Vikan


Vikan - 16.07.1970, Síða 3

Vikan - 16.07.1970, Síða 3
29. tölublaS - 16. júlí 1970 - 32. árgangur ,,Það var barið að dyrum og steinar kcmu fljúgandi úr lausu lofti. Og eitt sinn kcm vasahnífur þjótandi og festist í kassa". Þessir atburðir gerðust á bæ einum í Svíþjóð í fyrrasumar. Hjónin sem þar bjuggu voru staðráðin í að flytja þaðan vegna reimleikanna, þar til miðillinn Astrid Gilmark kom til skjalanna og leysti gátuna. Listahátíðin, sem haldin var hér í sumar- byriun, er ugglaust einn merkasti atburður, sem hér ^efur g?r-’t lengi. Einn af ótal- mörgum þáttum hennar var útisýning höggmynda á Skólavörðuholti. Þetta er fjórða sýningin, sem þar er haldin, en allar ha'a þær vakið óskipta athygli. I þessari Viku birtum við svipmyndir af hinum skemmtilegu og nýtízkulegu verkum sýningarinnar. Sá tónlistarviðburður nýliðinnar Listahátíðar i Reykjavík, sem flestir sóttu og mest veður var út af gert, voru hljómleikar pophljómsveitarinnar Led Zeppelin. Unglingarnir vöktu sumir heila nótt í biðröð til þess að fá miða og alls munu rúmlega 5000 manns hafa hlýtt á fjórmennlngana. I næsta blaði birtum við skemmtilega myndaseríu frá þessum einstæðu hljómleikum. „Faðir minn dó snemma að sunnudagsmorgni í júlí. Hann hafi legið lengi sjúkur og krafizt mikillar umönnunar. Við vorum öll við útförina, svartklædd. Ellen var róleg, drengirnir hnipnir og sjálf var ég dauðþreytt eftir að áralangri byrði hafði verið velt af herðum mínum .. ." Þannig hefst ný framhaldssaga, Arfur og örlög eftir Patricia Wentworth, en fyrsti kaflinn birtist næst. Maí formann er óþarft að kynna, en ekki er vist að mönnum hafi áður verið kynnir heimilishagir hans og einkamál. I þessu blaði segjum við frá hjónaböndum hans og heimilislífi og ýmsu cðrn skemmtilegu, sem ekki hefur áður verið á allra vitorði um Maó formann. í þessu blaði hefst athyglisverður greinaflokkur um mesta listaverkafalsara aldarinnar, Elmyr. I öðrum hlutanum segir m.a. frá því er Elmvr gekk á fund Pauls Rosenbergs, sem var Frakki og fulltrúi Picassos í New York. Hann þekktí snillinginn Picasso betur en nokkur annar, en samt lét hann blekkjast. i ÞESSARI VIKU í NÆSTU VIKU FORSÍÐAN Hekluð teppi eru nú mjög í tízku, og hér sjáum við hugmynd að einu. Hún er frönsk og Ijósmyndarinn hefur fellt teppið inn í fallegt landslag. I FULLRI ALVORU Vörðnbrot Kristjáns Það á ekki af myndlistarmönnunum, sem tekið hafa upp þá skemmtilegu nýbreytni sem útisýn- innin á Skólavörðuholti er, að ganga. Fram til þessa hefur það varla brugðizt að einhver undir- málslýður hafi þjónað lund sinni með því að fremja skemmdarverk á nokkrum sýningar- verkanna, auk þess sem veður oq vindar hafa gert sitt; við verðum bæði að fást við höfuðskepn- urnar og aðrar skepnur, sagði einn listamannanna um þennan ágang. Þetta árið hefur ekki heyrst að vandaiistar eða náttúruhamfarir hafi valdið neinu tjóni á sýning- unni, en ekki hafa öll sýningarverkin fengið að vera í friði fyrir því. Heilbrigðisyfirvöldin lá*u samkvæmt aðsendri kæru fjarlægja verk Kristjáns Guðmundssonar, vörðubrot úr heilhveitibrauði. Hafði verkið þá verið til sýnis nokkra daga og vakið verulega athygli. Sýningargestir brutu úr því mola og gæddu sér á, enda til þess ætlast af iistamannsins hálfu, og um síðir uppgötvuðu fuglar himinsins einnig þennan veizlukost. En það kvað hafa verið vaxandi aðsókn þeirra að sýningunni sem réð mestu um að heilbrigðisyfir- völdin hófust handa. Maður skyldi ætla að heilbrigðisyfirvöid borg- arinnar hefðu í einhverju þarfara að snúast en gegna kvabbi einhverra faríseasálna, sem eilíf- lega þjást af andlegum njálg út af öllu þvi, sem ekki er í fullu samræmi við flatasta fábreytileika hversdagsins, hversu smávægilegt og meinlaust sem það er. Ef eitthvað ætti að vera að marka þetta tiltæki yfirvaldanna, mætti álíta það svívirðilegan og heilsuspillandi verknað að gefa öndunum á tjörninni eða fleygja brauðmolum fyrir tittlinga að vetrarlagi, sem til þessa hefur þó verið kallað sjálfsagt mannúðarverk. Brottnám vörðubrotsins verður enn hlægilegra tiltæki þeg- ar haft er í huga að við lifum í heimi, sem mengunin er rétt að segja að kæfa. íslendingar hafa sáralítið haft af því vandamáli að segja til þessa miðað við aðrar þjóðir, en engu að siður ar það fyrir hendi hjá okkur og í vexti. Umrædd aðgerð heilbrigðisyfirvaldanna er eitt lítið dæmi um blinda hlýðni við einhverja bók- stafi í lögum og reglugerðum, sem látin er ganga fyrir spurningunni um hvort aðgerðin sé nokkr- um til heilla eða komi í veg fyrir nokkur óheill. Þesskonar faríseamóral eru ísienzk yfirvöld greini- lega ekki laus við — fremur en raunar flest eða öll önnur heimsins yfirvöld, vitaskuld. dþ. VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Hall- dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjóri: Sigríður Ól- afsdóttir. — Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 50,00. Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir 26 tölublöð misserislega. — Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjaldd. eru: Nóv., febrúar, maí og ágúst. 29. tbi. vikan s

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.