Vikan - 06.03.1969, Blaðsíða 10
VIKAN - KARNABÆR
HVERS EÐLIS ER
KEPPNIN?
Eins og öllum er kunnugt, er tilgangur
keppninnar að benda á kosti og getu ungu
kynslóðarinnar, og velja henni fulltrúa, sem
geti verið tákn og fyrirmynd ungs fólks.
Ekki er til þess ætlazt, að lesendur VIK-
UNNAR eða gestir á Vettvangi unga fólks-
ins greiði atkvæði um keppendur, heldur
mun dómnefnd velja fulltrúa unga fólksins,
hafandi einkum þrennt í huga:
1. Persónuleika. Þar er tekið tillit til
framkomu, hegðunar og menntunar, og er
þá fleira talið til menntunar en bókamennt
úr skóla.
2. Hæfileika, sem hægt er að sýna. Ungt
fólk nú á dögum hefur tækifæri til að þroska
hæfileika sína langt fram yfir allar aðrar
kynslóðir þessa lands. Til þess bera að taka
tillit.
3. Fegurð. Ekki er til þess ætlazt, að
stúlkurnar komi fram sem „pin up“ dísir,
heldur klæddar samkvæmt tízku tímans og
séu sem eðlilegastar og frjálslegastar í fasi.
VETTVANGUR
UNGA FULKSINS
Að kynningu í Vikunni lokinni, koma stúlk-
urnar fram á skemmtun í Austurbæjarbíói,
og er þegar hægt að panta miða í Karnabæ.
Á þessari skemmtun mun eingöngu koma
fram ungt fólk og sýna, hvað í því býr, og
þar verður pafnframt tízkusýning. Ástæða er
til að undirstrika, að skemmtunin verður að-
eins EIN að þessu sinni. Þar munu vinsæl-
ustu hljómsveitir unga fólksins koma fram,
svo sem Hljómar, Flowers, Roof Tops og ef
til vill fleiri, og ÞAR VERÐUR ÚRSLITUM
KEPPNINNAR LÝ'ST.
10 VIKAN 10-tbJ'
i