Vikan - 08.01.1970, Síða 21
dökkeygð börn léku sér meðal
hænsnanna á rykugum þorpsgöt-
um.
En það leið ekki á löngu þar
til þorpunum sleppti og vegurinn
lá í sífellt brattari stígum, og þá
voru það aðeins kindahópar á víð
og dreif, sem báru vott um líf.
Loftið var krystaltært, dásamleg til-
breyting frá þungu loftinu við
ströndina.
Vegurinn varð brattari. Bílstjór-
inn ók hratt um hrollvekjandi
beygjurnar, þar sem hyldýpi var
öðrum megin, en hinum megin
straukst hann við klettana. Og niðri
í dalnum rann Nar Ibrahim, Adonis-
áin, tær og glitrandi, en fór stund-
um í hvarf.
Og að lokum komum við að upp-
tökunum, Adoniskeldunni.
Frá upphafi höfðu alltaf verið
einhverjir dulrænir töfrar bundnir
við Adoniskelduna. Það er ekki
undarlegt að fyrir frumstætt fólk
í landi, sem býr við vatnsskort, hafi
það verið kraftaverki næst að sjá
ferskt vatnið streyma út úr berginu,
og að það hafi leitt hug þess til
guða og djöfla. Það var eitthvað
óraunverulegt við að sjá freyðandi
vatnið, rústirnar af hofi Afroditu,
og litskrúðug blómin, sem uxu
þarna, svo að segja út úr klöppinni.
Þegar við höfðum verið þarna um
stund, beygðum við út á veginn,
sem við ætluðum að aka til baka.
Mjór stígur lá á ská frá ánni að
akveginum. Fyrir ofan stíginn kom-
um við auga á mann í hvítri skikkju,
sem þeysti á arabiskum gæðingi,
vindurin blés undir skikkjuna, svo
hún var eins og segl, og það glitr-
aði á silfurbúnaðinn á beizlinu.
Ljósbrúnir, síðhærðir veiðihundar
fylgdu riddaranum fast eftir, það
voru Saluki-hundar, eins og pers-
neskir prinsar voru vanir að hafa
með sér á gazelluveiðum.
Við sáum reiðmanninn aftur,
þegar við vorum á leið niður, hin-
um megin ( dalnum. Við höfðum
setið um klukkutíma yfir nestinu,
svo það var auðséð að maðurinn
hafði riðið krókastíga, ofan við
uppsprettuna. Þegar við ókum að
litlu þorpi, sá ég reiðmanninn aft-
ur, ríða þvert yfir akur, sem var
alþakinn sólrósum. En þegar bíll-
inn ók milli lágra kofanna, missti
ég sjónar af honum.
Við námum staðar til að kaupa
nokkrar appelsínur í þorpinu.
Þetta var mjög hrörlegt þorp.
Húsin voru byggð úr þurrkuðum
leir, en vínviðurinn óx yfir þök-
in, svo þau voru ekki eins ömur-
leg til að sjá. Kringum húsin voru
sillur, þar sem reynt var að rækta
bæði áyexti og brauðkorn. Fyrir ut-
an börnin, sem flykktust að bíln-
um, sáum við ekki nokkra lifandi
veru, nema gamlan mann, sem sat
í hnipri og reykti pípu sína. Hann
hvárflaði hálfblindum augunum
upp að andliti Hamids, sem heils-
aði honum á arabizku og lagði fyr-
ir hann einhverja spurningu. En
Hamid fékk ekkert svar.
Eg gekk yfir götuna, með öll
börnin í hælunum. Sex feta hár
veggur meðfram veginum virtist
halda uppi þessari hillu, sem þorp-
ið var byggt á. Fyrir neðan voru
sillurnar, þar sem ég hafði séð reið-
manninn á ferð.
Ég klifraði yfir vegginn og nið-
ur. Börnin fylgdu mér eftir. Ég þótt-
ist vera að tína blóm, börnin gerðu
það líka. Við töluðum saman, á
arabisku og ensku, og það fór vel
á með okkur. Framar öðru skildi ég
að þau ætluðust til einhvers af mér,
einhverra launa fyrir blómin og fé-
lagsskapinn.
— Einn shilling ,sagði Hamid,
einhversstaðar fyrir ofan mig. Börn-
in hrifsuðu smápeningana og tóku
á rás. Þau voru fljótari að klifra upp,
en að fara niður á móti.
— Ég geng í veg fyrir bdinn,
þegar þér akið burtu, sagði ég við
Hamid.
Stígurinn sem reiðmaðurinn hafði
farið, lá á ská yfir sólrósaakurinn
að sillubrúninni.
Ég hélt áfram út að veginum.
Við op í veggnum, sem girti fyr-
ir síðustu silluna, var fíkjutré. Ég
sá að eitthvað var rispað í silfur-
litan stofninn, teikning af hundi
á stökki. Það var síðhærður hund-
ur, saluki-hundur.
Hamid sat á lága veggnum við
vegbrúnina. Hann stóð fljótt á fæt-
ur. —
— Viljið þér appelsínu?
— Já, takk, sagði ég. — En hve
þær eru góðar. Til hvers rækta þeir
allar þessar sólrósir?
— Vegna olíunnar. Þær gefa mjög
góða matarolíu, og bændurnir fá
gott verð fyrir þær. Það er, með-
al annars gert til að þeir hætti að
rækta hampinn.
— Hampinn? Er það ekki hash og
marijuana? Svei, svei. Vex hamp-
ur hér?
— Já, reyndar. Áður var mikið
ræktað af honum hér uppi í fjöJI-
unum, og það eru til staðir, þar sem
eftirlitsmennirnir koma aldrei é.
— Eftirlitsmennirnir?
Hann kinkaði kolli. — Eftirlits-
menn frá ríkinu. Nokkuð af hampi
er ræktað með fullu leyfi til lyfja,
en þeir sem hafa leyfi til bess eru
undir mjög ströngu eftirliti. En
Framhald á bls. 44
2. tbi. VIKAN 21