Vikan - 06.05.1970, Page 13
þann sjálfsaga, sem okkur finnst
stundum vanta á landi hér, og
að sjálfsögðu einnig til að efla
Heilsuræktina sjálfa.
— Og aðsóknin hefur verið
með ágætum?
— Ég byrjaði með fjórar kon-
ur, en talan fór upp í fimm
hundruð á einu ári. Nú eru
hérna hátt á sjöunda hundrað
manns.
— Er aðsóknin jafnmikil af
hálfu karla og kvenna?
- - Nei, því miður. Karlmenn-
irnir hjá okkur eru aðeins sex-
tíu til sjötíu, en konurnar hátt
á sjötta hundrað. Til þessa mis-
munar liggja efalaust ýmsar
eðlilegar ástæður. Okkur sár-
vantar fleiri karlmenn. Þeir lifa
skemur en við, en við getum
ekki lifað án þeirra. Og einn af
-9- Þrír af þjálfurum karlaflokka
Ileilsuræktarinnar, Gunnar Torfason,
Úlfur Ragnarsson og Stcinar Július-
son.
okkar ágætu þjálfurum eyðilagði
hjá okkur öll sín föt, því að ell-
efu sentimetrar fóru af mittinu,
en brjóstkassinn breikkaði að
sama skapi. En varðandi
karlmennina hjá okkur er
það athyglisvert að um tíu
þeirra eru læknar, en sú stétt
manna ætti einmitt öðrum frem-
ur að vera dómbær á gildi þess
starfs, sem hér er unnið. Lækn-
arnir okkar hafa líka veitt okk-
ur ómetanlegan stuðning með
ráðleggingum læknisfræðilegs
eðlis. Til dæmis hafa þeir útbú-
ið fyrir okkur eyðublað, sem
allir umsækjendur verða að út-
fylla, og yfirfara síðan upplýs-
ingarnar, sem þannig fást, og
skera úr um að hve miklu leyti
hlutaðeigandi umsækjandi geti
lagt á sig þá áreynslu, sem þjálf-
uninni fylgir. Raunar má segja
að læknar séu sú stétt, sem sjálf-
ir hafi hvað mesta þörf fyrir þá
herzlu og þjálfun líkamans og
jafnframt þá andlegu sem lík-
amlegu slökun eða afslöppun,
sem fólgin er í æfingum okkar.
i
i m
f'/ ',/ , ,, , // '//,
mm
wr-,
r
Síðustu fimmtán mínútur þjálf-
aratímans eru helgaðar slökun eftir
erfiða æfingu.
Blaðamaður Vikunnar ræðir hér við t
hjónin frú Ástu Guðvarðardóttur og
Úlf Ragnarsson lækni, og aðra þjálfara.
Líf lækna er fullt af streitu og
spennu, enda er sagt að þeir séu
hvað skammlífastir allra stétta,
ásamt leikurum, barþjónum og
blaðamönnum.
Jóhanna hafði þegar tekið fram
að þjálfararnir þjálfuðu alltaf
ókeypis, enda er samkvæmt
yogareglum bannað að taka
greiðslu fyrir fræðslu í þeim
eða nokkru, sem þær snertir. -—
Ég er ákaflega þakklát fyrir hve
þjálfarar Heilsuræktarinnar hafa
gott af þessu, sagði Jóhanna. —
Þau eru hvert öðru hressilegri,
Framhald á bls. 32.
19. tbi. VIKAN 13