Vikan


Vikan - 16.07.1970, Síða 19

Vikan - 16.07.1970, Síða 19
Það er sól og vor í Peking. Borgin minnir á grágrænt haf: vægt hallandi helluþök, tré í inngörðum og á torgum, sem girt eru múr- um. Mitt í hafi þessu eru á sundi skarlats- rauð og gullin hof og hallir Borgarinnar For- boðnu — dularfullar minjar frá tímabili, sem þegar heyrir til heimi þjóð- og goð- sagna. Annar borgarhluti þar nálægt er Tsjúng Nan Haí („Sunnan vatns“), umgirt- ur fimm metra þykkum múrum. Á þeim eru vopnaðir lögreglumenn stöðugt á verði og ekki lengra á milli þeirra en svo, að hver þeirra sér þá tvo sem honum eru sinn til hvorrar handar. í höllunum innan þessara múra bjuggu eitt sinn mandarínar keisara- hirðarinnar, síðan embættismenn Kúómín- táng-stjórnar Sjang Kaí-séks og nú hafast þar við voldugustu menn kínverska komm- únistaflokksins. Einn bústaðanna þarna ber frá fornu fari heitið „Höll ilmgóðu hjákonunnar". Til hall- ar þessarar er gengið yfir breitt stræti, sem liggur góðan spöl eftir strönd Suðursjávar, stöðuvatns sem gert er af mannahöndum. Gladíólur og vænlegar krýsanþemur blaka þar krónum í léttum blæ sem stendur ut- an af vatninu. Handan við beðin bíða í kyrrð og ró grárauðar tígulsteinabyggingar, sem vopnaðir verðir standa framan við. Fyrr á tíð bjó þarna nokkuð tápmikil hjákona eins Kínakeisarans, en nú er höllin heimili og embættisbústaður „keisarans“ sjálfs og heit- ir sem slík opinberlega „Hús vinsamlegra hugsana". Klukkan hefur nýslegið tíu. Keisarinn er rétt stiginn upp úr rúminu og er nú svaml- andi í upphitaðri sundlaug úti í garði. í þá fjóra til sex mánuði, sem hann árlega dvelur í höfuðborginni, ver hann alltaf fyrstu stund dagsins í sundlauginni. Kringluleitt andlitið er magrara en áður og enn þreytulegra en ella fyrir þá sök að maðurinn er naumast vaknaður. Hakan, sem aldrei var mjög áber- andi, hverfur nú nær algerlega í húðfelling- ar neðan á kjálkunum. Augun eru útstæð, jaðar hins svarta hárs hefur þokazt aftur á höfuðið og allur litur er úr innföllnum kinn- unum. Maó á erfitt með andardrátt og það sýður niðri í honum. Af og til tekur hann nokkur sundtök. En þar er ekki lengur um að ræða öflugar hreyfingar þolsundmanns. Hann hreyfir sig eins og búast má við af sjötíu og sex ára gömlum manni, sem hefur að minnsta kosti einu sinni fengið slag og líður auk þess samkvæmt almennri mein- ingu af Parkinsonssýki. DRAUMUR SEM EKKI RÆTIST: AÐ SYNDA YFIR MISSISSIPPI Sjúkdómur þessi leggst á miðstöð tauga- kerfisins og hefur í för með sér að sjúkling- urinn hefur síminnkandi stjórn á hreyfing- um sínum. Oft er hann algerlega lamaður langtímum saman. En auðvitað hafa beztu læknar Kína lagt sig alla fram um að halda við heilsu formannsins, og erfiði þeirra hef- ur borið vissan árangur. Það var þeim að þakka að Maó virtist hinn hressasti og hraustasti er hann sýndi sig í sviðsljósinu á n'unda flokksþinginu í apríl 1969. Hann var einnig hinn brattasti að sjá fyrsta óktóber síðastliðinn, á tuttugasta þjóðhátíðardag kínverska alþýðulýðveldisins, er hann kom fram við Tíen An Men, „hlið hins himneska friðar". Þrátt fyrir það fér um hann vægur titr- ingur er hann klifrast upp úr lauginni, stirð- ur í hreyfingum, eftir að hafa haldið sig þar tuttugu mínútur. Áður var hann að minnsta kosti helmingi lengur í vatninu á morgnana. Árið 1963 sagði hann við bandaríska blaða- manninn Edgar Snow, sem skrifað hefur ævisögu hans, að hann ætlaði sér að synda yfir bæði Potomac og Mississippi, áður en hann yrði of gamall til þess. Hann bætti því við að áreiðanlega hefði bandaríska stjórn- in ekkert á móti því að hann reyndi við Mississippi, að minnsta kosti ekki við ósinn, „þar sem fljótið er áttatíu kílómetra breitt“. Einn lífvarðanna kemur þjótandi, nuddar formanninn þurran og sveipar hann slopp. Annir dagsins eru ekki miklar nú orðið. — Öðruvísi mér áður brá: á fyrstu stjórnarár- um formannsins var hann á stöðugum þeyt- ingi í stóru svörtu Sís-límósínunni sinni, sem var gjöf frá Stalín og sovézk stæling á Dodge-módelinu frá 1941. En bílasmekkur Maós tók framförum og næstu árin eignað- ist hann eina fimm kádiljáka og allt að tutt- ugu Rolls Royce-lúxusvagna. Um síðir komst formaðurinn á þá skoðun að Mercedes tæki öðrum bílum fram og hefur nú þrjá af þeim í skúrnum hjá sér, auk nokkurra lúxusvagna sem framleiddir eru í Kína sjálfu. En nú orðið þarf sjaldan að grípa til þeirra og það verður ekki gert í dag. Þetta verður ósköp venjulegur og rólegur dagur í lífi hins mikla yfirhershöfðingja, stýrimanns og kennara Maó Tse-túngs. Maó fer aftur inn í svefnherbergið, klæð- ist þar eins og venjulega grárri treyju og buxum, sem alltaf fara mjög illa, handofn- um bómullarsokkum og svörtum skóm. Síð- an fer hann úr svefnherberginu (hann sef- ur alltaf einn) inn í borðstofuna, en alls eru í bústaðnum tíu herbergi, svo að eiginlega er þetta ekki nein höll. í eldri álmu hússins eru svefnherbergi og borðstofa formannsins, vinnuherbergi og lítið svefnherbergi, þar sem Tsjang Tsjing, eiginkona Maós, sefur. f nýrri álmunni, sem ber nokkuð svip vest- ræns byggingarstíls, eru skrifstofa, skjala- safn, tvö móttökuherbergi og biðstofa. Mestum hluta tíma síns ver Maó í íbúðar- herbergjum bústaðarins. Þau eru búin þung- um viðarhúsgögnum í kínverskum stíl. Vinnuherbergið er stórt og jafnframt bóka- safn, þar sem geymdar eru yfir tíuþúsund bækur. Dagstofan er líka stór, en þar er fátt húsgagna. Þar er sjónvarpstæki, sem nær stöðinni í Peking, sem sendir að vísu að- eins fjórar stundir í viku, og þarf varla að orðlengja að efnið er svo til eingöngu áróð- ur fyrir Flokkinn. IIANN UMGENGST JAFNVEL EKKI KONUNA SÍNA Eins og títt er um Kínverja af gamla skól- anum er Maó formaður lítið fyrir að fá fólk heim til sín. Auk hans sjálfs er kona hans eina manneskjan, sem borðar og sefur í hús- inu. Þau fara næstum aldrei út saman, og vinir og kunningjar hitta Tsjang Tsjing ann- ars staðar. Fyrrum hafði frúin gaman af að horfa á gamlar kvikmyndir, sem hún lék í. Af og til koma í heimsókn nágrannar eins og Lín Pjaó varnarmálaráðhrera og Sjú En- laí forsætisráðherra. Oft fá æðstu menn Flokksins boð um að mæta í höllinni til við- tals við formanninn. Aðrir gestir fá þar sjaldan aðgang, og útlendingar næstum al- drei. Maó sezt nú til borðs. Þjónn setur fyrir hann skál með ríssúpu, sem er einn réttanna á matseðli þeim er hinn magaveiki leiðtogi verður að haga mataræði sínu eftir. Ásamt súpunni eru bornar fram stórar baunir. Eins og títt er um fólk frá Húnan — þaðan er formaðurinn ættaður — stráir hann miklu af sojasósu og rauðum pipar út á súpuna. Síðan hefur hann neyzlu einnar þeirra fimm máltíða, sem hann gæðir sér á daglega. Þetta hús er að vísu ekki það eina, sem formaðurinn á. Samkvæmt opinberum upp- lýsingum frá Peking stendur hann straum af kostnaðinum við þessar fasteignir með því fé, sem honum berst í hendur fyrir Rauða kverið og önnur rit, sem selzt hafa í hærri upplögum en dæmi eru til um aðrar bækur. Einn þessara bústaða, sem ber heitið „Nýja- Peking“, er skammt norðvestan höfuðborg- arinnar, eitthvað hálftíma akstur. Þar heldur Maó venjulega til um helgar. Þetta hús lét Maó fyrir eitthvað fimmtán árum byggja á Maó fsrmaður og Tsjang Tsjing, fjórða eiginkona hans og mikill drifkraftur í menningarbyltingunni. hæð nokkurri, nálægt hofi frægu sem ber heitið „Pagóðan við jaðibrunninn". Á fyrstu árum stjórnartíðar sinnar ók Maó aldrei svo til helgarbústaðarins að ekki fylgdu honum tuttugu og átta vopnaðir líf- verðir. Fimm metra djúp víggröf er um- hverfis villu þessa, og varðturnar allt í kring í kílómeters fjarlægð. í garðinum bólar á ljótum steinsteypuhrygg loftvarnabyrgis upp úr grassverðinum. Auk þessa eru ýmis stór- virk drápstæki bústaðnum til varnar, þar á meðal loftvarnabyssur. Varðlið hússins, sem telur fimmhundruð manns, er eingöngu skip- að fyrrverandi liðsforingjum, er þjónað hafa í þjóðfrelsishernum og getið sér þar sérstak- an orðstír fyrir hreysti og hollustu. í sumarfríum fer Maó til Peitaíhó eða Tsjinvangtaó, á ströndinni austur af Peking, eða til Lú-fjalla neðarlega við Jangtsekíang. Á vetrum fer hann gjarnan til Sjanghaí eða Hangtsjá, en á þeim slóðum á hann mikla 29. tbi. VIKAN 19

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.