Vikan


Vikan - 06.11.1969, Blaðsíða 11

Vikan - 06.11.1969, Blaðsíða 11
það er hvorutveggja; veltur aðeins á því í hvaða afstöðu geimfarið er við sólu. Það breytir um lit á nokk- urra klukkustunda fresti, svo báðar áhafnirnar höfðu rétt fyrir sér. I hinni geimferðinni sem ég tók þátt í, Gemini 10, var ég svo önnum kafinn, að ég gat ekki einu sinni stanzað í augnablik til að átta mig á hvar ég var, Eg gat ekki gefið mér svo sem 2—3 mínútur til að gera mér Ijóst, að ég var mörg þús- und mílur úti í himingeimnum hang- andi í lítilli, örgrannri taug. Öll at- hygli mín beindist að því sem ég átti að gera. En í þetta skipti hafði ég meiri tíma og gat hugsað örlítið um hitt og þetta. Ég hugsaði mikið um fjölskyldu mína og plánetuna Jörð; hve dásamlegt er að búa þar og hversu kyrr hún virðist vera úr svo mikilli fjarlægð. Ég hugsaði um hve gaman væri að vera komin þangað aftur, og sjá fyrir blátt og tært vatn, í staðinn fyrir þetta tómarúm sem ég þeyttist nú um. Sjáið til, það eru til Plánetur og svo eru til Plánetur. Ég hef aðeins séð tvær þeirra, og það er ekki á nokkurn hátt hægt að bera þær saman. Tunglið er stór- kostlegur staður, og ég efast ekki um að frá stærðfræðilegu sjónarmiði er það hreinasti gimsteinn. En þó er ég hrifnari af Jörðinni. Ég vona að ein hliðarverkunin í sambandi við þessar geimrannsóknir okkar verði sú að við getum farið að notfæra okkur alla okkar tækni- kunnáttu til að vernda og bæta litlu plánetuna okkar; sú, að við getum kennt fólki og komið því í skilning um hve dásamlegur staður jörðin er. Staður sem við ættum að hætta að útbía eins og við höfum gert. Við erum einstaklega heppin — þó ekki sé nema bara fyrir loftið sem við öndum að okkur og vatnið sem við getum ausið yfir okkur. Það er hvorutveggja í senn: Sorgarleikur og glæpur, að vötnin skuli vera öll orðin eitruð og menguð svo það er ekkert gaman að busla í þeim lengur. Ég tek fólk fram yfir vélar, en það eru tækifæri til að láta vélar njóta alveg sömu blíðu og með- höndlunar sem venjulega er aðeins ætlað holdi og blóði. 24. júlí var slíkt tækifæri, og Kólumbía slík vél. Hún hafði flutt okkur i gegnum svartan, dauðan himingeiminn og til baka aftur, og skilað, okkur, nærri blíðlega, í bláasta vatn heims- ins, Kyyrahafið. Mér fannst það ein- hvernveginn ekki réttlátt að láta hana bara eiga sig, án þess að reyna að þakka henni fyrir á ein- hvern hátt — til að aðgreina hana frá öðrum. Sama kvöldið, á flugvélamóður- skipinu Hornet, brölti ég aftur um borð í Kólumbíu með penna í hend- inni, stóð við stjórntækin og horfði lengi á stóran, gráan belginn. Ég gat ekki, lengi vel, hugsað mér neitt sem ég gat skrifað á hana; eitthvað sem lýsti tilfinningum mín- um nægilega vel. A endanum skrif- aði ég: „Geimskip 107, öðru nafni Appollo 11, öðru nafni Kólumbía: Sú allra bezta. Guð blessi hana." ☆ Collins er tómstundamálari og hér t sést hann við þá iðju sína. Hann er að mála kyrralífsmynd. Dóttir hans hefur sama áhugamálið og hér eru þau bæði að mála eftir sömu fyrir- myndinni. -dfe- Collins ásamt konu sinni, Pat, nýkominn heim eftir 18 daga einangrun. Hann sýndu konu sini skeggið og lét taka nokkrar myndir af sér með það, — en síðan rakaði hann það af sér. 45. tbi. VIKAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.