ca. 250 gr. af beinlausum
fiski (má vera frosinn) bætt
í og látin koma upp væg suða
í nokkrar mínútur. Nú má
bæta í frosnu eða niðursoðnu
grænmet svo sem lítilli dós
af blönduðu grænmeti. Soðið
dálítið lengur. Salti bætt í ef
með þarf og lítið eitt af pap-
riku stráð yfir.
Borin fram vel heit með
smábrauðum eða hrökk-
brauði.
Eins og sjá má af framan-
töldum súpimppskriftum er
oft borið brauð með súpum,
þá er oft átt við þurrt brauð,
en ef notað er smurt brauð
með einhverjum áskurði, verð-
ur úr þessu fullkomin, létt
máltíð. Nota má vitanlega
hverskonar brauð, en hér er
oftast átt við franskbrauð eða
heilhveitibrauð, þá eru smá-
brauð líka vinsæl svokölluð
rundstykki og hamborgara-
brauð. Og hér koma nokkrar
uppástungur.
Bahavia er sundurskorið
smábrauð, báðir helmingar
smurðir, á neðri hlutann er
lögð mjúk skinkusneið og þar
ofan á látnar bananasneiðar,
efri hlutinn lagður yfir.
Calypso: eru hveitbrauð-
sneiðar, sem skorpan hefur
verið skorin af, síðan smurð-
ar með osti, þá með appel-
sínumarmelaði og næst góðu
lagi af bananasneiðum.
Soldámar. Reynið fiansk-
brauðsneiðar, fyrst smurðar
með smjöri, síðan vænar ost-
sneiðar látnar ofan á, á aðra
er svo stráð smátt skornum
döðlum og lokað með osta-
brauðsneið.
Brosandi land. Sundurskor-
ið smábrauð smurt með
smjöri, ofan á er góð pylsa
eftir smekk og efst vænt lag
af osti.
Sólargeisli. Smábrauð,
smurt og sundurskorið. Ofan
á er eftirfarandi eggjahræra. 1
egg er þeytt vel í froðu, 1
matsk. af smáskornum lauk
látið saraan við, þá smá-
skornu reyktu kjöti (ca.
2 matskeiðar), salt og
pipar eftir smekk og að síð-
ustu tveim matsk. af rnjólk
blandað varlega samanvið.
Látið á smurða pönnu og lát-
ið hlaupa saman við fremur
vægan hita. Hræruna má láta
eina sér á brauðið eða ofaná
sneiðar af allskonar köldu
kjöti.
Margskonar matarafganga
má nýta ofan á brauð, svo
sem steiktan fisk og þá með
ofurlitlum majones eða súrs-
uðu grænmeti. Kjötbollur
sneiddar þunnt og þar ofaá
ofurlítið af majones hrært
með sinnepi, jafnvel kaldar
sneiddar kartöflur ásamt
vænni ostsneið er afbragð of-
aná rúgbrauð.
8. tbi. VIKAN 47