Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 5
Ég hélt lengi að
Josephine Baker væri
móðir mín
Josephine Baker er nú í söng-
ferðalagi ennþá einu sinni, og í
þetta sinn, eins og oftar, er það
til að afla peninga til uppeldis
hinna mörgu fósturbarna hennar.
Hún kom til Stokkhólms, og
meðal frumsýningargesta voru
hjónin Fatirria og hinn ungi Gösta
Ekman leikari.
— Þegar ég var lítil hélt ég að
Josephine væri mamma mín,
segir Fatima Ekman, sem er
kjördóttir Karls Gerhards, hins
þekkta reviukonungs.
— Það er ekkert skrítið, segir
Josephine, — því að ég hugsaði
eins og móðir um hana, þegar ég
kom fram með Karl Gerard. Það
var meira að segja hvíslað um
það að Fatima væri dóttir okkar.
Þvílík vitleysa.
í raun og veru var móðir Fa-
timu dönsk og faðirinn Egypti.
Karl Gerard ættleiddi hana þeg-
ar hún var fjögra ára, dáði hana
til dauðadags, og arfleiddi hana
að öllum eigum sínum og hálfri
milljón sænskra króna.
Hún var komin í
líkhúsiö
Fyrsta vélin, sem á að sann-
prófa hvort látið fólk er í raun
og veru látið, hefir verið tekin í
notkun í almenningslíkhúsi í
Sheffield fyrir nokkru. Þegar það
var prófað í fyrsta sinn, kom í
ljós að líf leyndist með ungri
stúlku, sem hafði verið sögð látin.
Stúlkunni, sem var tuttugu og
tveggja ára, var samstundis ekið
til sjúkrahúss, en lífgunartil-
raunir báru ekki árangur.
Þessi harmleikur í iíkhúsinu
var festur á filmu af mönnum
frá BBC, sem viðstaddir voru,
þegar vélin, cardioscope, sem
kostaði 200 sterlingspund, var
tekin í notkun. Viðstaddir voru
líka dr. Herbert Pilling, réttar-
læknir og meinafræðingurinn dr.
Alan Usher.
Vélar af þessu tagi eru notað-
ar á sjúkrahúsum til hjartarann-
sókna.
Dr. Pilling segir að það hafi
komið ónotalega við þá að svona
skyldi fara, þegar vélin var not-
uð í fyrsta sinn í líkhúsi. Um
dauða stúlkunnar segir hann: —
Stúlkan var dáin kliniskum
dauða, þegar komið var með
hana. Það var ekkert vafamál.
En ennþá leyndist með henni líf.
Við höfum filmu af því sem vél-
in sýndi. Réttarlæknirinn, sem
ekki vildi gefa upp nafn stúlk-
unnar, sagði:
— Það er engin ástæða til að
halda að hægt hefði verið að
bjarga lífi stúlkunnar. Hann
sagði að grunur léki á að hún
hefði tekið of mikil svefnlyf, —
og, segir hann, — það er einmitt
í slíkum tilfellum, sem not er
fyrir þessar vélar.
# vísur vikunnar
Sótt er nú fram til sjós og lands
þótt sumir á öllu tapi
hugsjónir rætast og hagur manns
hækkar að sama skapi.
Hrafnistukynið sækir sjó
og siglir með dýrar vörur
í verstöðvum landsins er vinna nóg
og Vodka rekur á fjörur.
gmHJpÉggl
HH
„Snjó“bíll
Það er ekki eingöngu á íslandi
sem snjóar svo hraustlega að ein-
staka bíll fer á kaf. í Svíþjóð
gerði mikla snjóa um svipað leyti
og „snjóinn mikla“ gerði hér í
vetur og það sama skeði í Massa-
chusetts í Bandaríkjunum. Fjöl-
skylda nokkur, sem býr í ná-
grenni við ríkisháskólann í
Massachusetts, fór í ferðalag yf-
ir eina helgi og skyldi bílinn eft-
ir. Þegar þau komu aftur hafði
snjóað, hlánað og frosið — og
bíllinn leit svona út.
Svona á að gera ...
Það eru allar líkur á að þessi
unga dama verði ekki í vand-
ræðum með að verja sig í fram-
tíðinni. Svíar eru nú farnir að
gera mikið í því að kenna börn-
um sínum sjálfsvörn. í tíu
íþróttahúsum í Stokkhólmi er
hægt að fá tilsögn í Judo. Litla
stúlkan hér á myndinni er aðeins
sjö ára, en það lítur út fyrir að
hún sé búin að ná nokkuð góðum
tökum á þessari íþrótt.
Pennavinir
Guðrún Jónsdóttir og Olína Elísa-
bet Jónsdóttir, báðar til heimilis á
Stóru-Ávík, Árneshreppi, Stranda-
sýslu, vilja gjarnan skrifast á við
pilta á aldrinum 20—22 ára og 15—
16 ára.
Guðbjörg Friðriksdóttir, Alþýðu-
skólanum, Eiðum, S-Múlasýslu, ósk-
ar eftir bréfaskiptum við 16—18
ára pilt.
Jóna H. Kristmundsdóttir, Al-
þýðuskólanum, Eiðum, vill skrifast
á við 14—16 ára pilt.
19. tw. VTTCAN 5