Vikan - 09.07.1970, Síða 44
hljómsveitarinnar þetta kvöld við
það að rétt við sviðið sátu fjórir
Bretar, sem undir einu nafni eru
þekktir sem LED ZEPPELIN.
„Það er pressan sem gildir á
mann", sagði Rúnar, og er það
ábyggilega rétt. En um leið bendir
það til þess að fái hljómsveitin
nægilegt aðhald geti hún gart
miklu betur en hún hefur gert hér
hingað til — og það þykir nú bara
þó nokkuð.
Þvl miður tekst okkur ekki að
koma myndum og grein um Led
Zeppelin-hljómleikana á prent fyrr
en þann 23. júlí, n.k., en við reyn-
um að gera þess meira úr því í
staðinn.
ó.vald.
Lifandi kyndlar
Framhald af bls. 15.
ástarsorg hafi valdið hér nokkru um;
faðir Caroline hafði skömmu áður
bannað henni að umgangast einn
vin hennar. Alain Braciotti, tvítugur
stúdent, virðist hinsvegar hafa haft
eitthvað svipað í huga og Regis Tal.
I bréfi sem hann lét eftir sig stóð:
„Ég verð að svipta mig lífi á sama
hátt og Búddamunkarnir." Hér er átt
við munkana I Víetnam, sem
brenndu sig á dögunum í mótmæla-
skyni við stjórnarvöldin í Saigon og
yfirgang Bandaríkjanna í Víetnam.
Alain kveikti I sér í íbúð foreldra
sinna í Marseille, og brann íbúðin
með honum ásamt öllum eigum for-
eldranna.
Hinsvegar er ekkert vitað um
sjálfsmorðsástæður Odile Tschaen,
tvítugrar stúdínu. Hún fór til Eng-
lands og réði sig þar í vist, en
skömmu síðar brenndi hún sig til
bana þar sem hún var stödd ein-
sömul í einum Lundúnagarðanna.
Nokkuð skiljanlegri eru endalok
Michels Cochets, tuttugu og átta ára
gamals stúdents. Hann hafði frá
barnæsku þjáðst af taugaveiklun og
lengstum verið undir læknishendi.
Talið er að þunglyndi sem leiddi til
snöggrar brjálsemi hafi leitt hann
til sjálfsmorðsins. Hann svipti sig
lífi í bílskúr foreldra sinna. Ná-
grannakona ein varð bálfararinnar
vör og reyndi að slökkva í Cochet
með teppi, en án árangurs.
Claude Chabry, tuttugu og fimm
ára, leitaði dauðans í einsemd ná-
lægt spænsku landamærunum, þar
sem tollverðir fundu kolbrunnið lík
hans. Þunglyndi og lífsuppgjöf er
talið hafa valdið mestu um sjálfs-
morðið. Chabry hafði stundað nám
í læknisfræði, en hafði hætt í há-
skólanum hálfu ári áður. I bíl hans
skammt frá sjálfsmorðsstaðnum
fannst blómvöndur, sem talið er að
hann hafi annaðhvort ætlað móður
sinni, aldraðri og blindri, eða vin-
konu sinni. Ekki lét hann neina skýr-
ingu eftir, frekar en flestir hinna.
Eins og í mörgum hinna tilfellanna
hefur skyndileg brjálsemi af völdum
yfirþyrmandi þunglyndis líklega
rekið hann út I dauðann.
Uppeldis- og sálfræðingar hafa
auðvitað gruflað heilmikið í þessum
óhugnanlega brennusjálfsmorðafar-
aldri, og sýnist sitt hverjum. En aug-
Ijóst er þó að sum þessara ung-
menna, og þá fyrst og fremst Tal,
tortlmdu sér á þennan hroðalega
hátt í beztu meiningu. Sú staðreynd
að Tal var kaþólikki, af trúarflokki
sem fordæmir sjá|fsmorð óvenju
sterklega, gerir sjálfsfórn hans enn
áhrifameiri. Hann er dæmi um
óvenju sannheiðarlegan ungling,
sem tekur þann siðferðilega lærdóm,
sem heimurinn opinberlega þykist
fylgja, í fullri alvöru og fyllist ör-
væntingu þegar hann finnur fyrir
hræsninni sem yfirstígur þann lær-
dóm í framkvæmd.
Um flest það fólk er fylgdi dæmi
Tals gegnir nokkuð öðru máli. Það
hafði fæst miklar áhyggjur af illsku
og hræsni heimsins, heldur hafði
gefizt upp á lífinu af hinum og
þessum persónulegum ástæðum.
Sumt af þvf hefur ef til vill ekki
verið laust við hneigðir til sjálfs-
kvalar eða exibisjónisma. Það vildi
kveðja lífið á áhrifamikinn hátt, ef
til vill í von um að þeir sem eftir
lifðu héldu ekki að ástæður þeirra
væru ragmennska við erfiðleika
lífsjns, eins og algengt er að bera
sjálfsmorðingjum á brýn.
Við eigum að selja það
sem við sýnum
Framhald af bls. 13.
— Já, á vissan hátt á sii
stiilka sem er módel, framtíð
fyrir sér á Islandi, því að fólk
er að gera sér grein fyrir því
smátt og smátt að þetta er
margfalt áhrifameiri auglýs-
ing en ljósmynd í dagblaði,
og ég tel það að miklu leyti
Kaupstefnunni að þakka. Al-
menningur er að vísu ennþá
svolítið „skeptískur“ á þessa
hluti, en ég hef trú á, að það
megi laga með því að gera
tízkusýningar tabú þar sem
önnur skemmtiatriði eru, eins
og ég nefndi áðan í sambandi
við dansleikina. Það er í sjálfu
sér allt í lagi að hafa dans og
skemmtiatriði á eftir, en sjálf
tízkusýningin verður að fá að
njóta sín sem sérstök heild.
— Það er alveg rétt, þeir
og þær sem í þessu eru, eru
yfirleitt það sem maður kall-
ar „týpur“. En fólkið er alls
ekki valið þannig. Þessi stúlka
þarna, segir María og bendir
á eina stúlkuna sem snarsnýst
á gólf'inu, — var til dæmis
mjög venjuleg áður en hún
byrjaði hérna hjá mér. Nú
vekur hún athygli hvar sem
er, ekki eingöngu fyrir klæða-
burð heldur og persónuleika
og framkomu. Já, kaílmenn-
irnir hafa venjulega verið
heldur kvenlegir, en við
leggjum mikla áherzlu á að
laga það, því ég segi fyrir mig,
að ég vil láta karlmenn sýna
karlmannafatnað og kvenfólk
kvenfatnað.
— Þessi stúlka þarna, hekl-
ur María áfram, — er hér í
fyrsta skipti í kvöld — en
komdu aftur í haust og sjáðu
hana þá. Ég skal benda þér á
hana, því það er nærri því úti-
lokað að þú komir til með að
þekkja hana aftur. Um leið og
fólk kemur hér inn þá breyt-
ist það af sjálfu sér. Það fer
að liugsa meira um útlit sitt
og framkomu, svo það sker
sig úr. Líf okkar er jú öðruvísi
en annarra og mér finnst það
alveg rétt. Að vísu er ég ekki
að meina að við blöndum eða
eigum að blanda saman okk-
ar einkalífi og vinnu, en mað-
ur hlýtur að verða fyrir áhrif-
um af því sem maður hefur
gaman af.
Loksins. Loksins eftir allt tekkiS: Plra-
System gefur ySur kost á aS Iffga uppá
híbýli ySar. Ljósar viSartegundir eru
sem óSast aS komast í tízku. Framúr-
skarandi í barnaherbergi. SkrifborS úr
Ijósri eik. Uppistöðurnar svartar eða
Ijósgráar eftir vali. Smekklegt, nýtt,
margir uppröðunarmöguleikar.
Hvorki skrúfa
né nagli í vegg.
Ekkert annað hillukerfi
hefur þessa kosti.
Því ekki aS velja ódýrustu lausnina,
þegar hún er um leiS sú fallegasta.
LífgiS uppá skammdegisdrungann með
Ijósum viði. Skiptið stofunni meS Plra-
vegg. Frístandandi. Eða upp viS vegg.
Bezta lausnin í skrifstofúna. Höfum
skápa, sem falla innf. Bæði í dökku og
Ijósu. Komið og skoðið úrvaliS og
möguleikana hjá okkur. Pira fæst ékki
annarsstaðar.
Frábær lausn í
húsbóndaherbergið
EINKAUMBOÐ FYRIR PIRA-SYSTEM A ISLANDI
F
HIIS 00 SKIP Ármúla 5 - Sími 84415-84416
44 VIKAN 28- tbl'