Vikan


Vikan - 22.01.1970, Page 19

Vikan - 22.01.1970, Page 19
atkvæði í sýslunni undir for- ustu Lúðvíks Jósefssonar kennara á Norðfirði. Eysteinn ætlaði að drýgja sömu dáð í kosningunum 1946, en þá sneri stríðsgæfan allt í einu baki við honum. Framsóknar- flokkurinn fékk 1296 atkvæði og Sósíalistaflokkurinn 714, svo að þingmenn Sunnmýl- inga urðu Ingvar Pálmason og Lúðvík Jósefsson. Eysteinn komst á þing eigi að síður, þar eð ellijireyta bannaði Ingvari heimanför. Hefur Ey- steinn Jónsson aldrei telft á tvísýnu þaðan í frá. Hann skipaði efsta sæti í framboðs- lista Framsóknarflokksms í Suður-Múlasýslu 1949, 1953, 1956 og sumarið 1959 og hélt enn þeim sið í Austurlands- kjördæmi haustið 1959, svo og 1963 og 1967. Ilefur leið- sögn Eysteins gefizt vel, þar eð fylgi Framsóknarflokksins reiknast drjúgum meira á Austurlandi en í nokkru öðru kjördæmi, og mun það eink- um honum að þakka. Ey- steinn er nákunnugur fólki og málefnum í átthögum sínum eystra og hefur reynzt kjós- endum þar nýtur fulltrúi. Eysteinn Jónsson er fjöl- hæfasti málsvari Framsókn- arflokksins eftir að kempurn- ar Tryggva Þórhallsson og Jónas Jónsson leið. Mælskan gerði Eystein frægan ungan, þegar hann brauzt ii])p fjalls- lilíð atvinnumennskunnar í íslenzkum stjórnmálum forð- um daga, og enn ber að rneta hann áheyrilegasta ogliðtæk- asta ræðumann flokks síns á alþingi og öðrum málfundum. Ilann er rökfimur og ráðsnjall en reynist þó helzt til leiði- gjarn af því að hann lútir fremur að auðfengnum úrslit- um en að ætla sér tvísýnan stórsigur. Er liann og ágæt- lega verki farinn, starfsamur, nákvæmur og þolgóður og kann skil á völundarhúsi landsmálanna eins og glöggur bóndi fjósi og hlöðu eða reyndur formaður báti og vél. Menntun Eysteins mun eink- um sprottin af sjálfsnámi, þegar bókfærsluþekkingin er undanskilin, en hann les mik- ið gamlar og' nýjar bókmennt- ir og hefur til dæmis gerzt handgenginn Sturlungu Hkt og hún væri saga samtíðar- innar. Nútimann lifir hann sér í lagi úti í ríki náttúrunnar. Eysteinn er annálaður göngu- garpur um slóðir dala, heiða og fjalla, þegar sumar ilmar og skín á íslandi, en fer mjall- arbrautir á skíðum í vetrar- sva;la. Eru honum slíkar íþróttir frjó lífsnautn, og eiga J)ær sennilega drjúgan þátt í, livað bein hans þola góða daga. Frama sinn upphaflega átti Eysteinn mjög að þakka vel- þóknun Jónasar frá Hriflu, en hann brást fóstra sínum fyrr en varði. Frumkvæði Jæss hefur verið eignað Hermanni Jónassyni. Sú ályktun telst þó hæpin. Eysteinn var of sjálfstæður og einþykkur að sætta sig við skilyrðislausa hlýðni og auðmjúka fylgd, og skipulagshæfileikar hans réðu úrslitum um leiðtogaskipti í F ramsóknarf lokknum, þegar valdsmennska Jónasar keyrði úr hófi. Einbeitnina sannaði hann glöggt sem fjármálaráð- herra. Embætti J)að var eng- an veginn öfundsvert á kreppuárunum, en Eysteinn reyndist þá svo vaskur, að hann óx af hverjum vanda og sérhverri hólmgöngu. Þó fór svo brátt, að meðfædd smá- munasemi Eysteins sagði til sin og breytti afstöðu hans og vinnubrögðum. Safnaði hann þá skattpeningum at' óhugn- anlegri ástríðu, kepptist við að draga í ríkisfjárhirzluna allt, er til l'éll, og heimtaði jafnan meira en hann lét al* hendi rakna í hræðslukenndri tilhugsun þess, að tekjur hrykkju ekki fyrir útgjöldum, og sinnti lítt árferði. Varð bókfærslulegur afgangur á landsreikningum Eysteins loks árátta eða sáluhjálpar- atriði, unz hann sat við að telja krónur eins og nirfill. Gerðist og lítill munur á, hvort hann taldist málsvari róttækni eða íhaldssemi í orði kveðnu. Eysteinn fór löngum sínu fram og gætti rikisfjár- liirzlunnar líkt og eigingjarnt barn leikfanga sinna, unz hann sofnaði með hana tóma í fanginu örlaganóttina, l)eg- ar vinstri stjórnin gafst upp í haustmyrkrinu 1958. Ey- steinn vaknaði morguninn eftir úti á víðavangi og veit ekki enn, hvernig hann barst þangað. Orðsnilli Eysteins Jónsson- ar gerir honum fært að túlka hvern þann málstað, sem hann grunar að henti Fram- Framhald á bls. 46 4. tbi. VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.