Vikan - 06.05.1970, Qupperneq 3
19. tölublaS - 6. maí 1970 - 32. árgangur
Peter Forbes nefnist brezkur maður,
sem er að gera merkilega tilraun i sambandi
við vangefið fólk. .Hann hefur í huga, að
í framtíðinni búi slíkt fólk í sérstökum
þorpum, þar sem það sé látið vinna og lifa
sem sagt eins líkast lífi eðlilegs fólks
og unnt er. Margir eru þeirra skoðunar,
að þessi tilraun muni gefa góða raun.
í Ármúla 14 starfar Heilsuræktin, stofnun, þar
sem iðkuð er kennsla og þjálfun í judo
og auk þess heilsubótarleikfimi eftir kerfi,
sem þróað er upp úr judo og yoga.
j þessari viku segjum við í myndum og
máli frá heimsókn til Heilsuræktarinnar.
Þjóðleikhúsið hélt upp á tuttugu ára afmæli
sitt á sumardaginn fyrsta, 23. apríl sl.
Það var óneitanlega merkur atburður,
þegar Þjóðleikhúsið tók til starfa 1950,
með sýningu þriggja íslenzkra öndvegisverka,
Nýársnóttinni, Fjalla-Eyvindi og
Islandsklukkunni. I tilefni afmælisins rifjum
við upp í myndum helztu viðburði
á tuttugu ára starfsferli Þjóðleikhússins.
I ÞESSARI VIKU
Eldhús Vikunnar, sem Dröfn H. Farestveit,
húsmæðrakennari sér um, hefur
alltaf eitthvað nýtt góðgæti á boðstólum,
og að þessu sinni eru það pönnukökuréttir.
Það er nefnilega hægt að gera
miklu fleira með pönnukökur en að
bera á þær sultu og rjóma.
Fulltrúi ungu kynslóðarinnar í hinni árlegu
keppni, sem Vikan og Karnabær
standa fvrir, var að þessu sinni kjörin
Guðbjörg Haraldsdóttir. í næstu Viku birtist
viðtal við Guðbjörgu, þar sem lesendum
gefst kostur á að kynnast
nánar skoðunum hennar og viðhorfum.
„Jón Gunnar Árnason bregður hnífi
undir nasir yður, og þegar þér finnið loks
fyrir egginni, vitið þér hvað veruleiki er."
Þannig komst svissneskur lista-
maður, René Scherrer að nafni, að
orði í dómi um listsýningu Jóns Gunnars
Árnasonar, myndasmiðs, í Gallerí
Súm í fyrrasumar. I næsta blaði verður viðtal
við Jón, sem áreiðanlega er meðal athyglis-
verðustu yngri myndlistarmanna okkar i dag.
í NÆSTU VIKU
FORSÍÐAN
Tryggvadóttir, K.K.
moto K.K. 5. dan.
Judo-kasttækni, fóttækni. Tori (sá sem bragði beitir) er Jóhanna
1. dan, en Uki (sá sem verður fyrir bragði) prófessor N. Yama-
f FULLRI ALVÖRU
ÓHÁÐIR 0G SAMEINAÐIR
Það hefur vakið athygli í sambandi við í hönd
farandi bæjar- og sveitarstjórnarkosningar að í
vöxt virðist fara úti á landi að menn láti allan
flokkaríg lönd og leið þegar framboð eru ákveð-
in. j mörgum bæjar- og sveitarfélögum hafa
komið fram listar undir nöfnum eins og óháðir
eða sameinaðir kjósendur. Þetta verður að teljast
góðs viti. í bæjar- og sveitarfélögum, einkum
þeim smærri, háttar yfirleitt svo til að teljast má
fáránlegt að kjósa menn til forustu í þeim eftir
því hvar í stjórnmálaflokki þeir teljast standa.
Vandamál þau, er liggja fyrir bæjar- og sveita-
stjórnum, eru yfirleitt þannig vaxin að gæfuleg
meðferð þeirra er fyrst og fremst undir því komin
að forustumennirnir, sem kjörnir eru til að leysa
þau, séu hæfir menn og heiðarlegir.
Spurning er hvort dreifbýlið gæti ekki að
þessu leyti orðið þéttbýliskjarnanum við Faxafló-
ann og raunar þjóðfélaginu í heild þörf fyrir-
mynd. Bitlingapestin sem þessu þjóðfélagi tröll-
ríður hefur verið nokkuð ofarlega á baugi síðan
Tíminn sýndi það framtak að telja upp fyrir alþjóð
störf Jóhannesar Nordals, seðlabankastjóra. Ekki
vantaði að önnur biöð fylgdu fast á eftir og sýndu
glögglega fram á það, sem raunar var áður vit-
að, að bitlingarnir eru kaka, sem stjórnmála-
flokkarnir allir hafa bakað sameiginlega og skipt
á milli sín i bróðerni. Þegar ítök stjórnmálaflokk-
anna í þjóðfélaginu eru höfð í huga er þess vart
að vænta að nokkur bót fáist á þessum málum,
enda benda nýjustu fréttir af stöðuveitingum
greinilega til þess að ennþá sé hiklaust haldið
áfram á þeim breiða vegi, sem fyrr en varir gæti
leitt til glötunar þeirra, sem feta hann af slíku
blygðunarleysi.
Það er meira en kominn tími til þess að ís-
lendingar hætti að taka stjórnmálaflokka sína
jafn alvarlega og gert hefur verið til þessa. Það
er meira en kominn tími til þess að bitlingafen
flokkanna séu sniðgengin og að til forustu í borg
og ríki séu menn valdir þeir menn er bera af
hvað snertir kunnáttu og hæfileika, en ekki þeir
sem sterkasta hafa flokksvélina að baki sér.
dþ.
VIKAN
Útgefandl; Htlmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaöamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Hall-
dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjóri: SigriSur t>or-
valdsdóttir. — Ritstjóm, auglýsingar, afgrelSsla og
dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf
533. VerS í lausasölu kr. 50,00. ÁskrlftarverS er 475
kr. fyrir 13 tölublöS ársfjórSungslega, 900 kr. fyrir
28 tölublöS misserislega. — ÁskrlftargjaldiS grelSlst
fyrirfram. Gjaldd. eru: N6v„ febrúar, mai og ágúst
19. tbi. VIKAN 3