Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 6
HILLUSKILRIÍM
teiknuð af Þorkeli G. Guðmundssyni, húsgagnaarkitekt.
Smíðum hilluskilrúm úr öllum viðartegundum.
Leitið upplýsinga og fáið tilboð hjá framleiðanda.
Sverrir Hallgrimssoi
Smíðastofa, Skipholti 35, sími 36938.
VIÐARÞILJUR
í miklu úrvali.
*
Viðartegundir. eik, askur, álmur, beyki, lerki,
fura, valhnota, teak, mansonia,
caviana.
HARÐVIÐUR og þilplötur, ýmsar tegundir.
IJLASTPLÖTUR, Thermopal, ýmsir litir.
*
Harðviðarsalan sf.
Þórsgötu 14, símar 11931 og 13670.
Pillan morguninn eftir
Kæri Póstur!
Mig langar að þakka þér fyrir
allt gott og Vikunni yfirleitt fyr-
ir að vera eina lesandi þlaðið á
íslandi.
É'g er 18 ára gömul og meira
en hálftrúlofuð strák, sem er 19
ára. Við getum ekki gift okkur
fyrr en eftir 2—3 ár vegna náms
okkar og þar af leiðandi viljum
við ekki eignast börn. Við vilj-
um samt lifa okkar eðlilega sam-
lífi, eins og vant er um hjóna-
efni. En ég vil ekki taka pilluna
að staðaldri, vegna þess, að unn-
usti minn dvelst oft langdvölum
að heiman, en hef mikinn áhuga
á að taka svokallaða „eftir á
pillu“, sem tekin er eftir hverj-
ar samfarir. Viltu gjöra svo vel
að segja mér allt um það, hvern-
ig hún er notuð og allt henni
viðvíkjandi og hvernig hægt er
að nálgast hana.
Segðu mér ekki að fara til
læknis, því að á því hef ég eng-
in tök, vegna þess, að ég bý úti
á landi og foreldrar mínir viður-
kenna ekkert eðlilegt samlíf fyrr
en eftir giftingu og eru á móti
öllum getnaðarvörnum.
Elsku Póstur minn! Viltu nú
ekki leysa úr þessum vanda fyr-
ir okkur, og ég skal vera þér
eilíflega þakklát.
Og svo að lokum: Hvað sérðu
út úr skriftinni?
K.
Fyrir nákvæmlega ári síðan birti
Vikan ítarlegustu upplýsingar um
pilluna, sem hægt var að fá þá.
Það var heil bók eftir alla kunn-
ustu lækna og vísindamenn á
hessu sviði í Bretlandi. Efnið var
í formi spurninga og svara. —
Þarna var hvergi sagt frá „eftir-
á-pillu“, en hins vegar spurt í
kafia nm pilluna og framfarirn-
ar hvort ..morguninn-eftir-pill-
an“ sé hugsanleg. Svariff viff því
hl.jóffaffi svo:
„Til að hindra getnað EFTIR
samfarir, þarf að taka tiltölulega
sterkan skammt af östrogeni 4—
6 daga þegar eftir samfarir, sem
eiga sér staff á líklegum egglos-
tíma. Það hindrar frjóvgað egg í
aff setjast aff í leginu, annað
hvort af því að það skemmist
eða fer svo hratt til legsins að
legið er ekki reiðubúið að veita
því móttöku. Við þetta er margt
að athuga, ekki sízt siðfræffilega
því hvenær verffur egg og
sæði tilvonandi mannvera? En
það sem þó mestu máli skiptir
er, aff bregðist þessi affferff, og
skaddað eða lamaff, frjóvgaff egg
nær að festa sig í leginu, má bú-
ast viff afbrigffilegu barni. Þessi
aðferff verður því að teljast
hættuleg."
Vel má vera, að komin sé á
markaff „eftir-á-pilla“. Framfar-
irnar eru örar á þessu sviði og
eitt ár er liðiff, síðan þetta birt-
ist. En það verður að Ieita lækn-
is til aff fá pilluna hverrar teg-
undar sem hún er, — svo aff þú
kemst alla vega ekki hjá því. —
Út úr skriftinni lesum við heil-
steyptan persónuleika. Þú ert
blíðlynd, en þó ákveðin og veizt
hvaff þú vilt.
GóS leiðabreyting, en
leiðinleg biðskýli
Virðulegi Póstur!
Einhver skrifaði þér um dag-
inn og fáraðist yfir nýju leiða-
breytingunni, og það meira að
segja, áður en hún kom til fram-
kvæmda! Ég er alveg ósammála
þessum bréfritara. Ég held, að
þessi breyting sé til bóta. Að
vísu þurfa allflestir að ganga
lengra á stoppistöðvar, en ýmis-
legt hagræði kemur á móti, sem
er miklu þyngra á metaskálun-
um. Nýju leiðirnar eru lengri og
má því komast beinustu leið
milli bæjarhluta. Ég er til dæm-
is nákvæmlega átta mínútum
fljótari til vinnu minnar nú en
áður. Hins vegar vildi ég kvarta
yfir öðru atriði, sem ég hélt nú
að yrði lagfært í sambandi við
þessa djörfu breytingu. Það eru
biðskýlin. Hvenær skyldi verða
komið einhverju lagi á þau? Það
er ekki forsvaranlegt að láta
mann híma í hvernig veðri sem
er undir berum himni.
Með þökk fyrir birtinguna
og beztu kveðjur.
B.
Menn deila svolítiff um strætis-
vagnana og hina nýju skipan á
leiffum þeirra, enda er hér um
að ræða gagngera breytingu. En
yfirleitt virðast menn vera nokk-
uð ánægðir. Það var sagt frá því
í einhverju dagblaffanna um dag-
inn, aff í ráffi væri að setja upp
8 ný trefjaglersbiffskýli, svo aff
vonandi þarf B. ekki að veðrast
til skaða í framtíðinni.
6 VIKAN
19. tbl.