Vikan


Vikan - 22.01.1970, Side 28

Vikan - 22.01.1970, Side 28
Þetta hús, sem var heimkynni dauðans, var yzt í þorpinu. Kvöld nokkurt kom þangað ungur hermað- ur og baðst gistingar... Gamli maðurinn sat á stól við hliðið. Hann kallaði til allra, sem nálguðust hann: „Láttu húsið mitt í friði.“ Húsið var lítið, þrjú her- bergi, eldhiís og tvö ])aklier- bergi. Trén í garðinum voru lauflaus, grasið hélað, ekki einusinni bithagi. — Þar sýndist sannarlega ekki vera mikils að gæta, en gamli mað- urinn vék ekki af verðinum. Hann sat þarna rólegur þó að rökkvaði, og kallaði til þeirra er fram hjá gengu: „Láttu húsið mitt í friði.“ Hann stóð upp, ef einhver af hermönnum óvinanna nam staðar við hliðið, tók ofan ó- hreinu, mosalitaða húfuna, og sagði, að dauðinn byggi í hús- inu. „Ég segi þetta yðar vegna, dauðinn býr í húsinu mínu. Komið með mér, ef þér trúið mér ekki, ég skal sýna yður það. En hann er smitandi herra, mjög smitandi.“ Og hermennirnir rengdu hann ekki, því að gamli mað- urinn leit út eins og dauðinn. Þetta hús, sem hýsti dauð- ann var yzt í þorpinu. Eitt sinn er mvrkur var skollið á, kom ungur hermaður og baðst gistingar. Hann hafði knúð á margar hurðir en allsstaðar voru öll rúm skipuð. Um það var ekki að ræða fyrir hann að rata í myrkrinu til næsta þorps. Hermaðurinn óttaðist jafnlít- ið dauða sinn sem einum her- manni er leyfilegt. Gamli maðurinn endurtók það sama við hann og þá, er áður höfðu farið þar fram hjá, en her- 28 VIKAN 4-tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.