Vikan


Vikan - 29.07.1971, Blaðsíða 15

Vikan - 29.07.1971, Blaðsíða 15
s ifpj^ Éi Fyrir nokkrum árum tók Vestmannaeyj ahlj ómsveitin ' Logar upp á því skemmtilega athæfi að fara með allt sitt hafurtask út í Klauf í Vest- mannaeyjum og spila þar nokk ur skipti í góða veðrinu. Upp- nefndu þeir staðinn „Costa del Klauf“ og höfðu eyjaskeggjar Þessi mynd var tekin af Logum í fyrrasumar f glampandi sól og hita í Vestmannaeyjum. Nú eru þeir á leiS f sólina og hitann á Spáníá. gaman af tiltækinu. En nú eru Logar að leggja í ferðalag og frá og með 10. ágúst, næstkomandi, eru þeir ráðnir til að skemmta túrist- um á Costa del Sol á Spáni. Upphaflega fréttum við þetta frá Eyjum og það varð til þess að við hringdum í Guð- laug Sigurðsson, orgelleikara hljómsveitarinnar og spurðum hann nánar út í þessa reisu og aðdraganda hennar. „Við förum þetta á vegum Útsýnar", sagði Guðlaugur. „Forráðamenn skrifstofimnar voru hér með skemmtun í vet- ur og þar spiluðum við — með þeim afleiðingum að við erum á leið út með allt okkar dót. Til að byrja með erum við ráðnir á hóteli sem heitir Las Pyramidas, en þar á að verá með ferða- og fslandskynning- ar. Síðan verðum við eitthvað í klúbbum þarna í kring og ef Framhald á bls. 41. Einn virtasti session-gítar- leikari USA, David Spinozza, talar um regnslu sína af að vinna með Lindu og Paul McCartney. David Spinozza er aðeins 21 árs gamall og hefur verið sess- ion maður síðan hann var 17 ára. Hann er talinn einn snjall- asti sessionmaður Bandaríkj- anna og ekki aðeins það, held- ur er hann einnig nefndur þar vestra um leið 'og þeir Hendr- ix, Clapton, Page, Blackmore, B. B. King og svo gott sem all- ir mestu gítarleikarar í heimi. Hann getur spilað hvað sem er: 1 David Spinozza. David lærði að spila á gítar af svörtum kontrabassaleikara, sem kenndi á hljóðfæri í hljóð- færaverzlun í New York. — Fyrsta gítarin'n sinn eignaðist hann aðeins 6 ára gamall, spil- aði á hann öll sín skólaár og er nú að læra klassíska gítar- tónlist. Hann lék með Fredu Payne á „Band of Gold“ og mörgum fleirum og nú síðast spilaði hann með Paul Mc- Cartney á „Another Day“ og síðan hjónaalbúminu „Ram“. „Það var gaman að vinna með Paul“, segir David. „Ég meina að það var gaman að fylgjast með honum og sjá hvernig hann vinnur. Sem David Spinozza, gítarleikarinn sem lék meS Paul á „Ram". í frásögn hans má lesa ýmislegt á milli línanna. músíkant var það ekkert gam- £m, því í þessu bjó engin á- skorun, ekkert frelsi fyrir mig. McCartney er fyrst og fremst tónskáld, ekki hljóðfæraleikari — en hann semur stórkostleg lög. f stúdíóinu er hann ákaf- lega settur og „bíssniss“legur. Þar reykir enginn hass eða marijúana eins og yfirleitt, enginn drekkur og enginn tal- ar. Allt gengur samkvæmt stundaskrá. Framháld á bls. 37. Hjónin Linda & Paul McCartney. Plata þeirra „Ram", hefur hlotiS mis- jafnar undirtektir gagnrýnenda, en samt keppir hún við „Sticky Fing- ers" Rollinganna um efsta sæti vinsældalistanna. 30. TBL. VIKAN 15 -

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.