Vikan


Vikan - 09.12.1971, Blaðsíða 9

Vikan - 09.12.1971, Blaðsíða 9
íslenzkt fólk á ferð í hátíðarskapi. Mynd þessi er gerð af erlendum lista- manni þjóðhátíðarsumarið 1874. „Hún var haldin 2. dag ágúst- mánaðar. Hátíðin byrjaði þeg- ar um morguninn með guðs- þjónustugjörð í dómkirkjunni kl. 8—9%. Dómkirkjan var prýdd hið skrautlegasta, og öll ljósum ljómuð. A háaltarinu brunnu ljós, sem vanalega, en i kórnum voru reistar tvær há- ar kertastikur sín hvorum meg- in við skírnarfontinn, klæddar grænum dúkum, og vafðar blómhringum, og aðrar tvær með sama umbúnaði, fyrir neð- an tröppurnar. Kringum altar- istöfluna voru dregnar lauf- gjarðir og blómskraut, hið feg- ursta, og líkt fram með báðum loftsvölunum. Stóll landshöfð- ingja var ætlaður konungi, og var rauðum tjöldum slegið upp báðum megin við stólinn, og með þeim lágu blómgjarðir og blómsveigar, er var mjög hag- lega fyrirkomið. Konur og meyjar bæjarins, sem skreytt höfðu konungsbryggjuna, höfðu einnig hér um búið, og gjörðu útfendir mjög orð á, hve það hefði tekizt snilldarlega. Konungur sjálfur og sonur hans og flest annað stórmenni var við hámessuna, en það var sú, er haldin var í miðið, kl. 10 Mi — 12. Hérumbil kl. 9 Vi kom sveit hermanna frá kon- ungsskipinu Jylland og gekk við hl j óðf ærablástur upp að dómkirkjunni, og nam þar stað- ar. Nokkru síðar kom sveit kadetta eða sjóforingjaefna frá Heimdal og gekk einnig til kirkju; var þar einnig raðað í kirkjuna í tvær raðir innan frá kór og fram að kirkjudyrum beggja megin við göngin, þar sem konungur átti um að ganga. Nú tók fólk óðum að flykkj- ast í kirkjuna, lögreglustjóri var þar staddur með lögreglu- þjónum, til að sjá um að ekki yrði troðningur, og allt færi fram sem skipulegast. Lítilli stundu síðar eða um kl. 10 Vi kvað við lúðrablástur fyrir ut- an kirkjuna; kom nú konung- ur með mikla sveit manna, og gekk í kirkju, en sveitir her- manna höfðu skipað sér til beggja handa meðfram kirkj- unni. Biskup var áður genginn til kirkju, og var skrýddur full- um biskupsskrúða; en er kon- ungur kom, gekk hann til móts við hann fram í kirkjudyr; ávarpaði hann konung þar með nokkrum orðum og fylgdi hon- um síðan inn að kór. Gekk þá konungur til sætis síns, og svo prinsinn í stól landshöfðingj- ans innanvert á loftsvölunum öðrum megin. En þar utar af sátu aðmírállinn og yfirforingj- ar allra herskipanna. í innstu bekkjunum niður var skipað Hátíðarmessa í dómkirkjunni í Reykjavík. Pétur biskup Pétursson í stóln- um, Hallgrímur Sveinsson dómkirkjuprestur fyrir altari. Þrjár messur voru fluttar þennan dag og var konungur viðstaddur þá í miðið. Þá var meðal annars sunginn lofsöngur eftir Matthías Jochumsson við lag eftir Svein- björn Sveinbjörnsson, tónskáld. Þetta var „Ó, guð vors lands“, sem síðar varð þjóðsöngur okkar, fluttur í fyrsta sinn. Sagt er, að bæði ljóð og lag hafi haft djúp áhrif á kirkjugesti. hinum göfugustu gestum þjóð- hátíðarinnar og öðrum höfð- ingjum. En þar utar frá var múgurinn og var kirkjan meir en alskipuð fólki. Þá hófst nú guðsþjónustu- gjörðin, og fór hún fram á lík- an hátt og vant var, nema viö meiri viðhöfn. Biskup landsins, doktor Pétur Pétursson, flutti töluna. Söngurinn fór fram hið hátíðlegasta með organslætti, en fyrir honum stóð organisti dómkirkjunnar, hinn ágæti söngmeistari, Pétur Guðjohn- sen. Nýir sálmar voru sungnir og voru þeir allir ortir af hinu lipra sálmaskáldi, Helga Hálf- danarsyni prestaskólakennara, en einn lofsöngur var eftir þjóðskáldið Matthías Jochums- son, með lagi eftir hið fræga íslenzka tónskáld, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, organista í Ed- inborg. Þá er guðsþjónustu var lokið, gullu aftur við lúðrar fyrir utan kirkjuna, og gekk þá konungur úr kirkju með hinni sömu skipan sem fyrr, en síð- an mannfjöldinn. Hinar mess- urnar, sú um morguninn og sú, er haldin var síðar um daginn, fóru fram á líkan hátt, en með Framhald á bls. 53. 49. TBL. VIKAN 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.