Vikan


Vikan - 06.03.1969, Side 17

Vikan - 06.03.1969, Side 17
Hunt á nú gífurlegar olíulindir, bæði í Texas og Austur- löndum nær. Ilann á líka beitilönd, sem eru yfir 200 milljón dollara virði, geysimikla skóga, appelsínuekrur og niðursuðu- verksmiðjur. Hunt er svo ríkur, að árið 1965 v’ar hann að leika sér að þeirri hugmynd að kaupa Suez-skurðinn. Auðvit- að áttu Egyptar að ráða yfir skurðinum, en hann vildi fá olíulndirnar á skurðbökkunum ...... H. L. Hunt er ákaflega nízkur. Börnin hans firnrn hafa orðið að vinna í fimm ár hjá ýmsum fyrirtækjum, undir dulnefni, og síðan orðið að sjá fyrir sér sjálf. Hann dekrar heldur ekki við eiginkonu sína. Hún var einkaritari hans, og hann lokkaði liana hvorki með loðfeldum eða skartgripum. — Okkur kemur prýðilega saman, segir hann. — Við erum bæði húsleg, og komumst ágætlega af, án þjónustufólks .... NUBAR SKIAS GULBENKIAN „Herra fimm-prósent“, 72 ára Vitið þið liversvegna liann gengur með alskegg? — Tími minn er of dýrmœtur til að eyða honum í rakstur, segir hann Þjónninn er með hvíta hanzka þegar hann framreiðir morgunverð fyrir Nubar Skias Gulbenkian. Morgunverður- inn er ristað brauð, soðin egg, skinka og rússneskur kaviar, sem hafður er á ís, og þetta kostar um það bil 1200 krónur. Gulbekian hefur vel ráð á þessu, því að á þeim hálftíma, sem hann eyðir til morgunverðar, græðir hann 145.000 krónur. Tekjur hans á sólarhring eru um 7 milljónir. Gulbenkian erfði eftir föður sinn hin marg umtöluðu fimm prósent í „Iraq Petroleum Company“. Hann hefur líka erft finnn prósent heitið eftir föður sinn Calouste. Hver líter af af jarðolíu gerir þennan skrítna auðkýfing ennþá ríkari. En Nubar Gulbenkian, sem er fæddur 2. júní árið 1896, barnabarn harðstjóra í Ivadiköy í Armeníu, slær ekki hendinni á móti kavíar. Ilann lærði af föður sínum að halda sig að vinnunni, og það er það sama og að auka við milljónirnar. Gulbenkian fór fyrst að stórgræða, þegar hann vann á skrifstofu föður síns, við bréfaskriftir. Hann seldi Suður- Amerísk hlutabréf og græddi 100.000 sterlingspund. Það eina sem faðir hans sagði var: — Ef þú hefðir beðið svolítið, þá hefðirðu fengið þrjár eða fjórar milljónir sterlingspunda. Gulbenkian býr á landsetri í Iloggeston, í nýtízkulegri skrautíbúð nálæg't Ritz hótelinu í London. Hann segir oft: — Ég á meiri peninga en ég get notað. Þessvegna á ég hvorki börn né nokkur áhugamál. En raunar hefur hann mörg og peningafrek áhugamál. Fvrsta ástríða hans er bílar. Hann á Mercedes Benz 600, sem hann hefir kostað miklu upp á; látið klæða hann að innan með hvítu skinni, sett á hann glerþak, bar, kæliskáp, sjón- varp og auðvitað líka síma. En Gulbenkian hefur íneira gaman að aka í Austin, sem hann lét gera eins og gamal- dags leigubíl, og kostaði það geysilega mikið fé. Ástríða númer tvö: Að fara I mál út af smámunum. Einu sinni fékk hann 1.600 krónur í skaðabætur frá BBC, fyrir eitthvað sem liann kærði. Málskostnaður var um 200.000 krónur og hann borgaði það án þess að blikna. Ástríða númer þrjú: Hann hefur mikla ást á góðum mat, sérstaklega kavíar. Hann hefur einu sinni sagt blaðamanni ástæðuna fyrir því að hann hefur svo mikla ást á kavíar. Ilann sagði: — Ég var sextán ára og lenti í stríði við föður minn. Ég flýtti mér til Hamborgar, og lifði á 60 mörkum á mánuði. Ég hélt þetta út um hríð. Dag nokkurn kom gamli heimilis- kennarinn minn og bauð mér að borða með sér. Við fengum fyrst kavíar, og þá bráðnaði stolt mitt eins og smjör í sól, og ég flýtti mér heim til kjötkatlanna. Fjórða astríðan er veiðar. Hann segir að það sé frá þriðju konu sinni, Maríu, sem hann kynntist við veiðar, árið 1984. Þau voru þá bæði öðrum bundin, og giftust ekki fyrr en 14 árum síðar. Nubar var fvrst kvæntur spænskri dansmey, Heminiu, síðan Doré, sem sá um spilabanka í Cannes. Hann hefur haft álmga á konum síðan hann var sextán ára. Hann hefur alltaf dengt orkideum i elskurnar sinar, en — eins og aðrir Austurlandabúar, krafizt undir- gefni. Raunar má segja að konur hafa verið ástríða hans númer 1. En þriðja konan hans, sem var dóttir franska „kampa- vínskóngsins*’ Louis d’Ayala, sá til þess að þessi mikli mun- aðarseggur varð sæmilegur eiginmaður. En Gidbenkian er nú farinn að róast: — Maður er ekki lengur ungur, segir liann og dæsir...... DAVID ROCKEFELLER, banka- og hlutafjáreigandi, 53 ára Hann hefur herbergi fullt af stálkössum, en þeir eru elcki fullir af gulli eða skartgripum, lieldur innv- lialda þeir 40.000 bjöllur Ef það kemur maður með lítinn pakka, vafinn snærum, til að finna bankastjórann við næst stærsta banka Bandaríkj- anna, þá vita stúlkurnar þrjár, sem sitja í móttökuherberginu, hvað þessi pakki inniheldur, það eru dauðar bjöllur. David 10. tbi. vikAN 17

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.