Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 44
BMW....
Öryggi,
i, útlit
BMW:
Bifreið fyrir yður
BMW: er byggður fyrir aila vegi ... líka íslenzka..
BMW: hefur kraftmikla vél, sem tryggir góða end-
ingu og getur bætt við þeim sekúndum,
sem á skortir á hættulegum augnablikum.
BMW: hefur um nokkurt skeið verið framleiddur
með ýmsum tæknilegum nýjungum, sem
aðrir framleiðendur líkja nú eftir í æ rík-
ari mæli, svo sem: hina sjálfstæðu fjöðrun
á hverju hjóli, hið tvöfalda hemlakerfi o. fl.
BMW: hefur stöðugt aukið vinsældir sínar á ís-
landi. Þess vegna bjóðum við yður allar
gerðir af BMW, en mælum sérstaklega
með BMW 1600 og BMW 1800.
Leitið frekari upplýsinga.
KRISTINN GUÐNASON HF
KLAPPARSTÍG 25-27, SÍMI 22675
— Við reynum að láta
börnin vinna sem mest sam-
an. Þau sem eru glaðlynd og
opin hafa góð áhrif á þau sem
eru þung í skapi og innhverf.
Dagurinn í Blackerton
House byrjar venjulega með
því að Alan (mongoloid
drengurinn) þrammar niður í
eldhúsið til að fá sér te.
Morgunverður er klukkan
hálf níu og hálftíma seinna
eru allir komnir til verka. Há-
degisverður er klukkan eitt,
og á kvöldin safnast allir sam-
44 VIKAN 19-tbl-
an til tedrykkju, en það sem
eftir er kvöldsins mega þau
gera það sem þau vilja. Þau
hlusta á útvarp, horfa á sjón-
varp, eða sitja og gera hrein-
lega ekki neitt.
— Ég held að það sé
ekki rétt að ráðstafa öllum
tíma þeirra, þau verða að fá
að hangsa svolítið. Við reyn-
um líka að láta þau skipta
oft um skyldustörf, svo hægt
sé að finna hvað bezt er við
hæfi hvers og eins. Ef það
rignir, förum við1 í göngu-
ferðir, eða liggjum í leti, seg-
ir Eorbes.
Það er ekki hœgt að líta
f ramhjá kynferðismálunum
Kvöldið sem blaðamenn
voru í heimsókn í Blackerton
Ilouse, las Alan upp úr
„Camelot“. Hann hafði
skreytt sig með gríðarmiklu,
rauðu skeggi, baðaði út hönd-
unum og horfði á spegilmynd
sína, með mikilli ánægju.
Rödd hans var lág og áköf.
Eftir á hló hann með sjálfum
sér í klukkutíma, af ánægju
yfir frammistöðu sinni.
Fyrir framan arineldinn
sitja Michael og Roger. Þeir
tísta af ánægju yfir því að
þeim hefir verið boðið í brúð-
kaup. Hjá þeim stendur Jenny
og virðir fyrir sér hverja
hreyfingu þeirra. Carol, sem
er lagleg, ljóshærð stúlka, sit-
ur í sófa og virðir þau fyrir
sér með vorkunnarsvip. Hún
er með hvíta hjúkrunarkonu-
svuntu.
— Carol er með hæsta
greindarvísitölu af öllum
börnunum okkar. Þessvegna
er henni ljós vöntunin, og það
kvelur hana. Við látum hana
vera með þessa svuntu og
hjálpa til við framreiðsluna.
Það veitir henni svolítið
sjálfsöryggi. Carol gæti gifzt
og séð um heimili, en það yrði
henni mjög erfitt. Þetta er
eitt af erfiðustu vandamálum
okkar. Ekkert af þessu fólki
hefir verið yfirlýst geðveikt.
Lagalega séð, geta þau farið
hvert sem þau vilja og hve-
nær sem er, og þau geta kært
okkur fyrir yfirvöldunum, ef
við reynum að hefta för
þeirra. Þessi lagalega aðstaða
til þessa „fullorðna" fólks
býður upp á mikil vandræði,
ekki sízt siðferðilega. Kyn-
ferðismálin eru annað vanda-
málið, sérstaklega þegar átt
er við framtíðarheimili fyrir
bæði kynin.
— Okkur fannst rangt að
mynda sambýli og aðskilja
kynin. Þá var þetta ekki
„venjulegt“ heimili. En ef við
verðum vör við að einhver
vandamál vegna þess séu í
uppsiglingu, þá verðum við
að finna aðra leið. Sem betur
fer verða þessi börn sjaldan
háð hvert öðru. Þau slá ást
sinni á fullorðna fólkið, og
hjá okkur eru þau mjög hænd
að mér og samstarfsfólki
mínu. Það getur aldrei komið
til mála að við leyfðum ásta-
sambönd eða hjónabönd hér á
heimilinu. Það væri að kalla
yfir sig ógæfuna. Við yrðum
að taka til greina þá stað-
reynd að bað gæti haft í för
með sér afkvæmi. Það er ekki
þár með sagt að þetta fólk
geti ekki átt heilbrigð af-
kvæmi, þar sem vöntun er
sjaldan arfgeng. En börn
slíkra foreldra myndu ekki
hafa möguleika á að alast upp
við eðlileg skilyrði.