Vikan


Vikan - 09.12.1971, Side 7

Vikan - 09.12.1971, Side 7
andlegu og líkamlegu áreynslu sem slíkt hefði í för með sér. Svo að segja strax eftir flóð- bylgjuna, byrjaði fólk að streyma yfir þau geysivíðáttu- miklu landamæri sem umlykja Austur Pakistan og inn í Ind- land og nú eru ekki færri en 9% milljón flóttamanna í flótta- mannabúðum þar. Þetta vesl- ings fólk, sem var mjög þjáð í þorpum sínum heima fyrir, fór úr einu vítinu í annað. — Þú sagðir í sjónvarpsvið- tali hér að þetta vaeri fyrst og fremst pólitískt vandamál . . . — Vissulega . . . Telur þú þá að Bangla Desh eigi eftir að verða að raunveruleika? — Já, það verður að gerast. Hvað meinum við annars með lýðfrelsi? Hvaða meiningu leggjum við í þetta sífellda hjal okkar um mannréttindi? Hvað meinum við? Ekki neitt! Vilji 75 milljóna er hafður að engu. — En hvernig getur Bangla Desh orðið að raunveruleika, þegar stórveldin virðast láta sér standa nákvæmlega á sama um afdrif þessa fólks? — Ef þú gætir sagt mér það yrði ég hamingjusamur maður. Ég veit það ekki . . . og þó, ég veit miklu meira um ástandið þarna en nokkur maður gæti ímyndað sér, en ég vil ekki tala mig út um það. Þú skilur mig, vinur minn, það hvílir mikil ábyrgð á herðum mér og ég má ekki segja rnikið. Um allan heim, sérstaklega í Þriðja heim- inum, eru milljónir á milljónir ofan sem þarfnast hjálpar okk- ar og í ár tekur Norska hjálp- arstofnunin þátt í 160 verkefn- um víðs vegar um heiminn, allt frá Kóreu til Suður Ameríku og ef ég, sem ’framkvæmda- stjóri þeirrar stofnunar, segði frá öllu sem ég vissi, væri ég þar með búinn að eyðileggja möguleika okkar í mörgum löndum og jafnframt framtíð- armöguleika og vonir fólksins sem þarf á okkur að halda. Við getum náttúrlega ekki hjálpað öllum, en allir geta hjálpað sumum og það er skylda okk- ar sem kristinna manna að hjálpa hverri þeirri sál sem þarf á því að halda. Ef ég er staddur við höfnina í Osló og heyri lítið barn gráta og sé hönd sem er hjálparþurfi, þá tek ég ekki af mér úrið áð- ur en ég stekk. Ég spyr ekki hver eigi þetta barn og hvað hafi skeð, ég stekk! Hvaða maður sem er myndi gera það. Þannig vinnum við hjá Kirk- ens Nödhjelp, við spyrjum ekki um pólitískar skoðanir fólksins sem er í neyð, við stökkvum óhikað. Reglur okk- ar eru aðeins 8 og reyndar er ekki enn búið að prenta þær, en þar stendur skýrum stöfum, að við hjálpum fólki án þess að spyrja um trú, þjóðerni, kynþátt eða stjórnmálaskoðan- ir. Þess vegna verðum við að vera ákaflega varkárir í sam- bandi við það sem við segjum og gerum; ekki okkar vegna, við höfum nóg og búum við lífsskilyrði sem eiga sér enga hliðstæðu í veröldinni, en á meðan sveltur meira en helm- ingur mannkyns. Við erum al- in upp í kristinni siðfræði og spyrjum engra spurninga um þá sem svelta, kristindómur- inn býður okkur að vinna fyrir bættum hag þessa fólks. — Við höfum heyrt sögur af fjöldadrápum vestur paki- stanskra hermanna á varnar- lausum borgurum í austurhluta landsins. Getur þú staðfest þessar sögur, af eða á? —- Ekki spyrja mig að þessu, vinur minn, ég bið þig. Ég veit of mikið. — Of mikið? — Já. í Osló bíður hópur eft- ir því að komast af stað til Pakistan og flóttamannabúð- anna í Indlandi og þótt ég viti ekki hvernig sambönd paki- stanska stjórnin hefur hér á íslandi, þá veit ég að í Noregi grandskoðar hún hvert einasta orð sem haft er eftir mér í blöðunum, svo ég verð að vera mjög varkár. Það er ekki hægt að loka dyrunum áður en mað- ur er kominn inn fyrir og það er alls ekki víst að við séum búin að sjá það versta ennþá. Hver veit hvað bíður okkar, fréttir og sýnir, þegar við kom- um lengra inn í landið og hitt- um fleira fólk? Flóttamanna- vandamálið í Indlandi er það alvarlegasta og mesta sem heim- urinn hefur vitnað og í Austur Pakistan eru enn 65 milljónir manna, sem ekki er hægt að færa mat — og þetta fólk get- ur ekki, eins og nú er ástatt, séð sér sjálft fyrir fæðu. — Hver er tilgangurinn með hcimsókn þinni til íslands? — Vinur minn, Sigurbjörn Einarsson biskup, bauð mér að koma hingað og gefa góð ráð í Framhald. á bls. 39. 49. TBL. VIKAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.