Vikan - 09.07.1970, Qupperneq 45
NYTT FRA RAFHA
NY ELDAVÉL GERÐ HE6624. 4 hellur, þar af 1 með stiglausri
stillingu og 2 hraðsuðuhellur, stór ofn, 56 lítra, yfir- og undirhiti
fyrir steikingu og bökun, Ijós í ofni. Fæst með eða án glóðar-
steikar elements (grill). — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
VIÐ ÖÐINSTORG - SlMI 10322
Við fylgjumst með enn um
stund, tökum nokkrar mynd-
ir en þá er orðið framorðið og
meðlimir Tízkuþjónustunnar
þurfa að ræða nokkur „innan-
ríkismál“ áður en haldið er
heim í háttinn.
ó.vald.
Þeir kveðja
steinaidarmenninguna
Framhald aí bls. 25.
tveim af ættflokk „undir-
skála“ fólksins. Þar átti hann
að leggja skýrslur fyrir ríkis-
stjórnina, um vandamál þess-
ara fámennu ættflokka.
Peret kaus sér til fylgdar
tvo pilta, Kai'rá, sem er þrett-
án ára og Tairi, bróður hans,
sem er sautján ára.
Margir voru undrandi yfir
vali hans, en Peret slcýrði það
á mjög sannfærandi hátt:
— Það er ekki hægt að um-
planta gömlum trjám. Ungl-
ingar, sem ekki eru búnir að
festa rætur, eiga betra með
að breyta um lifnaðarhætti,
eru opnari fyrir nýjungum.
Þessvegna kaus ég að láta
þessa unglinga kynnast hinni
svokölluðu siðmenningu, til
þess að geta sagt frá því sem
þeir hafa upplifað, þegar þeir
koma aftur heim til ættflokks-
ins. Það getur verið að þeir
hafi hug á að yfirgefa stein-
aldar-lífið og hverfa til menn-
ingarinnar. Ég vona ]iað....
Þetta segir Peret, vegna
þess að hann veit að þetta
fólk verður að segja skilið við
aldagamlar lífsvenjur, ef þeir
eiga að lifa af í hinum nýja
heimi.... ☆
RabbaS um ...
Framhald af bls. 9.
Bikarmeistararnir frá því í
fyrra, lið Akureyringa, er heldur
sterkara nú en það hefur áður
verið í byrjun móta undanfar-
inna ára. Samt hefur liðið aðeins
hlotið eitt stig úr tveim fyrstu
leikjunum. í fyrri leiknum gegn
KR leiddu þeir leikinn meiri
hluta hans, en féllu í þá gryfju
að ætla að láta þetta eina mark
nægja, en slíkt er aldrei hægt
gegn KR. Enda fór svo að Eilert
jafnaði fyrir KR seint í leiknum.
Síðari leikurinn sem var gegn
Fram, töpuðu Akureyringar og
átti landsliðsmarkvörðurinn Þor-
bergur Atlason mesta sök þar á.
Það hefur vakið nokkra furðu
að engin norðanmaður skuli hafa
komizt í landsliðið í ár, en Her-
mann Gunnarsson og Magnús
Jónatansson myndu að mínu viti
báðir styrkja landsliðið mikið.
Víkingar hafa sannarlega kom-
ið skemmtilega á óvart í sum-
um leikja sinna. Þeir leika hratt
saman, en þó ekki alltaf ná-
kvæmt, en röngu sendingarnar
verða ekki eins áberandi fyrir
það hversu mikil yfirferð er á
hverjum leikmanni og skilast því
boltinn oft til samherja, þó hon-
um hafi kannski ekki beinlínis
verið ætluð sendingin. Þá er það
og áberandi hvað lið þeirra er
skotglatt. Liggur stundum við að
jaðri við hreina bjartsýni, en það
er einmitt þetta atriði sem gerir
það að verkum að Víkingsliðið er
það skemmtilegasta á að horfa
sem nú leikur í I.-deild.
Sterkustu hliðar Víkings-liðs-
ins eru tengiliðirnir og framlín-
an. Þeir Guðgeir og Gunnar eru
sívinnandi og gefa nokkuð góða
bolta til framlínumannanna, Haf-
liða, Eiríks, Jóns og Kára, sem
allir eru mjög marksæknir.
Miklar breytingar hafa undan-
farið orðið á Valsliðinu, hafa
nokkrir hinna eldri leikmanna
félagsins ýmist lagt skóna á hill-
una, flutzt út á land og jafnvel
til útlanda. Það er því ekki von-
legt að liðið blandi sér í barátt-
una um efsta sætið í ár, eins og
það hefur gert undanfarin ár.
Liðið lenti í neðsta sæti í Reykja-
víkurmótinu í vor, á eftir tveim
annarrar deildar liðum. Ætti það
að nægja til þess að lýsa hinni
hættulegu stöðu sem félagið nú
er í. Minnstar breytingar hafa
orðið á vörn liðsins, og er hún
jafnframt sterkasti hluti þess.
Þorsteinn Friðþjófsson er tví-
mælalaust bezti vinstri bakvörð-
ur landsins í dag og ætti að leika
í þeirri stöðu í landsliðinu. f
framlínunni eru þeir einna
drýgstir Þórir og Ingi Björn.
Skortir þá aðeins leikreynslu og
þá mun þeirra tími koma.
Þórólfur Beck hefur nú um
nokkurt skeið þjálfað lið Vest-
mannaeyinga. Það er ekki hægt
að áfellast hann fyrir hina slæmu
byrjun liðsins nú, þar sem marg-
ir af beztu mönnum liðsins und-
anfarin ár leika ekki með því
lengur. Munar þar mest um þá
Sævar og Viktor. Þá hefur það
veikt liðið mikið að Þórólfur hef-
ur ekki getað leikið með því enn,
en hann hefur átt við meiðsli að
stríða að undanförnu. Vonandi
tekst Vestmannaeyingum að rétta
úr kútnum og forða sér frá yfir-
vofandi hættu í tíma, enda yrði
mikil eftirsjá í liðinu ef það
hyrfi aftur niður í aðra deild.
Keppnin í annarri deild virðist
ekki ætla að verða síður spenn-
andi en keppnin í þeirri fyrstu.
Nú er keppnin ekki lengur með
riðlafyrirkomulagi, sem gerir það
að verkum að leikjunum fjölgar
mjög mikið, eða úr sex leikjum
á lið í fjórtán. Þetta gerir það að
verkum að sterkasta liðið ætti
örugglega að koma út sem sigur-
vegari, en með eldra fyrirkomu-
laginu var meiri hætta á að
heppni réði um úrslit.
í byrjun mótsins virðist sem
keppnin ætli að standa milli
Þróttar úr Reykjavík, Breiðabliks
frá Kópavogi, Selfoss og lið ís-
firðinga um efsta sætið, en erfitt
er að segja til um hvaða lið er
líklegast til að falla niður í III-
deild. . ☆
FrægSin eyðilagði
hamingju hennar
Framhald af bls. 48.
að fá að vera heima hjá manninum
mínum. Mig langaði líka til að eign-
ast barn.
En svo fannst mér að ég hefði
þroskast við að fá þetta tækifæri, og
mig langaði til að sanna það fyrir
sjálfri mér. Barnið varð að blða. Þá
fékk hún hlutverk í annarri sjón-
varpskvikmynd, þar sem Nyree lék
duttlungafulla heimafrú. Gagnrýn-
endum fannst myndin í heild ósköp
ómerkileg, en Nyree sýndi þar að
hún er mjög góður skopleikari.
Svo hefir hún fengið nokkur sviðs-
hlutverk og sjónvarpshlutverk en öll
frekar smá. Hvar voru nú öll feitu
kvikmyndatilboðin? Nyree fór til
Hollywood, en fékk ekki hlutverkið,
sem hún átti von á, hlutverk með
Gregory Peck sem mótleikara.
Umboðsmaður hennar segir að
það sé vitleysa að leikur hennar í
Forsytesögunni hafi orðið til þess að
hún fái ekki góð hlutverk í framtíð-
inni. Hann telur upp mörg sjón-
varpsleikrit, sem séu í uppsiglingu.
— Og, bætir hann við, — að
minnsta kosit tvö stór kvikmynda-
hlutverk bíða hennar. En Nyree er
einhversstaðar á óþekktum stað um
tíma. Hún er niðurbrotin af sorg. . .
☆
28. tbl. VIKAN 45