Vikan - 17.12.1970, Síða 9
Tvær bæknr írá
Prentrún
LEIÐIN TIL BAKA nefnist ný
skáldsaga eftir Martein frá Voga-
tungu. Þetta er önnur skáldsaga
hans, en hin fyrsta kom út fyrir
jólin í fyrra og vakti nokkra at-
hygli. Á bókarkápu segir meðal
annars: „Þessi nýja bók Marteins
frá Vogatungu fjallar um utan-
garðsfólk og samskipti þess við
heiðarlega, guðelskandi borgara.
Marteinn talar ekki tæpitungu,
og þessi bók er harðskeytt ádeila
á ýmis fyrirbæri samfélagsins“.
RAUÐA TJALDIÐ er eftir Um-
berto Nobile. Þar segir frá leið-
öngrum Nobile á loftskipunum
„Norge“ og „Ítalíu“ til Norður-
pólsins. Ferð „Norge“ gekk að
óskum, en „Italia“ fórst. Á bók-
arkápu segir meðal annars:
„Þessar ferðir voru einstæðar og
vöktu mikla athygli og umtal. Að
venju er sá sekur, er tapar, og
Umberto Nobile hlaut ámæli í
sinn hlut í stað frægðar... Þetta
er mikil harmsaga en jafnframt
hetjusaga, sem lýsir atburðum,
sem nú eru okkur framandi“.
Þrjár bækur frá
Hildi
Blaðinu hafa borizt þrjár bæk-
ur, sem Bókaútgáfan HILDUR
hefur sent frá sér. Ein þeirra er
eftir brezka njósnarann og sov-
ézka gagnnjósnarann Kim Philpy
og nefnist ÞÖGLA STRÍÐIÐ
Brezki rithöfundurinn Graham
Greene skrifar formála að bók-
inni, en hann starfaði um skeið í
brezku leyniþjónustunni undir
stjórn Philbys. Um bókina segir
svo á kápu: „Kim Philby er í
fremstu röð njósnara á þessari
öld. Þáttur hans sem hins dular-
fulla „þriðja manns“ í Burgess og
Maclean málinu, svo ‘ekki sé
minnst á flótta hans til Sovét-
ríkjanna, olli slíkri ólgu meðal
vestrænna leyniþjónusta, að mik-
ið skortir enn á að þær öldur
hafi lægt — og raunar ólíklegt að
svo verði í fyrixsjáanlegri fram-
tíð. — Þessi frásögn leiðréttir
sumar þær þjóðsögur, sem um
hann hafa spunnizt. Vert er að
hafa hugfast, að líklegt mátti
telja, að Philpy hefði orðið yfir-
maður brezku leyniþj ónustunnar
hefði Burgess-málið ekki hindr-
að það ■— gildi þessarar bókar
verður því tæpast ofmetið".
GREIFINN Á KIRKJUBÆ
heitir önnur bókin frá Hildi og
er eftir Victoriu Holt, en forlag-
ið mun áður hafa gefið út nokkr-
ar bækur, eftir þessa brezku
skáldkonu. Þetta er ástarsaga,
blandin dulúð og ógn, ef dæma
má af því, sem stendur aftan á
kápu bókarinnar um unga sak-
lausa brúði, sem stígur í fyrsta
sinn yfir þröskuld framtíðar-
heimilis síns, mikils kastala sem í
augum hennar var ákaflega róm-
antískur, en „hún vissi þá ekki
enn um hina hræðilegu leyndar-
dóma, sem duldust innan þessara
þykku steinveggja — né heldur,
að frá þeirri stundu að hún steig
inn á þetta nýja heimili sitt, hefði
hún stigið yfir þröskuld skelf-
ingarinnar ..eins og segir á
kápunni.
DÆTUR BÆJARFÓGETANS
heitir þriðja bókin og er eftir
norsku skáldkonuna Margit
Ravn. Þetta er bók fyrir ungar
stúlkur, eins og aðrar bækur
hinnar norsku skáldkonu, sem
nutu geysimikilla vinsælda, þeg-
ar þær komu út fyrir 30 til 40
árum, einnig hér á íslandi. Hild-
ur hefur endurprentað nokkrar
af þessum bókum og virðast þær
í engu hafa glatað vinsældum
sínum. -fr
Tvær bækur frá
Ægisútgáfunni
Blaðinu hafa borizt tvær nýj-
ar bækur frá Ægisútgáfunni.
HRAFNISTUMENN heitir ný
bók eftir Þorstein Matthíasson og
hefur að geyma minningar sex
vistmanna á Hrafnistu. Á bókar-
kápu segir meðal annars: „Við
erum stödd í Laugarásnum á
Hrafnistu. Okkur langar að
skyggnast aftur í fortíðina, í fé-
lagsskap nokkurra vistmanna á
þeim ásæta stað. Margt úrvals-
fólk eyðir þar ævikvöldinu, fólk
sem er siór af fróðleik um horfna
tíð. Þeir eru aðeins sex sögu-
mennirnir í þessu bókarkorni, fá-
tæklega fáir af svo stórum hópi,
en vonandi verður eitthvað um
bætt,, ef framhald verður á þess-
um þáttum... Það hefur oltið á
vmsu fyrir sögumönnum okkar í
þessari bók. Allir eiga þeir sína
sögu. sögu, sem hver með sínum
hætti opnar nútímafólki sýn í
fortíðina og rifjar upp minningar
þeirra eldri.“
MENNIRNIR í BRÚNNI, Þætt-
ir af starfandi skipstjórum. Rit-
verki bessu var hleynt af stokk-
unum í fvrra. en nú bætist annað
bindi við. Að þessu sinni er rætt
við siö kunna skipstióra: Arin-
biörn Sigurðsson. Biörgvin
Gunnarsson. Finnbocra Map-nú«-
son. Halldór Halldórsson. Sigurð
Kristiónsson. Þórð Guðiónsson og
Þorvald Árnason. Þeir Guð-
mundur Jakobsson, Jón Kr.
Gunnarsson og Ásgeir Jakobsson
hafa skráð þættina. Bókin er
prýdd mörgum myndum úr lífi
og starfi mannanna, „sem sækja
sióinn. sem færa biörg í bú og
hafa skapað ísland nútímans",
eins og komizt er að orði á bók-
arkápu.
INNOXA
*
Mikið úrval af INNOXA snyrtivörum
er nú komið í snyrtivöruverzlanir
og apótek.
*
KristiáossM bf.
Ingólfsstræti 12 - Sími 12800 14878
Jólavörur
Bur&tasett
Coctailsett
Coctailhristarar
Rafknúnir vínskenkar
Sódakönnur
(Sparklets syphon)
Jólavindlar
Vindlaskerar
Seðlaveski
Tóbaksveski
Tóbakstunnur
Tóbakspontur
Sígarettuveski
Sígarettustatív
öskubakkasett
öskubakkar
fyrir pípumenn
Reykjapípur í úrvali.
IJrval af jólakonfekti.
Hjá okkur fáið þér kveikjarann handa unnustunni,
eiginmanninum og eiginkonunni.
Old spice og Tabac gjafasett
fyrir herra í glæsilegu úrvali.
Verzlunin Þöll Veltusundi 3
(Gegnt Hótel íslands bifreiðastæðinu. — Sími 10775).
5i. tbi. VIKAN 9
0060