Vikan - 06.11.1969, Qupperneq 6
BÚSÁHÖLD
Jíjcujiftiffi
LAUGAVEGI 59 SÍMI 23349
MIDA
PREIMTUN
HILMIR HF
SKIPHOLTI 33 - SÍMI 35320
Börnin og sjónvarpið
Kæri Póstur!
Það hefur verið venjan hjá
sjónvarpinu að sýna efni við
hæfi barna klukkan sex á mið-
vikudögum. Á þessum tíma voru
lengst af myndirnar um hund-
inn Lassí, sem nutu gífurlegra
vinsælda, en eru nú hættar, því
miður, eða að minnsta kosti í
bili. í staðinn var sýnd um dag-
inn einhver „ævintýramynd",
sem að nokkru var byggð á hinu
gullfallega ævintýri um Mjall-
hvít og dvergana sjö, sem Disney
hefur gert ódauðlegt. En þessi
mynd var alls ekki við hæfi
barna og fullorðnir höfðu tak-
markaða ánægju af henni. Það
var einhver grimmdarblær yfir
myndinni og ævintýrið gamla og
góða var þarna alveg óþekkjan-
legt og í ógeðfelldri útgáfu. —
Blessuð börnin mín, sem þekkja
Mjallvhítu og dvergana sjö,
skildu .hvorki upp né niður í
neinu, urðu leið og voru sífellt
að spyrja: „Af hverju er þetta
svona?“ Mér finnst, að ekki megi
gjörbreyta og skrumskæla á
þennan hátt gömul og góð ævin-
týri, sem allir þekkja. Ef slíkt
er gert verður að minnsta kosti
að gera það smekklega og
skemmtilega.
Mig langar til að koma þessu
á framfæri, en um leið vil ég
þakka fyrir barnatímana það
sem af er þessum vetri. Þeir hafa
verið hinir skemmtilegustu og
eiga sjónvarpsmenn þakkir skild-
ar fyrir þá. Nýju stúlkurnar eru
báðar ágætar og vonandi verða
barnatímarnir áfram jafn
skemmtilegir.
Með þökk fyrir birtinguna.
K. Þ.
Roof Tops og
Sókrates
Kæri Póstur!
Við erum hér tvær vinkonur
og okkur langar mjög mikið til
að þú svarir þessu bréfi frá okk-
ur eins fljótt og þú getur.
Við þökkum fyrir allt gamalt
og gott.
Þá er að byrja:
Hvað er hann Gunnar Guð-
jónsson í Roof Tops gamall? Og
hvað gerir hann? Hvar á Eggert
Ólafsson í Sókrates heima? Hvað
á maður að skrifa utan á um-
slögin þegar maður sendir til
„Lög unga fólksins“?
Tvær Keflavíkurmeyjar.
Þá er að svara:
Gunnar er 18 ára og er að læra
að verða hárskeri. Eggert á
heima í Stórholti 32, en Sókrates
hafa lagt alla spilamennsku á
hilluna, eins og ykkur er kann-
ski kunnugt. Og þið skuluð ein-
faldlega skrifa á umslagið: „Lög
unga fólksins, Ríkisútvarpinu,
Skúlagötu 4, Reykjavík.“
Enginn gerir
svo öllum líki
Kæri Póstur!
Ég eins og margir aðrir ætla
að setjast niður og skrifa nöld-
ursbréf. Nú um langan tíma hafa
verið stórar auglýsingar í Vik-
unni með yfirskriftinni: „Þér
sparið með áskrift". Þar getur
að líta efnið, sem í Vikunni á að
vera, en hvar eru Bridge-þætt-
irnir? Þeir hafa ekki komið, það
sem af er þessu ári og gott ef
nokkur þáttur um bridge var í
árganginum 1968. Svo eru það
sögurnar. Flestar smásögurnar
eru með emdemum lélegar, og
er þetta Angelique-kjaftæði
endalaust? Sú saga er orðin allt-
of langdregin, og þið ættuð að
hvíla okkur, þína föstu lesendur,
á þessari þvælu.
En enginn gerir svo öllum líki,
ekki einu sinni guð í himnaríki.
Annars er margt gott í Vikunni.
Palladómarnir eru góðir og margt
annað. Fyrir nokkrum árum
höfðuð þið viðtöl við fólk og
þátt sem hét f aldarspegli. Þeir
voru góðir. Hví ekki að taka
þessa þætti upp aftur?
Með kærri kveðju.
Lesandi.
Við munum taka til athug'unar
áskorun um að bridge-þættir
aftur. Framhaldssögunni um
Angelique er nú lokið og önnur
komin í staðinn, sem við vonum
að falli lesendum vel í geð. Hún
er að minnsta kosti ekki of löng.
Það tekur aðeins níu blöð að
birta hana og verða framhalds-
sögur okkar í framtíðinni vænt-
anlega flestar af svinaðri lengd.
Við birtum alltaf öðru hverju
viðtöl við fólk og munum gera
það áfram, en Palladómar Lúp-
usar eru mjög hliðstæðir við
gamla þáttinn f aldarspegli.
Svar til „Skottu“
Okkur finnst alls ekki óeðli-
legt, aS þú lítir bréfaskriftir
unnusta þíns óhýru auga. Eftir
lýsingu þinni að dæma virðist
hann hafa tilhneigingu til að
vera ekki við eina fjölina felld-
ur. En hann mun fljótlega kom-
ast að raun um, að slíkt gengur
ekki til lengdar. Fyrr eða síðar
veldur slíkt háttarlag árekstrum
og óþægindum. Það er í sjálfu
6 VIKAN 45 tbl-