Vikan


Vikan - 06.11.1969, Blaðsíða 3

Vikan - 06.11.1969, Blaðsíða 3
31. árgangur - 45. tölublaS - 6. nóvember 1969 I NÆSTU VIKU í sumar kom í dagbiaðinu Verden í Skien í Noregi viðtal og myndir af islenzkum stúlkum, sem voru við bústörf á norskum bóndabæ. Þær heita Helga Jóns- dóttir, 15 ára, og Sigríður Jóhannsdóttir, 16 ára, báðar úr Mosfellssveit. Þær undu sér hið bezta í norskri sveitasælu, og við segjum frá dvöl þeirra i næsta blaði. Lyndon Johnson er setztur i helgan stein og hljótt hefur verið um hann, síðan hann lét af hinu háa embætti forseta Bandarikjanna. Hvernig skyldi hann verja dögunum núna í ellinni? Það segir frá því í grein, sem heitir: „Nú er Johnson aftur orðlnn bóndi í Texas". Hann segir þar, að hann njóti lífsins i fyllsta máta og sé feginn að hafa fengið að varpa af sér oki ábyrgðarinnar. Nú er Olof Palme orðinn forsætisráðherra Sviþjóðar. Hann verður liklega aldrei föður- legur stjórnandi á þorð við fyrirrennara hans, enda er ekki lengur f tízku að vera föðurlegur. Unga kynslóðin kærir sig ekki um slíkt. Við birtum hugleiðingu um Palme eftir sænskan blaðamann og ótal myndir af honum og fjölskyldu hans. 1 ÞESSARI VIKU Fyrsti ríkisráðsfundur þessa árs var haldinn nokkru áður en þingið kom saman. Ljósmyndari blaðsins var staddur fyrir utan ráðherrabústaðinn, þegar forseti Islands og ráðherrarnir gengu hver á fætur öðrum út úr húsinu að fundinum loknum. Við birtum þessar skemmtilegu myndir í næsta blaði af mönnunum, sem bera þunga ábyrgðarinnar á herðum sér. í þessu blaði hefst ný framhaldssaga i staðinn fyrir „Kvöldið fyrir brúðkaupið", sem lauk í siðasta blaði. Nýja sagan heitir „Húsið með járnhliðunum". Hún segir frá ungri skrifstofustúlku, sem orðin er leið á sjálfri sér og lífinu. Hún ræður sig samkvæmt auglýsingu í blaði til að gæta barns i gömlu húsi niður við strönd. Fyrr en varði dregur til tiðinda, og sagan er spennandi frá upphafi til enda. Tunglfararnir halda áfram að segja frá hinni frækilegu ferð sinni. Síðastur í röðinni er Collins, sem hafði það örðuga verkefni með höndum að svífa einn umhverfis tunglið, á meðan félagar hans stigu fyrstir manna fæti á mánagrund. Collins segist alls ekki hafa verið einmana, því að honum líki jafnan bezt að fljúga einn. í FULLRI ALVORU EM auolýsino í niObæHum Hér á landi hefur löngum orðið vart ótta við erlend áhrif. Skemmst er að minnast Keflavíkur- sjónvarpsins, þegar allir helztu andans menn þjóðarinnar bundust samtökum og vöruðu við spiilandi áhrifum þess á tunguna og þjóðernið. Sá ótti er nú af flestum talinn hafa verið ástæðu- litill. Þó ber ekki að vanmeta árvekni hinna ágætu manna, því að herferð þeirra flýtti tví- mælalaust fyrir tilkomu íslenzka sjónvarpsins, sem nú þykir sjálfsögð og ómissandi stofnun. LjósaskiIti eru eitt af fyrirbærum nútímans, sem setja svip sinn á sérhverja borg að nætur- lagi. Segja má, að þau séu andlit borgarinnar, sérstaklega gagnvart útlendingum. Nokkur lit- skrúðug skilti prýða Reykjavíkurborg, og nýlega hefur eltt bætzt við í hjarta bæjarins: á veggn- um á húsi Nýja bíós, sem blasir við sýn frá Lækjartorgi. En þetta skilti er óvenjulegt að því leyti, að það er ekki á íslenzku heldur ensku. Það er i hæsta máta ósmekklegt að sjá þetta skilti tróna yfir bæinn, og getur orðið hættulegt fordæmi, ef það fær að vera þar áfram. Hæg- lega gætu fleiri aðilar komið á eftir, og fyrr en varði væri þá annaðhvert skilti í bænum á ensku. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa, að aug- lýsingar erlendra aðila séu á tungu viðkomandi þjóðar. Hvort sem slíkar áletranir hafa áhrif á tunguna eða ekki, skiptir það í sjálfu sér ekki höfuðmáli. Mestu varðar, að borgin okkar sé ís- lenzk, og allur svipur hennar í samræmi við það. G. Gr. VIKAN Útgefandi Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson og Ómar Valdintarsson. Útlitsteikning: Halldóra Halldórsdótt- ir. Auglýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir. — Rit- stjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skip- holti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf: 533. Verð í lausasölu kr. 50.00. Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir 26 tölu- blöð missirislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: Nóvember, fcbrúar, maí og ágúst. 45. tbi. VIKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.