Vikan - 06.05.1970, Síða 30
Guðni Pálsson, hinn fjölhæfi og snjalli saxófónleikari Roof Xops.
HEYRAMÁ
(þó lægra sé látið)
ÖMAR VALDIMARSSON
Tilvera flutti meðal annars lag eftir gítarleikarann, Axel Einarsson, og var
þeim vel fagnað. Frá vinstri eru Pétur, Axel, Engilbert og Jóhann.
VETTVANGIIR ÆSKUNNAR
Keppnin um fulltrúa ungu kyn-
slóSarinnar 1970 var haldin þann
16. apríl síðastliðinn. Um úrslit þarf
ekki að fjölyrða, um þau er ekki
nema eitt gott að segja, en mig
langaði til að fara nokkrum orðum
um frammistöðu þeirra hljómsveita
og skemmtikrafta sem fram komu á
skemmtuninni.
Það sem mér hefur alltaf fundist
ábótavant við þessa skemmtun, eða
réttara sagt ofaukið, eru popphljóm-
sveitirnar sem þarna troða upp. Til
allrar hamingju var engin keppni
haldin í ár og er það spor í rétta
átt. En að hlusta þarna á fimm hljóm-
sveitir auk tveggja skemmtikrafta
(fyrir utan það sem stúlkurnar sjálfar
höfðu fram að faera) var mér eigin-
lega meira en nóg. í fyrsta skipti
á ævinni var ég orðinn hundleiður
á popptónlist — og í fyrsta skipti
á ævinni fékk ég í höfuðið vegna
hávaðans. Það sem ég á við er að
hljómsveitirnar draga að sér allt of
mikla athygli — þannig að höfuð-
tilgangur samkomunnar, keppnin um
fulltrúa ungu kynslóðarinnar, verð-
ur aukaatriði. Vonandi stendur þetta
til bóta á næstu skemmtun.
Það voru Pops sem opnuðu
skemmtunina, með gömlu og góðu
blueslagi, sem þeir gerðu mjög góð
skil. Pops var önnur tveggja beztu
hljómsveitanna það kvöldið, hin var
Ævintýri. Ég hef það oft farið fögr-
um orðum um Pops í þessum þætti,
að ég geri það ekki aftur — en I
guðanna bænum, Pétur minn, láttu
aðeins stytta á þér hárið!
Næstir voru Roof Tops, sem fluttu
heilmikið lag, mjög vel í allastaði
og höfðu þeir fléttð inn í það heil-
mikilli ræðu um einhvern Búbúlala
og óvini ríkisins. Hugmyndin er stór-
snjöll. Það er synd að svo góð hljóm-
sveit skuli vera að leysast upp, en
Guðni Pálsson og Sveinn Guðjóns-
son hafa hugsað sér að leggja hljóð-
færaleik á hilluna með sumrinu, og
er enn óákveðið hvort hinir halda
áfram. Þó er það sennilegra — og
einhversstaðar heyrði ég því fleygt
að Erlingur Björnsson, fyrrverandi
gítarleikari Hljóma og núverandi
umbi Trúbrots, hafi hug á því að
slást í hópinn. Þó er betra að trúa
svona hlutum varlega, því Erlingur
Hér ræðir Svavar Gests við danska t
umboðsmanninn, Peðcr Abrahamson,
sem sagði íslenzkar hljómsveitir hafa
komið sér á óvart — og þótti það
merkileg yfirlýsing!
^ Einhvers staðar á bak við þetta hár
allt saman er Björgvin Gíslason, gít-
arleikari Náttúru, en hljómsveitin
flutti m. a. lag eftir hann.
Ríó-tríó flutti nokkur lög, og hér
eru þeir að flytja lag af væntanlegri
hijómplötu sinni, en texti þess lags
fjallar um eiturlyfjancyzlu frá sjón-
arhóli ástvinanna.
30 VIKAN 19-tbl-