Vikan


Vikan - 09.12.1971, Side 10

Vikan - 09.12.1971, Side 10
— Það er næsta ótrúlegt, sagði hann blíðlega og hún tók eftir því að ameriski hreimur- inn í rödd hans varð greini- legur, — að slíkar hugsanir skuli geta leynzt bak við þetta slétta enni . . . Svo brosti hann og hristi höfuðið, með umburðarlyndis- svip. — Stúlka mín, þú ert allt of taugaveikluð . . . eða ertu að þykjast fyrir mér. Þú með allt þitt svissneska hyggjuvit og raunsæi. Veslings litla alpa- blóm . . . elsku litla alparós með höfuðið í skýjunum. Hvernig getur þú látið þér detta svona hræðilegir hlutir í hug? Hvernig getur þú verið svona blind? Svona barnalega heimsk? Vesalings litla alpa- blóm . . . Hann talaði rólega við hana og reyndi að hughreysta hana eins og hún væri lítið barn. Og alltaf var hann með þetta sama bros, glettnislegt, en stríðnislegt um leið. Og smátt og smátt varð hún rólegri og brosti til hans. Heyrið þið mig nú, sagði Si- mon Templar og brosti elsku- lega við andlitunum fjórum, sem virtu hann fyrir sér, — þrjú voru áköf en það þriðja hugsandi. — Hlustið nú á mig. Við þurfum að tala um alvar- lega hluti. Heyrið þið hvað ég er að segja? — Já, sögðu kvenraddirnar þrjár í kór. — Ágætt. Sjáið nú til . . . þegar við höfum lokið við þennan ágæta morgunverð, sem Heidi hefur framreitt handa okkur, þá gerum við áætlun. Eruð þið ekki sammála? — Jú, hrópuðu raddirnar þrjár. — En áður en við gerum áætlun, verðum við að þakka Heidi fyrir matinn, er það ekki? Nú voru aðeins tvær raddir, sem svöruðu játandi. Kollok þagnaði snöggvast og virti Nieky fyrir sér. — Hvað er að þér drengur minn? Hefurðu misst málið? — Nei, sagði Nicky. — Það er gott að heyra, sagði Kollok glaðlega, eins og Nicky hefði sagt eitthvað sem gladdi hann. Nicky beit á vörina. Kollok sneri sér að telpunum og brosti. — þökkum við Heidi fyrir matinn. Hann stóð upp, gekk kring- um borðið og stillti sér upp við hliðina á Heidi. — Ég þakka innilega fyrir þennan ágæta mat, Heidi, sagði hann hæversklega. Svo beygði hann sig, eins og til að gera sig minni, hristi ákaft höfuðið, eins og Venetia var vön að gera og líkti eftir rödd hennar. — Þúsund þakk- ir fyrir matinn, Heidi . . . Börnin störðu á hann, mál- laus af undrun. Þau komu ekki upp nokkru orði en mændu á hann, þegar hann gerði sig ennþá minni og ságði, með mjórri barnsrödd: — Takk fyrir matinn, Heidi. Amanda roðnaði. Hann hafði líkt svo nákvæmlega eftir rödd- um þeirra systranna. Nicky hrukkaði ennið. EJftir andaf-taks þögn fóru systurnar að hlæja. Kollok yppti aðeins öxlum, þegar þær fóru að dást að þess- ari list hans. — Bíðið, sagði hann. — Bíðið þangað til þið heyrið þriðju röddina. Getur þú haft eftir Hei- di? æptu systurnar og voru að springa af hlátri. — Auðvitað get ég það, sagði hann og sagði: — Verið þið nú þæg, ef þið hafið hátt, þá vek- ið þið pabba. Það hefði aðeins getað verið Heidi sjálf sem tal- aði. Heidi var hrifin, en samt gat hún ekki losnað við ein- hverja undarlega tilfinningu. Hvernig gat hann breytt rödd sinni svona? Henni fannst jafn- vel eitthvað skuggalegt við það. Henni fannst hún ekki þekkja hann eins vel og áður. Hann sá á svip hennar hvern- ig henni leið, greip hönd henn- ar og kyssti, með riddaralegri hneigingu. Varir hans snertu aðeins handarbak hennar. Heidi, ég endurtek þakk- ir mínar fyrir þessa frábæru máltíð, sagði hann með sinni eigin rödd og horfði innilega í augu hennar. Hún andvarpaði og létti mik- ið. Hann fann að höndin, sem hann hélt í, varð slakari. Vene- tia og Amanda horfðu á hann með hrifningu og gleymdu að flissa. — Ég er hissa á að pabbi skuli aldrei kyssa á hönd mömmu, andvarpaði Venetia. — Hann er giftur henni, sagði Amanda snögglega. — Gift fólk gerir ekki svoleiðis. Venetia opnaði munninn og 10 VIKAN 49. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.