Vikan


Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 34

Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 34
BIBLÍAN RIT HENNAR í MYNDUM OG TEXTA TILVALIN FERMINGARGJÚF BIBLÍAN - RIT HENNAR í MYNDUM OG TEXTA er falleg myndabók f alþjóðaútgáfu og bezta ferm- ingargjöfin sem völ er á. Hór er um að ræða nýsfár- lega túlkun á heilagri ritningu, sem fellur ungu fólki vel í geS. Myndirnar, sem danska listakonan Bierte Dietz hefur gert, eru litprentaSar f Hollandi, en textinn er prentaður hérlendis. Magnús Már Lárusson, háskólarektor, hefur annazt útgáfuna og rit- ar inngang og ágrip af sögu fslenzkra BiblíuþýSinga frá upphafi. Þetta er vönduS og glæsileg mynda- bók. sem hentar sérstaklega vel til fermingargjafa. Fæst hjá næsta bóksala HILMIR HF. SKIPHOLTI 33 PÖSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK STJÖRNUSPfl*^ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Það verður fremur rómantískt andrúmsloft sem ræður í einkalífinu þessa vikuna og á það eins við um þá sem eru harðgiftir og þá sem ólofaðir eru. Þú hafnar að líkindum fjárhagslegum ábata. Nautsmerkið (21. apríl — 21. mal): Nokkrar óveðursbiikur eru á lofti. Þú ættir að forð- ast allar rökræður og stælur, þótt þér finnist haiiað á rétt þinn. Notaðu eitthvert kvöldið til kunningja- heimsóknar, það hressir þig upp. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní); Þú hefur í huga nokkrar breytingar á högum þin- um, en að svo komnu máli ættirðu að hika svolítið og litast betur um. Þú færð gott tilboð í hlut sem þú átt. Þú leitar ráða hjá vini þínum. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú færð góða aðstoð frá ungum meðlimum innan fjölskyldu þirrnar, en það mun einnig verða ákveð- inn aðili sem tefur mikið fyrir þér. Kannaðu mögu- leikana á því að fara í ferðalag yfir helgina. Ljónsmerkið (24. júlf — 23. ágúst); Þú eyðir miklum tíma í að hjálpa öðrum og upp- skerð laun sem þú ert í aðra rönd ánægður með, en verður fremur lítið úr. Mál sem þú hélzt að væri út af dagskrá tekur á sig nýja mynd og óvenjulega. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú verður eitthvað upp á kant við tilveruna og sér- staklega munu vinnufélagar þínir fara í taugarnar á þér. Þú verður að taka að þér margbrotið og van- þakklátt verkefni vegna forfaUa einhvers. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þér verður mun meira úr fjármunum þínum en þú hafðir þorað að vona. Kunningi þinn tekur þig með sér í stutt, en mjög skemmtilegt ferðalag. Þú kynn- ist nýju fólki. Heillatala er fjórir. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Það verður margt um að vera og mikið hugsað þessa dagana. Láttu ekki aðra hugsa fyrir þig, reyndu að mynda þér þínar eigin skoðanir á mönnum og mál- efnum. Þú slæst í félagsskap íþróttafólks. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú ert ekkert ánægður með tilveruna og hefur það á tilfinningunni að þú lifir of einangraður frá um- heiminum. Hristu þetta þunglyndiskast af þér með því að kíkja inn hjá kunningjum og ræddu málin. Steingeitarmerkið (22. desember — 20 janúar): Þeir tímar sem nú fara í hönd eru mjög vel fallnir til þess að auka andagiftina eða þroska einhverja ákveðna hæfileika með þér. Reyndu að smita kunn- ingja þína af góðri hugmynd sem þú færð. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú tekur nú loksins til starfa við verkefni sem þú hefur undirbúið af mjög mikilli kostgæfni. Gættu þess að fara varlega að öllu í samskiptum þinum við aðra. Maður nokkur gerir þér smágreiða. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Það er eins og vissir hlutir i eigu þinni reynist þér alltaf jafnilla, hversu oft sem þú skiptir um. Reyndu að læra eitthvað af reynslunni og svo er þér líka alveg óhætt að þiggja ráð annarra. 34 VIKAN 19- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.