Vikan


Vikan - 09.12.1971, Page 6

Vikan - 09.12.1971, Page 6
LITIL HJÁLPARHÖND er dásamleg" Viðtal við séra Elías Berge, framkvæmdastjóra Hjálparstofnunar norsku kirkjunnar, sem hér var ekki alls fyrir löngu. MYNDIR: EGILL SIGURÐSSON TEXTI: ÓMAR VALDIMARSSON Hörmungar flóttamanna frá Bangla Desh til Indlands hafa vakið mikinn hrylling hér á landi sem víðar og þótt íslend- ingar vilji ef til vill ekki vita af vandamálunum við húsvegg- inn hjá sér, þá hafa þeir ekki látið liggja á liði sínu í við- leitni við að hjálpa þessu vesa- lings fólki úti í heimi. Hörmungar á hörmungar of- an hafa dunið á íbúum Austur Pakistan. Fyrir ári síðan skall mikil flóðbylgja á landinu og í marz sl. réðust hersveitir Yaja Khans inn í landið og upphófu þar borgarastyrjöld með þeim afleiðingum, að nú eru í Indlandi tæpar 10 millj- ónir flóttamanna frá ófrjálsu Bangla Desh. Óopinberar töl- ur, sem þó eru taldar áreiðan- legar, herma að milljónir hafi aldrei átt þess kost að flýja, byssukúlur stjórnarhersins hafi séð fyrir því. Og enn eru ótald- ar milljónirnar sem bíða heima fyrir og þjást þar. í haust skall önnur flóðbylgja á landinu ... I byrjun nóvember efndi Hjálparstofnun kirkjunnar hér á landi til skipulagðrar söfnun- ar til aðstoðar flóttafólkinu og í því sambandi kom hér fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar norsku kirkjunnar, séra Elías Berge. Blaðamaður og ljós- myndari VIKUNNAR hittu hann að máli skömmu áður en hann hélt aftur heim til Nor- egs og voru báðir sammála um að ef væri til stórmenni, væri það áðurnefndur Elías Berge. Viðtalið við hann fer hér á eftir. — Þú hefur verið í Austur Pakistan, ekki satt? —• Jú, þrisvar sinnum. í fyrsta skiptið var það aðeins örfáum dögum eftir flóðið mikla, sem var það skelfileg- asta sem hefur orðið í þeim heimshluta. Austur Pakistanir eru vanir flóðum, en það eru flóðin úr Ganges og Rama Putra, sem eru náttúrlega ekki nærri eins hættuleg og alvar- leg. Síðan hef ég komið tvisv- ar, í síðara skiptið aðeins fyrir örfáum vikum. —- Hvernig er raunverulegt ástand í Austur Pakistan nú? — Ég held að enginn, eng- inn, geti sagt nákvæmlega til um hvernig ástandið er þar nú. Til að útskýra örlítið, ætti ég sennilega að segja þér dálítið til um hvernig okkar starfi er háttað. Við starfrækjum skrif- stofu í Dacca og auk þess er- um við með 9 verkefni hér og þar um landið, bæði neyðar- hjálp (emergency relief) og eins langtíma uppbyggingu og við það síðarnefnda notuðum við sérfræðinga á ýmsum svið- um: arkitekt, fiskiðnaðarmenn, lækna og hjúkrunarkonur, kennara og þar fram eftir göt- unum, en við neyðarhjálpina einbeitum við okkur að mat- væla- og lyfjagjöfum. Við reyn- um náttúrlega að lyfta fólkinu örlítið upp úr eymdinni sem það er í og til þess er langtíma uppbyggingin ætluð. Það er ekki hægt að færa fólk allt í einu úr strákofunum inn í ný- tízku einbýlishús, það hrein- lega gæti ekki ráðið við þá 'mmm í 1 6 VIKAN 49. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.