Vikan - 06.11.1969, Blaðsíða 50
Lelkfang fyrlr alla ffölskylduna
216 spurningar
216 svör
Svarið er rétt,
þegar Ijósið
kviknar.
Heildsölubirgðir:
Páll Sæmundsson
Laugavegi 18 a — Símar 14202—14280
SÍIAK SÍBASf
EILÍFÐARFARÞEGI
Margur ítalskur járnbrautar-
starfsmaðurinn fékk kökk í háls-
inn þegar Saverio d’Ayala lézt
nýlega í Torino, 93 ára að aldri.
D'Ayala gekk undir nafninu ei-
lífðarfarþeginn“ í síðastliðin 20
ár hafði hann nefnilega búið, et-
ið og sofið í járnbrautarvögnum
á Ítalíu meðan þeir skældust
meira en 3 milljónir kílómetra
um það kræklótta land.
„Eilífðarþarþeginn“ er af vel
efnaðri sikileyskri fjölskyldu;
gerðist hann imgur diplomat, og
varð síðar meðlimur í ítalska
fulltrúaráðinu. Er fasistar náðu
völdum flúði hann land, en kom
aftur til ftalíu eftir stríðið. Þá
var fjölskylda hans farin á haus-
inn, en fulltrúaráðið veitti hon-
um örlítinn styrk til að draga
fram lífið og eins naut hann góðs
af góðum vinum sínum Auk
þessa átti hann sígildan járn-
brautarfarmiða síðan hann var
meðlimur þess ágæta fulltrúaráðs
sjálfur, og er hann var 73 ára hóf
hann undarlegan feril sem eilíf-
ur farþegi með ítölskum járn-
brautarlestum. Hann ferðaðist
alltaf á fyrsta farrými, fór af á
endastöð og beið eftir næstu lest.
Eini farangur hans voru nærföt
til skiptanna, tannbursti, rakvél
og frímiðinn eilífi. Vinir hans,
járnbrautarstarfsmennimir, sáu
um að koma til hans pósti og
öðru slíku — að ógleymdum
ávísununum frá fulltrúaráðinu.
VIET NAM MÓTMÆLI
Á Memorial Day, sem haldinn
er á hverju ári í Bandaríkjunum
til heiðurs þeim Ameríkönum,
sem hafa látið lífið í bardaga
fjrrir föðurlandið, komu saman
í ár hópur Bandaríkjamanna bú-
settir í London, og mótmæltu
stríðsrekstri Bandaríkjanna í
Viet Nam. Á spjöldunum stend-
ur: „Hve margra eigum við að
minnast til viðbótar?" Á meðan
sitja bandarískir diplomatar í
París og Washington og leggja
á ráðin ....
PÁFINN OG LEIKFÖNGIN
Á ráðstefnu sem nýlega var
haldin með leikfangaframleið-
umendum víðsvegar að úr Ev-
rópu var birt áskorun frá Páli
páfa 6., þess efnis, að leikföng
með hernaðarlegu sniði gætu
verið hættuleg börnum, þar eð
hann teldi þau hafa mikið upp-
eldislegt gildi. Olli áskorun páfa
miklum umræðum, og að lokum
var samþykkt ályktun þar sem
haldið var fram hinu gagnstæða.
☆
SKILNAÐARFARALDUR
í SOVÉT
Komsomol, æskulýðssamband
Sovétríkjanna, sem að sjálfsögðu
er þrælbundið flokknum eins og
annað þar í landi, hefur nú kraf-
ist þess að fólk, sem hyggur á
hjónaband, verði skyldað til að
vera trúlofað í sex mánuði áður
en það vippar sér í það heilaga.
Ástæðan til þess er að hjóna-
skilnuðum fer nú hraðfjölgandi
í Sovét. Blað æskulýðssambands-
ins segir til dæmis frá skötuhjú-
um, sem gengu í hjónaband á
laugardag en kröfðust skilnaðar
á mánudag.
LEIÐUR Á EGGJUM
Frú Elfriede Walter, í Singen
í Vestur-Þýzkalandi, gat ekki
matreitt neitt annað en egg. Tví-
tugur eiginmaður hennar, Júrg-
en, fékk því soðin egg í morgun-
verð, eggjahræru um hádegið, og
spæld egg í kvöldmat. Að lokum
gafst hann upp, og fór frá henni.
Á afmælisdegi dóttur þeirra
hjóna kom hann svo í heimsókn,
og var boðið að borða með þeim.
Sú máltíð endaði með því að
Júrgen skaut konu sína. Máltíðin
sem hún hafði framreitt, voru
spæld egg.
☆
Tveggja hreyfla japönsk
Beechcraft-flugvél, nauðlenti ný-
lega í kartöflugarði í Osaka. Eng-
in von var til að flugvélinni tæk-
ist að hefja sig aftur til flugs af
eigin rammleik, svo þyrla var
fengin á staðinn og fór hún með
relluna á næsta flugvöll. Það
fylgir sögunni, að flutningur
flugvélarinnar hafi aðeins tekið
hálfa klukkustund.
☆
Hvers vegna svanurinn er með
svona langan háls? Svo hann
drukkni ekki, þótt það komi flóð.
50 VIKAN 45 tbl-