Vikan


Vikan - 06.11.1969, Blaðsíða 8

Vikan - 06.11.1969, Blaðsíða 8
f KJOLA- EFNI.. LAUGAVEGI 59 SÍMI 18647 /----------------------------------N VIÐARÞILJUR í miklu úrvali. * Viðartegundir: eik, askur, álmur, beyki, lerki, fura, valhnota, teak, mansonia, caviana. IíARÐVIÐUR og Þilplötur, ýmsar tegundir. PLASTPLÖTUR, Thermopal, ýmsir litir. * Harðviðarsalan sf. Þórsgötu 14, símar 11931 og 13670 v__________________________________y MIG DREYMDI Trúlofuð eftir eins dags kynni Kæra Vika! ,Mig langar til að þakka þér allt gamalt og gott. Ég kaupi alltaf Vikuna og mér finnst hún alveg fyrirtak. Ég ætla að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem mig dreymdi nýlega. Hann er reynd- ar óskýr, en samt langar mig til að fá ráðningu á honum: í Ég var á gangi á götu í Reykja vík, nánar tiltekið Laugavegi. Ég var með strák, sem var fjarska sorgmæddur. Ég hafði aldrei séð hann fyrr. Hann var að leita að kærustunni sinni, en hún vildi ekkert hafa með hann að gera, að því er hann sjálfur sagði. — Hann var með trúlofunarhring. Þegar við vorum að leita að stelpunni, hitti ég eina af mín um beztu vinkonum. Hann varð strax hrifinn af henni og vildi láta vel að henni, en hún vildi hins vegar með engu móti þýð ast hann. Við gengum og gengum. Við komum heim til hans, en þá bregður svo undarlega við, að ég og þessi ókunni strákur erum allt í einu trúlofuð. Hann notaði sinn gamla hring, en ég sneri einum af mínum gullhringum við, svo að hann leit út eins ig trúlofun- arhrignur. Ég hugsaði með mér: „Jæja, við erum bara trúlof- uð! Og samt höfum við ekki þekkzt nema í einn dag!“ En við vorum mjög ánægð og hamingjusöm. Ég vona, að þú getir ráðið þennan draum fyrir mig, þótt hann sé svolítið ógreinilegur. Með fyrirfram þökk fyrir ráðn- inguna. S. B. (16 ára). Þessi draumur ætti að tákna, að þú muuir brátt mælast til eða fá tilmæli um að bindast með hjóna- band fvrir augum. En þar sem bú ert ekki nema sextán ára, þá er Hklegra, að draumurinn tákni aðeins svolítið ástarævintýri, sem gerist mjög óvænt. Full tungl Kæri draumaþáttur! Draumurinn, sem mig langar til að skýra frá, er mér minnis- stæður, vegna þess hve skýr hann var og fallegur. Hann gerist á bernskuslóðum mínum, en ég er fæddur og upp- alinn í litlu þorpi á Vesturlandi. Þótt ég sé kominn nokkuð til ára minna nú, var ég ungur drengur í draumi þessum, og mér leið einstaklega vel. Það er einmitt þessi tilfinning vellíðun- ar og rósemi, sem ég hef ekki getað gleymt, ásamt myndinni, sem var bæði tilrík og falleg. Ég stóð niðri við bryggju og var að veiða. Við mér blasti fullt tungl, bjart og skært, og horfði ég heillaður á það, á meðan ég beið eftir að fiskur kæmi á krókinn minn. Það gerðist ekkert fleira í þess- um draumi, og ég hef verið að velta því fyrir mér, hvort hann geti staðið í sambandi við ferð- ina miklu til tunglsins og sé eins konar leifar af hugsunum mín- um í vöku um blessað tunglið og breytta afstöðu manna til þess, eftir að fyrstu mennirnir stigu fæti sínum á það. Mig langar að fá að heyra, hvert álit þitt er á þessu. Með kærri kveðju og þökk. Gamall þorpari. Það sem gerir drauma svo dular- fulla og skemmtilega er einmitt sú staðreynd, að engum hefur tekizt að komast til botns í þessu imdarlega fyrirbæri mannssálar- innar. Ein skýringin er á þá leið, að draumar séu áframhaldandi starfsemi hugans í svefni, og þeir séu svona einkennilegir, af því að hugurinn reiki stjórnlaust og án nokkurrar viðmiðunar eða leiðsögu. Þessi skýring er þó ekki nema brot af sannleikanum og engan veginn einhlít. En ekki er ráðlegt að hætta sér lengra út í hugleiðingar um eðli drauma, heldur reyna að ráða drauminn hór að framan sem fyrirboða, samkvæmt þeirri fá- tæklegu vitneskju, sem við er að styðjast. Og þú þarft engu að kvíða í þeim efnum. Að sjá bjart tungl og fullt í draumi er yfir- Ieitt talið vita á gleði, fé eða góða framtíð. Hins vegar er veiðimennska fyrir slæmu útliti í fjármálum. Ætli draumurinn tákni ekki, að þú eigir góð ár í vændum og hamingjurík, þrátt fyrir lítil efni. Svar til S. K. Þessi draumur táknar, að þú munir fá ágæta og virðulega stöðu á næstunni, — þrátt fyrir þína litlu menntun. 8 VIKAN 45-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.