Vikan - 22.01.1970, Qupperneq 3
4. tölublað - 22. janúar 1970 - 32. árgangur
Vikan hefur áður birt greinar um kunna
iandkönnuði eins og Livingstone, Stanley og
fleiri. í þessum sama flokki er
í þessu blaði fjallað um mesta flugafrek
allra tíma, afrek, sem jafnað er við
tunglför Bandaríkjanna á siðasta ári. Hér er
vitanlega átt við hina frækilegu ferð
Lindberghs yfir Atlantshafið.
,,Það kom ekki oft fyrir, að furstinn
keypti eitt eintak af nokkrum hlut. Af Rolls
Royce-bifreiðum keypti hann jafnvel
stundum hálfa tylft i einu. Þetta var litill
maður og gildvaxinn, úteygur og
augun brún, en fingurnir stuttir og gildir".
Þannig hefst smásaga þessa blaðs, sem
nefnist „Furstaynjan" og er eftir
T. H. White.
Tékkneski langhlauparinn Emil Zatopek er
einn frægasti og vinsælasti íþróttamaður
allra alda. Á Olympíuleikunum
í Helsingfors 1952 vann hann þrenn gull-
verðlaun og varð sannkallað goð meðal
þjóðar sinnar. En nú hafa stjórnarvöldin for-
dæmt hann vegna andstöðu hans við
innrásina í ágúst 1968. Það birtist
grein um hann í þessu blaði.
í ÞESSARI VIKU
I NÆSTU VIKU
Ný framhaldssaga hefst í næsta blaði og
nefnist hún „Frú Robinson" og er eftir
Charles Webb. Sagan hefur verið kvikmynduð
og verður myndin sýnd í Tónabíói
skömmu eftir að sögunni lýkur hér í
Vikunni. Myndin hefur hlotið óvenjulega
góða dóma og var meðal annars valin ein
af tíu beztu myndum þessa áratugs.
Sögur Jacks London njóta vinsælda um heim
allan. Þær hafa til dæmis komið út hér
á landi undanfarin ár og verið mikið lesnar,
enda spennandi og ævintýralegar. En
ævintýralegust er þó sagan af lífi hans sjálfs.
I næstu Viku birtum við eina af
smásögum Jacks Londons og einnig hefst þá
greinarflokkur um ótrúlega viðburðaríkt
líf þessa snjalla ameriska höfundar.
Gömlu húsin í Reykjavík hverfa óðum og
mörg þeirra eiga sér merka sögu.
Enn eru þó sögufrægar byggingar viða í
bænum og í næsta blaði bregðum við upp
myndum af nokkrum þeirra.
Við fengum Þorstein Gunnarsson, arkitekt og
leikara, til þess að aka með okkur um
bæinn og benda okkur á ýmis merkileg hús,
sem ekki mega hverfa.
FORSÍÐAN
Hin svarta fegurð nefnist grein, sem við birtum á blaðsiðum
24—27 og forsíðan er af einum fulltrúa hennar: prinsessa frá Uganda.
í FULLRI ALVÖRU
HÆTTAN VOFIR YFIR
Eiturlyfjanautn fer ört vaxandi með flestum
þjóðum og er nú tvímælalaust eitt alvarlegasta
vandamál heims. Sérstaklega beinist athyglin
að unga fólkinu og hinum nýju lyfum, marijúana
og LSD. Fyrir nokkru var sagt hér í blaðinu frá
norskri kvikmynd um þetta vandamál, sem vakti
menn til verðugrar umhugsunar um þann skelfi-
lega vágest, sem hér er á ferðinni. Margir höfðu
vonað í lengstu lög, að íslenzk æska sneiddi hjá
þessu uggvænlega tízkufyrirbrigði. En það er
nú komið á daginn, sérstaklega eftir viðtal sem
birtist hér í Vikunni nýlega, að hættan vofir
yfir okkur og getur breiðzt út, ef ekki verður
eitthvað aðgert í tíma.
Sú skoðun er nokkuð útbreidd um heim aII-
an, og eru jafnvel visindamenn bornir fyrir
henni, að marijúana sé hættulaust og engin
hætta á, að menn venjist á notkun þess. Þvert
á móti eiga menn að læra að þekkja sjálfan
sig með aðstoð þess og losna úr þvingandi fjötr-
um vanans. I desemberhefti Urvals birtist grein
eftir Karl Evang, sem er formaður heilbrigðis-
eftirlitsins í Noregi og nýtur mikils álits, bæði
heima fyrir og erlendis. Hann hefur starfað á
vegum Sameinuðu þjóðanna og verið formaður
nefnda, sem rannsakað hafa eiturlyfjamál. Hann
segir meðal annars um áðurnefndar staðhæfing-
ar:
„Allar þessar fullyrðingar, sem settar eru fram
á mismunandi hátt af eiturlyfjasölumönnum,
hafa ekki við rök að styðjast samkvæmt vís-
indalegum athugunum. Sú fullyrðing, að marijú-
ana sé hættulaust er bein lygi. Marijúana er
hættulegt nautnalyf, sem gerir menn háða sér
á stuttum tíma og er mjög auðvelt að útbreiða
það. Lyfin marijúana og haschisch myndu eyði-
leggja allt samlíf og leggja atvinnuvegi Norð-
urlanda í rúst, ef þessi eiturlyf væru notuð í
sama mæli og tóbak og vín í þessum löndum".
G.Gr.
VIKAN Útgefandi: Hilmir bf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamcnn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Hall-
dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjóri: Jensína Karls-
dóttir. — Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreif.
lng: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533.
Verð i lausasölu kr. 50,00. Áskriftarverð er 475 kr.
fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir 26
tölublöð misserislega. Áskriftargjaldlð grciðist fyrlr-
fram. Gjaldd. eru: Nóvember, febrúar, mai og ágúst.
I