Vikan - 17.12.1970, Qupperneq 37
Veljið yðar KÓRÓNA snið. —
91,2% öryggi er fyrir því að ná-
kvæmlega yðar stærð finnist í
nýja og fullkomna stærðakerfinu.
Nýtækni í gerð og frágangi milli-
fóðurs tryggir, að nýju KÓRÓNA
fötin yðar haldi lengur formi,
en áður. — Margar nýjar, sér-
hæfðar vélar auka nákvæmni
í gerð fatanna svo að jafnvel
vandfýsnasta hannyrðakona „af
gamla skólanum“ fyllist aðdáun.
HORN, SNIÐ: LIDO
MITTISSVIPUR, SNIÐ: KIM
AXLARSVIPUR, SNIÐ: IB
NÝ OG ENN BETRI
KÓRÓNA FÖT
ÍtVUui^viÍ/vv\
V I D LÆKJARTORG /Z—
yl
leiknum. Hún kemur inn meðan
við enn liggjum á mottunni,
mett af ást. Hún sezt hjá okkur,
klappar systur sinni á kinnina
og segir eitthvað sem eflaust
þýðir „gleypikona“ eða eitthvað
í þá áttina. Síðan bindur hún
lendaskýlurnar á okkur Lali
bæði. Hreyfingar hennar eru
nærfærnar og fullar blíðu. Alla
nóttina er ég hjá Guajiros. Ég
sef ekkert. Ég þarf ekki einu
sinni að leggjast út af, til að
sjá gegnum augnalokin allt
þetta dásamlega, sem ég hef lif-
að. Með því að ganga um gólf í
eins konar dái lifi ég aftur
þennan dásamlega dag, sem
reyndar leið fyrir næstum sex
mánuðum.
Svelti.
Ljósið er slökkt uppi og mað-
ur veit að kominn er dagur.
Ljósið þrengir sér niður í klef-
ann. Blístur. Ég heyri svefn-
bálkana skella að veggnum og
meira að segja þegar granninn
til hægri krækir sinn í hringinn
í múrnum. Nágranni minn hóst-
ar og ég heyri vatn renna.
Hvernig þvo menn sér hér?
Herra eftirlitsmaður,
hvernig þvær maður sér hér?
- Fangi, þar eð þér ekki get-
ið áttað yður á því sjálfur tek
ég þetta ekki illa upp. En það
má ekki tala við verðina og
liggur við þung refsing. En þeg-
ar þér þvoið yður, setjizt þér á
tunnuna, hellið yfir yður úr
könnunni með annarri hendi en
nuddið yður með hinni. Hafið
þér ekki tekið upp teppið yðar?
— Nei.
— Það er áreiðanlega hand-
klæði undir því.
Að hugsa sér! Maður má ekki
tala við varðmanninn? Alls
ekki? Ekki þótt maður þjáist?
Ekki þótt lífið liggi við? Það
gæti verið hjarta- eða botn-
51. tbi. VIKAN 37