Vikan


Vikan - 06.11.1969, Síða 14

Vikan - 06.11.1969, Síða 14
HANN SKULDAR MOSKVU 1200 DOLLARA Bob Hope var ekki að reyna að pretta Rússana, þegar hann fiúði frá Moskvu, hann skildi handritahöfunda sína eftir í pant. Fyrsta tilvonandi tengdamóðir hans sagði að hann yrði aldrei að manni. Nú á hann 500 milljónir dollara, og hefur fengið heiðursmerki frá þrem forsetum........ Ein af fyrstu stúlkun- um, sem varð meðleik- ari Bobs Hope, var ná- granni hans, Mildred Rosenquist að nafni. — Síðar sagði hann svo frá því: — Við unnum okkur inn sjö til átta dollara, og við skiptum því jafnt á milli okkar. Mildred, sem nú er húsmóðir í Californiu mótmælir þessu harðlega: — Bob sagði að við værum að leika í góðgerðarskyni, en hann hirti peningana sjálfur. Þau voru trú- lofuð í nokkur ár, en svo sagði Mildred hon- um upp. Móðir hennar sagði við hana: — Þú skalt ekki giftast hon- um, hann verður aldrei að manni. Sjaldan hefur nokk- urri manneskju skjátl- azt svo hrapallega. Hinn 66 ára gamli skopleik- ari á nú meira en 500 milljónir dollara; hann er vinur stórpólitíkusa og ríkisstjórnamanna, auðkýfinga og frægra íþróttamanna. Þótt hann dragi þetta fræga fólk sundur og saman í háði, á sjónvarpsskerminum og í samkvæmum, þá móðgast það ekki; það þykir mesti heiður að vera milli tannanna á Bob Hope. Og þótt hann hafi ekki séð fólk snúa sér við á götunum í Moskvu („Var það vegna þess að myndirnar mínar hafa ekki verið sýndar þar, eða kannski einmitt vegna þess að þær hafa verið sýndar?“) þá hlær allur hinn vestræni heimur að honum, allt frá sjómönnum í Japan, til Samanna í Kauto- keino. En hann er ekki eingöngu dáður sem skopleikari, miklu frem- ur sem maðurinn með stóra, góða hjartað. — Þegar hann rólar um meðal áhorfenda, bjartur á svip og stöð- ugt brosandi, þá er eins og Ijósaflóð tendrist í löngum gangi, segir vin- kona hans, Marion Pike. — Fólkið sér ekki ein- göngu manninn sem kom þeim til að hlæja, heldur líka manninn, sem án stóryrða og sleikjuháttar er orðinn þjóðarhetja. . . . Á heimili hans í Holly- wood er herbergi, þar sem hann geymir þær 750 orður og heiðurs- merki, sem hann hefur fengið, heiðursmerki, sem Nobelsverðlauna- hafar gætu öfundað hann af. Meðal þeirra er heiðursmerki sem hann hefur fengið frá þrem forsetum Banda- ríkjanna: Eisenhover („Eg þekkti hann þeg- ar hann var hershöfð- ingi, þá var það hann sem réði“); John F. Kennedy („Ég hitti hann þegar hann var ungur og glaðvær sjó- liðsforingi, en þá þurfti hann aðeins að berjast við óvinina“) og Lynd- on B. Johnson. Kenne- dy sæmdi hann gull- merki fyrir að vera „bezti góðgerðar-am- bassadör Ameríku" („Ég varð hugsandi út af því, 14 VIICAN 45- »i. að ég fékk orðuna fyrir að ferðast um heiminn. Gat það verið að forset- inn væri að draga dár að mér?“). Bob Hope, sem heitir fullu nafni Leslie Town- es Hope, hefur sannar- lega náð langt. Hann er fæddur í Eltham, einni af útborgum London, árið 1903. Faðir hans var steinsmiður, sem flutti með fjölskyldu sína til Cleveland í Bandaríkjunum árið sem Bob varð fjögurra ára. Um hríð leit út fyrir að drengurinn lenti á glapstigum. Hann og vinir hans voru upp- reisnargjarnir, með alls konar óeirðir á götum úti, héngu á billjard- stofum, stunduðu jafn- vel smáhnupl. En Bob sá að sér og gerðist blaðasali; sjálfur olíu- konungurinn, John D. Rockefeller, var einn af viðskiptavinum hans. Einkabílstjórinn kom með Rockefeller á hverjum morgni til að kaupa blað af drengn- um fyrir 2 cent. Einn daginn var ausandi rigning og gamli mað- urinn fékk Bob tíu cent. Bob gat ekki skipt og hann bauð Rockefeller að vera í viðskiptareikn- ingi hjá sér. — Hann vildi ekki heyra slíkt nefnt á nafn, sagði Bob Hope, — svo ég varð að hlaupa langa leið til að skipta: „Mundu það, drengur minn, að borga alltaf út í hönd,“ sagði gamli maðurinn, og svo ók hann af stað. Hope reyndi sitt af hverju. Eitt sinn var hann blaðamaður, og svo boxari. („Þannig lærði ég að dansa vals“). Það getur verið að þetta hafi orðið til þess að hann fór að snúa sér að skemmtistarfseminni. Hann fékk einu sinni verðlaun fyrir að hafa eftir Chaplin, og úr því fór hann að fá smáhlut- verk í skemmtiþáttum, þar á meðal einu, þar sem síamstvíburar voru meðleikarar hans. Það var ekki fyrr en hann var orðinn þrítug- ur að hann var búinn að koma sér niður á sinn eigin stíl, og tróð upp með öðrum byrj- anda á sviðinu, Bing Crosby. Ári síðar fór hann í næturklúbb með vini sínum. Þar kynntist hann Dolores Reade. — Hann bauð henni að sjá skemmtiatriði þeirra fé- laga, og ári síðar giftu þau sig. Það varð upp- hafið af framúrskar- andi hamingjusömu hjónabandi, meðal fóiks, sem álítur það jafn ein- falt að skilja og að gifta sig. Þau eiga fjögur börn, Lindu, Tony, Noru og Kelly, og hann er frábær heimilisfaðir, þótt hann sé á stöðug- um ferðalögum. Linda sagði einu sinni. — Ég var orðin tólf ára, þeg- ar ég komst að því að hann var ekki atvinnu- flugmaður! Fjórum árum eftir brúðkaupið fékk hann fyrsta kvikmyndahlut- verk sitt, og þá byrjaði samstarfið við Bing Crosby fyrir alvöru. — Það var í kvikmyndinni „Leiðin til Singapore“, sem var sú fyrsta af sjö í kvikmyndaflokki, sem gaf yfir 50 milljónir dollara í arð. I tómstundum sínum leikur Hope golf. Um það segir hann í bók sinni „Ég skulda Rúss- um 1200 dollara": — Bretar eru frábærir sportmenn. Brezku golf- leikararnir, sem við lék- um við voru líka mjög heiðarlegir. Þeir skrif- uðu hjá sér hvert ein- asta högg, og reyndu aldrei að hafa rangt Framhald á bls. 30. 45. tbi. VIKAN 15

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.