Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 47
SIJÖRNUSPÁ^
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú verður fyrir nokkrum vonbrigðum við kynningu
á persónu er þú hafðir gert þér háar hugmyndir u.
Vinir þinir koma nokkru fyrr en þú hafðir gert ráð
fyrir, svo þú verður að hraða verkum þínum.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Öll viðskipti ættu að liggja niðri þessa vikuna, en
þú skalt samt líta í kringum þig og gagnrýna hlut-
ina. Með aðstoð nokkurra kunningja þinna sleppurðu
við nokkuð sem annars allir verða að takast á við.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú ert allur af vilja gerður til að aðstoða kunningja
þinn, en hvernig sem í pottinn er búið, þá náið þið
ekki saman. Hætt er við nokkurri misklíð á vinnu-
stað og skaltu forðast að blanda þér í málin.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Hugsanir þínar eru mjög á víð og dreif og þú átt
fremur erfitt með að einbeita þér að því sem þú
þarft að gera. Líkur eru á að þú dveljist mikið
neima við og starfir að málefnum fjölskyldunnar.
Liónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Ýmsar truflanir verða til þess að þú getur ekki
lokið ætlunarverki þínu. Þú þarfnast mjög ákveð-
ins hlutar en gengur illa að fá hann. Þú verður fyr-
ir einhverju eignatjóni, sem þér verður ögn bætt.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú verður að umgangast ýmsar persónur meira en
þú kærir þig um. Varastu að spilla tíma þínum og
nvíld með því að hugsa eilíflega um hversu mikið
er upp úr hinu og þessu að hafa. Heillatala er 3.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Maðui nokkur sem þú þekkir vel sýnir vissum at-
höfnum þínum verðskuldaða athygli og er líklegur
til að aðstoða þig ef þú hagar þér rétt. Vinir þinir
standa fyrir skemmtiferð sem þú ert ómissandi i.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú tefst nokkuð vegna þess að þeir sem aðstoða ættu
þig eru víðs fjarri. Vinur þinn verður mjög heppinn
um heigina. Þú gerir góða verzlun sem margir munu
öfunda þig af. Haltu smá partý fyrir fáeina útvalda.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.):
Þú skalt ekki vera í miklu fjölmenni um helgina,
heldur kjósa þér einveru eða einhvern rólegan stað
til að hvílast á. Láttu engan troða sér inn á þig sem
þú ekki vilt. Sýndu að þú getir staðið fyrir þínu.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar);
Undanfarið hefurðu eytt frístundum þínum við verk
sem þú hefur mjög takmarkaða kunnáttu á. Þú
lendir í smá ævintýri, líklegast um helgina eða
fljótt upp úr henni. Þú missir af góðu tækifæri.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. tebrúar);
Ef þú herjar á yfirmenn þína á réttum tima, þá
þarftu engu að kvíða, því í rauninni vilja þeir gera
ýmislegt fyrir þig. Þú ert dálítið taugaóstyrkur svo
þú skalt ekki vera mikið út á við. Heillalitur er blár.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú ergir dálítið samferðamennina vegna þess að þú
fylgist ilia með og hætt er á að þeim finnist þú
lítið skemmtilegur. Opnaðu stundum útvarpið og
littu í blöðin. Vinir þínir verða mjög fengsælir.
Húsmæður!
FegriS heimilið og gleðjið vini yðar með
blómum og blómaskreytingum.
KOMIÐ 0G VELJIÐ - VIÐ SENDUM.
NÆG BÍLASTÆÐI.
ÞRÍR ÚTSÖLUSTAÐIR:
v/Miklatorg, sími 22822.
v/Sigtún, sími 36770.
v/Hafnarfjarðarveg, simi 42260.
ATHUGIÐ
Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og
jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það
hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón
er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali.
Gott verð.
UTAVER
eSVEQI 22-24
30280-32262
28. tbi. VIKAN 47