Vikan - 09.07.1970, Qupperneq 5
í engri spjör
Marty Feldman er frægasti
sjónvarpstrúður Bretlands og
raunar þekktur um allan heim
fyrir sjónvarpsþætti sína. Hann
hefur fyrir nokkru lokið við gerð
fyrstu kvikmyndar sinnar, og
það hefur sannarlega ekki verið
hljótt um þá mynd. Ástæðan er
sú, að Marty sjálfur og aðrir
leikarar i myndinni koma þar
fram bókstaflega í engri spjör,
eins og msðfylgjandi mynd sýn-
ir. Aðalmótleikari Martys er
norska fegurðardrottningin Julie
Ege. Svo mikið fjaðrafok varð
út af myndinni, að þingmenn
neðri málstofunnar tóku málið
til meðferðar. Margir vildu
banna myndina, að minnsta kosti
fyrir börn. En sú tillaga var
felld, svo að í sumar geta brezk-
ir kvikmyndahúsgestir horft á
Marty og norsku fegurðardrottn-
inguna striplast allsnakin úti í
guðs grænni náttúrunni.
Eddie Fisher með
norskri stúlku
Hinn heimsfrægi dægurlaga-
söngvari Eddie Fisher, sem í eina
tíð var kvæntur Elisabet Taylor,
hefur um tíma verið trúlofaður
norskri stúlku, sem heitir Ida
Björn-Hansen. Fyrir nokkru
voru skötuhjúin í Noregi og
heilsuðu upp á foreldra Idu. En
þau dvöldu þar aðeins í fáeina
daga, en héldu þá til Spánar.
Þar hafa þau keypt sér dýrindis
villu. Þau sögðu við norska
blaðamenn, að þau hefðu ekki í
hyggju að gifta sig — að minnsta
kosti ekki í bráð.
• vísur vikunnar
Frægðar njóta sem forðum frónskar konur og menn og landar í vestrinu villta vita þann sannleik enn.
Þeir sækja áanna óðöl af elju og festu heim; í túni, teig eða varpa tekin er mynd af þeim.
En framan við geil og galta gamla tóft eða stekk listfengu Linkers-hjónin ljósmynda Richard Beck.
Já, ennþá á sérhverju sumri þeir sækj’ á hin frónsku mið, því ættjarðarástin treinist í annan og þriðja lið.
ÁreiSanlegasta klukka
Svíþjóðar
Sixten Karlsson var ekki nema
smástrákur, þegar hann hóf
smíði klukkunnar, sem við sjá-
um hér á myndinni. í 35 ár hef-
ur hann notað hverja frístund
til að fullgera hana, og nú er
verkinu loksins lokið og hann
þar með orðinn eigandi áreiðan-
legustu klukku í Svíþjóð og ef
til vill allri Evrópu. í næsta
skipti sem þarf að stilla klukk-
una er ekki fyrr en árið 2000!
Á hverjum heilum klukkutíma
slær klukkan ekki, heldur leik-
ur ofurlítinn lagstúf. Klukkan
mælir ár, mánuði, viku, dag,
klukkutíma, mínútu og sekúndu.
— Þetta er stórkostleg klukka,
þótt ég segi sjálfur frá, segir
hinn stolti eigandi hennar. — En
hún er líka búin að kosta mig
óskaplegt erfiði.
Aldrei tími til að skíra
í hvert skipti sem við höfð-
um ætlað okkur að fara með
barn í kirkju og láta skíra það,
var það orðið um seinan, því að
þá var nýtt á leiðinni, segir frú
Ragnhild Eriksson frá Váster-
götland í Svíþjóð. — Þá hugs-
uðum við sem svo, að bezt væri
að bíða þangað til það nýja væri
komið.
Nú eiga Eriksson-hjónin tiu
börn og er það elzta 14 ára en
hið yngsta tveggja mánaða. Og
loksins í vor voru þau öll tíu
skírð í einu við hátíðlega athöfn.
Á myndinni sjáum við prestinn
og foreldrana með allan barna-
hópinn sinn.
1ÉÍÉ!<
;
v, Jlpv
^ 111 ,
28. tbi. YIKAN 5