Vikan


Vikan - 06.11.1969, Blaðsíða 47

Vikan - 06.11.1969, Blaðsíða 47
EFTIR ELISABETH OGILVIE Caroline Brewster var ung skrifstofustúlka og orðin leið á lífinu og sjálfri sér. Ástamál hennar höfðu farið út um þúfur, og hana langaði til að skipta um umhverfi og hefja nýtt líf. Hún sá aug- lýsingu í blaði, þar sem óskað var eftir stúlku til að gæta barns í afskekktu húsi niður við strönd. Hún fékk vinnuna og kunni vel við hana fyrst í stað. En ekki leið á löngu, þar til hún tók eftir, að sitthvað var undarlegt við þetta gamla hús og þá sem þar bjuggu. Það var sannarlega ekki allt með felldu. Fyrr en varir dregur til tíðinda í lífi hennar . . . Þessi framhaldssaga er spennandi frá upphafi til enda. Það verður enginn svikinn, sem byrjar að fylgjast með henni. Húsid med jérnlilidunum Hér sjáum við aðalpersónur s-ögunnar. Yzt til vinstri er húsráðandinn, Rees Morgan, ungur ekkjnmaður, sem missti konu sína í slysi. í sama óhappi slasaðist einkasonur þeirra alverlega. Þá kernur aðalpersónan og sú, |sem segir söguna, Caroline Brewster. Hægra megin við hana er Et- ix Aklenby. Þar fyrir aftan er litli, bæklaði dreng- urinn, Tim, og aftast dularfulli þjónninn, Ro- berts, sem alltaf er á hælunum á Caroline. 45. tbi. vikaN 47

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.