Vikan - 06.11.1969, Blaðsíða 5
• vísur vikunnar
Illa margan manninn dreymir
er myrkrið þéttist allt um kring
og sjórinn rýkur, regnið streymir
og rithöfundar sitja þing.
Á ýmsa vegu auðnan skiptist
þó aldrei verði rök þess skýrð
og illa fleygur Andinn lyftist
við atóm gáfnaljósadýrð.
V___________________________________________________y
JET’AIME .... MOINONPLUS . . .
UNGUR
MÓTMÆLANDI
„Ég vil fá kennslukonu“ stend-
ur á skiltinu sem litla stúlkan
heldur á. Ástæðan fyrir mótmæl-
um þessarar ungu dömu er sú,
að er hún skyldi hefja nám í
barnaskólanum í Grenoble í
Frakklandi, var henni vísað frá
á þeirri forsendu að skólinn væri
yfirfullur. Foreldrar hennar mót-
mæltu líka — þau hertóku skóla-
húsið!!-
ENN LEITAR HANN
GULLSÍNS
Árið 1942 fann William Hutch-
inson, korpóráll, upp á því snjall-
ræði að grafa fulla kistu af stolnu
gulli og öðru dýrmætu djásni, í
jörðu niöur, og ætlaði hann svo
að grafa hana aftur upp eftir
stríðið — þegar heldur væri ró-
legra þarna á Ítalíu, en þar gerð-
ist þetta.
Svo gróf hann kistuna sína
ekki langt frá Manuta, á N.-
Ítalíu, og hafði kirkjuturn sem
leiðarvísi. En hann athugaði það
ekki, að þarna var mikil árásar-
hætta, enda varð sú raunin á, að
allt þarna í kring var bombar-
dérað og jafnað við jörðu.
Á hverju einasta sumri síðan
hefur Hutchinson farið til Ítalíu
til að leita að gullinu sínu. —
Kirkjuturninn er horfinn og hann
hefur ekkert til að ganga út frá.
Nú hefur hann fengið með sér
sex þaulvana málmleitarmenn —
enda lofað þeim helming gulls-
ins þegar það finnst. Ef það þá
f innst....
BRENNIVÍNSDAUÐINN
Samkvæmt skýrslum heilbrigð-
isstofnunar Sameinuðu þjóðanna
eru Frakkar drykkjumenn mest-
ir í heimi, eins og þeir hafa raun-
ar lengi verið. Árið 1965 drukku
yfir fimm þúsund og átta hundr-
uð fransmenn sig í hel, en „að-
eins“ rúmlega tvö þúsund sex
hundruð og fimmtíu Bandaríkja-
menn, um sex hundruð og þrjá-
tíu Vestur-Þjóðverjar, rúmlega
sex hundruð Japanir, þrjú
hundruð áttatíu og fimm ítalir
og áttatíu og tveir Bretar. — f
Rómönsku-Ameríku er drykkju-
skapur langmestur í Mexíkó;
þar létust yfir átján hundruð
manns úr ofdrykkju þetta ár.
Frakkar eru líka langhæstir ef
miðað er við dauðsföll á hver
hundrað þúsund íbúa, því að hjá
þeim nemur drykkjudánartalan
tólf af hverjum hundrað þúsund.
í Bandaríkjunum er samsvarandi
tala 1,4, og aðeins 0,1 í Bretlandi.
Þrátt fyrir allt það drykkjuorð,
sem af Skandínövum fer, eru
þeir á þessu sviði hrein smá-
menni á móti frönsurunum. — í
Svíþjóð er drykkjudauðinn að-
eins 0,9 af hundrað þúsund, 0,3
í Noregi og 0,2 í Finnlandi.
☆
CREAM
Nýlega kom á markaðinn
tveggja laga plata með hljóm-
sveitinni Cream, og heitir titil-
lag plötunnar „Badge“, en það
er af hæggengri plötu þessarar
vinsælu hljómsveitar. Þetta lag
er eftir Eric Clapton og George
Harrison, og leikur bítillinn á
gítar í þessu lagi.
Innan skamms er að vænta
nýrrar hæggengrar plötu frá
John Lennon og Yoko Ono og
verður hún í sama anda og
hljómplatan „Tvær jómfrúr“,
sem hneykslaði marga á sínum
tíma. Forráðamenn Apple hafa
látið svo ummælt, að kápumynd
á umslagi þessarar plötu muni
ekki særa fegurðarsmekk manna,
en sem kunnugt er birtust þau
hjúin strípuð utan á fyrri plötu
sinni. ýr
TUTTUGU OG FIMM
ÁRA ÞAKKLÆTI
Fjórir meðlimir dönsku gadda-
vírshljómsveitarinnar Teenmak-
ers sluppu nýlega frá fangelsis-
dómi í ísrael, en þar hafði þeim
verið gefið að sök að hafa reykt
hash. Undir venjulegum kring-
umstæðum fá þeir sem gerast
sekir um þetta tugthúsdóm, en í
þessu tilfelli var dönsku hljóð-
færaleikurunum sleppt.
Ástæðan var sú, að í síðari
heimsstyrjöldinni voru Danir
ákaflega hjálplegir þarlenzkum
Gyðingum, og komu þeim vel-
flestum yfir til Svíþjóðar þar
sem þeir voru óhultir. En skip-
anir höfðu þá komið frá Berlín,
og átti að safna öllum Gyðing-
um í Danmörku saman og reka
þá í gasklefana.
Um leið og dómarinn í Tel
Aviv bað að heilsa kónginum í
Danmörku, sagði hann við Teen-
makers: „Við ísraelsmenn eigum
dönsku þjóðinni mikið að þakka
síðan okkur var hjálpað svo vin-
samlega í heimsstyrjöldinni. Þess
vegna sleppið þið án nokkurrar
refsingar."
☆
Eins og sjá má þykir Jane
Birkin ekkert aðalatriði að klæða
af sér línurnar. En á þessari
mynd er hún ásamt vini sínum,
Serge Gainbourg, höfimdi lags-
ins Je t'aime.... Það lag hefur
lítið heyrzt leikið opinberlega
hér, enda útvarpsráð skipað
mætum mönnum. Og fyrir þá
sem ekki vita þá hefur lagið þó
örlítið í þá átt sem við viljum
kalla klúrt, — og auðvitað hef-
ur platan selzt stórkostlega vel.
Upphaflega var ætlunin að láta
Brigitte Bardot syngja kvenhlut-
verkið á plötunni, en hún neitaði
vegna þess að henni fannst það
ósmekklegt. Þá var Jane Birkin
fengin til þess og henni fannst
það ekki ósmekklegt: „Hefði
mér fundizt svo, hefði ég ekki
gert þetta, en ég hef ekki trú á
að nokkur andmæli þessu eða
hneykslist á því.“ f laginu heyr-
ast frygðarstunur kvenmanns,
ásamt fleiri kynjahljóðum.
45. tbi. VIKAN 5