Vikan


Vikan - 16.07.1970, Page 25

Vikan - 16.07.1970, Page 25
sæíi á frainboðslista Sjálf- stæðisflokksins í Norður- landskjördæmi vestra í kosn- ingunum um liaustið, enda mun liðsterkari Jóni Pálma- syni á Akri og Einari Ingi- mundarsyni bæjarfógeta á Siglufirði frá því um sumar- ið, auk þess sem Akragoðinn bafði þá fallið í glímunni við Björn Pálsson á Löngumýri og því sett mjög ofan. Gekk Sjálfstæðisflokknum lcosn- ingin að óskum, og voru séra Gunnar og Einar Ingimund- arson kosnir þingfulltrúar kjördæmisins af hans hálfu, en Jón Pálmason sat eftir með sárt ennið, þar eð von- in um uppbótarsæti brást bonum. Glaumbæjarklerkur- inn var svo endurkjörinn í kosningunum 1963 og 1967, og virðist fastur i sessi. Gunnar Gíslason er vin- sæll prestur, en lítill skörung- ur á veraldarvisu. Svipar honum um fátl til afa sins, kempunnar séra lArnórs i Hvammi, sem var frægur mælskugarpur og harla sér- slæður persónuleiki, en i- haldssamur i skoðunum og háttum og næsta þrætugjarn. Séra Gunnar er sléttmáll í orðasennum, enda liæglátur í allri framgöngu og gerir sér far um prúðmennsku, sem álieyrendur liyggja gjarnan að eigi skylt við frjálslyndi. Á alþingi lætur liann sér nægja að greiða atkvæði eins og foringjar hans ætlast til og á varla frumkvæði að málefnum, en skipar stól sinn í þingsalnum eins og líl- illátur heldri maður, sem rækir gamla skyldu. Hins vegar flytur séra Gunnar mál sill sæmilega, ef liann biður um orðið, en talar fremur eins og hann þylji endursögn en honum leiki á tungu frumortur lestur. Ifelzt mun- ar um hann i nefndarstörf- um og fyrirgreiðsluaðtjalda- baki. Þá nýtur séra Gunnar viðfelldinnar lipurðar sinn- ar. Ifún reynist honum og bezt heima í liéraði, þar sem lítt skerst í odda á svipdaufri friðaröld, en við þær aðstæð- ur geta snotrir meðalmenn eins og Gnnnar Gíslason ein- mitt komizt til áhrifa og valda, þó að Arnóri í Hvammi liefðu fundizt slík- ar sæluvikur leiðinlegar, meðan hann var og liét og setti svip á Skagafjörð. Eigi að síður fer því f jarri, að Gunnar Gíslason sé skap- lítill og værukær. Hann er framgjarn, en vill sem minnst fyrir metorðum sín- um hafa og gerir sér ágæta grein fyrir, livað honum lætur. Fer liann í þvi efni hyggilega að farsælu dæmi fyrirrennara síns, Jóns á Reynistað, en skortir þó hugsjónagleði lians og þraut- seigju. Hamingja Gunnarser, að Skagfirðingum gezt vel að honum og unna honum góðs. Glauinbæjarklerkurinn er söngvinn og telst kátur i geði, verður hýr og glettinn á mannamótum, fær sér í staupinu í kunningjahópi og sker sig að engu leyti úr skagfirzkum bændum, sem teygja fáka sína á vökru skeiði og láta kviðlinga f júka hreifir af góðu víni. Gunnar Gíslason er raunar ekki höfð- ingi í líkingu við öldunginn rausnarsama á jarlsetrinu forna, en hann sómir sér bærilega i forustuhlutverld Skagfirðinga og á prýðilega heima i Glaumbæ. Loks er þess að geta, að séra Gunn- ar er myndarbóndi. Hann ræktar jörð sina dyggilega og hirðir fénað og gripi eins og sú iðja væri aðalstarf hans. Hún munhonumsenni- lega hjartfólgnari en messu- gerðirnar í kirkjunni og al- kvæðagreiðslm-nar á alþingi, en allar þessar athafnir hafa samofizl i eðli lians og fari og veitt séra Gunnari yndi og nautn sem heimsins barni og guðs þjóni. Glaumbæjar- klerki likar vel í höfuðborg- inni vetrarmánuðina köldu og dimmu, þegar næðir og fennir norðan lands, en hann snýr fús heim í Skagafjörð með hækkandi sól að vitja bús og afla afurða. Séra Gunnar húsar að stórbænda- sið heyjaforðann á óðali sínu, og slíkt lýsir lionum vissulega. Hann vill hafa allt sitt í hlöðu. Lúpus. 29. tbi. VIKAN 25

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.